Glóðafeykir - 01.11.1972, Síða 20
20
GLOÐAFEYKIR
Fundurinn við Popp skipti sköpun
I afmælisgrein um Hevmann á
Mói áttræðan, sem birtist í Is-
lendingaþáttum Tímans fyrir
nokkru, segir m. a. svo:
„Hann er fæddur hugsjóna-
maður. einlægur og óeigingjarn
umbótamaður, frjálslyndur og
víðsýnn félagshyggju- og sam-
vinnumaður, heiðlyndur og háv-
aðalaus. Hann hefur verið meiri
áhrifamaður í héraði og koinið
víðar við en menn almennt gera
sér ljóst. Og það ætla ég, að á
muni sannast, að ávallt muni
hann hafa beitt áhrifum sínum á
þann veg, er betur gengdi“.
Þetta er góður vitnisburður og
kynni einhver ókunnugur að álíta oflof. Kunnugir vita þó, að hér
er í engu ofmælt. Og það er sannarlega ekki út í hött, að Glóða-
feykir hitti að máli þennan áttræða „félagshyggju- og samvinnu-
mann“, og biðji hann að segja lesendum ritsins eitthvað frá liðnum
ævidögum. Hermann tekur því vel en lætur þó í ljósi efa um, að
margt finnist nýtilegt þótt gengið sé á rekann.
Við sjáum nú til.
— Þú ert víst því miður ekki Skagfirðingur að uppruna, Her-
mann?
— Nei, það verður nú víst svo að vera. Eg er fæddur Vestfirðingur,
nánar tiltekið Arnfirðingur. Eaðir minn, Jón Sigurðsson, var úr
Þorskafirði, en fluttist þaðan ásamt föður sínum og stjúpmóður að
Hóli í Bíldudal. Móðir mín, Halldóra Magnúsdóttir, var ættuð úr
Tálknafirði, en fluttist einnig til Bíldudals og var starfandi hjá
Pétri Thorsteinssyni kauomanni og litgerðarmanni, er þau faðir
minn kynntust. Faðir minn gerðist verkstjóri hjá Pétri Thorsteins-
Hermann Jónsson frá Yztamói