Glóðafeykir - 01.11.1972, Side 65
GLÓÐAFEYKIR
65
kona vel látin, fasprnð, hógvær og stillt, hneigð til hjnkrunarstarfa.
Hún dó á bezta aldri, væn kona og átti þó ekki langa sögn.
Jóhannes Bjarnason á Þverá í Blönduhlíð lézt þ. 24. des. 1963.
Hann var fæddur á Þúfnavöllum í Hörgárdal 16. des. 1875. For-
eldrar: Bjami bóndi í Borgargerði í Norðurárdal Bjartmarsson,
bónda í Bimunesi, Bjamasonar, og kona
hans Flelga Jóhannesdóttir á Geldingsá á
Svalbarðsströnd, Guðmundssonar.
Jóhannes ólst upp nyrðra, en flutti vorið
1893 sem vinnumaður frá Þverá í Öxnadal
til föðurbróður síns, Gunnars bónda á Úlfs-
stöðum í Blönduhlíð. Var svo í vinnu-
mennsku nokkur næstu árin, síðast á Mikla-
bæ hjá sr. Bimi Jónssyni, þar kvnntist hann
konuefni sínu. A vinnumannsárum sínum
þótti Jóhannes fullgildur maður til allra
venjulegra starfa.
Árið 1903 kvæntist Jóhannes Björgu
Sigfúsdóttur bónda og skyttu í Hringey í Vallhólmi, Jónassonar, og
konu hans Margrétar Guðmundsdóttur. \roru þau um sinn á vegum
Bjama í Borgargerði, föður Jóhannesar. Bjuggu á Minni-Ökrum í
Blönduhlíð 1903—1913, í Grundarkoti í sömu sveit 1913—1926.
Brugðu þá búi og voru eftir það á vegum bama sinna, síðast all-lengi
á Þverá hjá Margréti dóttur sinni, konu Steinþórs Stefánssonar,
bónda þar. Búskaparárin öll var Jóhannes bláfátækur, enda ómaga-
maður og bújarðimar í rýrara lagi. Gat aldrei komið upp nægi-
legum bústofni; mun og eigi hafa verið fjárhyggjumaður né btisýslu
að eðlisfari. Hafði þó töluverðan áhuga á sauðfé, einkum ferhyrndu
fé og mislitu; átti og, eftir að hætti búskap, lengstaf nokkuð af
kindum, sem hann annaðist að mestu sjálfur allt til elliára.
Jóhannes Bjamason var fullkominn meðalmaður á vöxt og hafði
góða líkamsburði; grannleitur og sléttfarinn ásýndum; hæglátur og
fáorður að jafnaði, gat þó í fámennum hópi kunningja verið ræð-
inn nokkuð og átti þá stundum til að beita hóglátlegri kímni. Varð
eigi séð, að fátækt næði að raska jafnaðargeði hans. Hafði töluverð-
an áhuga á lestri sögubóka, enda all-sæmilega vitiborinn. Var óhlut-
deilinn um annarra hagi, enda vel látinn af öllum.
Björg Sigfúsdóttir, kona Jóhannesar, var hin mesta þrifnaðar-
kona, verklagin og nýtin. Hún var mjög glaðsinna að eðlisfari og
Jóhannes Bjarnason