Sagnir - 01.06.1998, Page 11

Sagnir - 01.06.1998, Page 11
ungis í staðfestu afriti Jóns biskups Arasonar, Ara Jónssonar og Þormóðs Arasonar frá árinu 1543. En eins og gefur að líta í inngangsorðum Lönguréttarbótar breyttist hlutverk konungs að nokkru. Velferð ríkisins varð ofar öðru; öfugt við það sem áður tíðkaðist, þegar konungur sat í fyrirrúmi: vor skyllda krununnar vegna sem þar eiga med logum vunder at vera at huxa oc vita jslandz velferd gagn oc nytte so goder nytsamliger sider megi þar halldazt. enn skadliger osider megi aullungis afleggiazt.26 Ófriðar hafði gætt á Norðurlöndum um þessar mundir og segja má, að Langaréttarbót beri vott um viðleitni konungs að halda uppi lögum og reglu í landinu.27 Á ýmsu var tæpt í réttarbótinni: spillingu, svikum, ránum, banni við að halda útlæga menn, skora menn á hólm eftir drykkju og innheimta skatta í heimildarleysi. Ennfremur segir í 14. grein: „lysum vier alla eingelska menn oc irska sem til islandz sigla vtlæga oc frid- lausa oc þeirra skip oc goz fyrirgiort sem ecki hafa vort bref oc insigle fyrir sier oc i ollum stodum rett tekna.“28 Siglingar enskra farmanna til landsins höfðu aukist jafnt og þétt á fyrri hluta 15. aldar og deilur sprottið af. Taka enskra skipa á Eyrarsundi 1447 var svar konungs við fram- ferði Englendinga. Árið 1449 var gerður samningur milli Hinriks VI Frakkakonungs og Englendinga og Kristjáns I um Íslandssiglingar. Átti hann að gilda til ársins 1451. Með þess- um samningi var enskum kaupmönnum heimilt að sigla til Íslands gegn því að greiða skatt, sem hirðstjórum og sýslumönnum bar að krefja þá um. Ákvæði samn- ingsins þverbrutu Englendingar fljótlega og sigldu leyfislaust til landsins. Fór svo að árið 1453 bauð Krist- ján I Ísl- endingum að standa gegn enskum og skoskum farmönnum.29 Enn um sinn sigldu enskir til landsins í trássi við tilskipun konungs. Ekki var aftur sest að samningaborði fyrr en 1465 og þá í Hamborg. Hamborgarar höfðu hyllt Kristján I og óx þá konungi ás- megin. Voru Hamborgarar annálaðir í kaupsiglingum og hvatti konungur þá til að hefja siglingar til Íslands; þannig mætti hnekkja verslunarveldi enskra á landinu. Kristján I og Játvarður IV Englandskonungur gerðu með sér friðarsamning í Hamborg. Í honum voru enskar siglingar til Íslands enn sem fyrr skilyrtar. Verslun við landið var leyfð gegn því að Eyrarsundstollurinn væri greiddur. „Játvarður [...] staðfesti samningana, en slepp- ti úr greininni um að Englendingar væru skyldir til þess að gjalda Eyrarsundstollinn.“30 Ári seinna afturkallaði Kristján konungur öll siglingaleyfi enskra kaupmanna, sem þrátt fyrir bannið héldu áfram verslun við Ísland.31 Þegar hér kom sögu var Björn ríki hirðstjóri konungs yfir öllu landinu. Birni rann blóð til skyldunnar og gekk hann vasklega fram gegn „ólöglegri“ verslun Englendinga. Í einni slíkri ferð á Snæfellsnesi árið 1467, tóku enskir dug- garar hraustlega á móti hirðstjóranum og sveinaflokki hans, en svo segir í Skarðsárannál: Anno 1467. Sleginn í hel Björn bóndi hinn ríki ef engelskum í Rifi og 7 hans menn. Haldinn Þorleifur sonur hans og Ólöf hústrú, til þess hún leysti hann. Þorleifur hefndi, og voru margir engelskir drep- nir hér fyrir. Af þessu hlauzt fimm ára stríð milli Danmerkur og Englands [...].32 Annars er margt á huldu um bardagann og þann eftirmála sem honum fylgdi.33 „Ecki skal gráta Biörn bónda, heldr safna lidi“34 átti Ólöf ríka hafa mælt er henni var fenginn bóndinn sundur limaður frá Englendingum. Sögur herma, að enskir hafi svívirt lík hirðstjóra og gert ýmsan óskunda annan, en Ólöf hefnt manns síns grimmilega. Mælt er að hún tæki skip og „færi siálf til storræda med Þorleifi oc væri í hríngabryniu 10 Magnús Magnússon SAGNIR ‘ 98 Sögur herma, að enskir hafi svívirt lík hirðstjóra og gert ýmsan óskunda annan, en Ólöf hefnt manns síns grimmilega. Helstu ferðir Björns Þorleifssonar og fjölskyldu hans ?1450 Ferð til Grænlands 1440-44 Herferðir gegn Guðmundi Arasyni 1450-53 Situr um Skálholt 1467 Berst við enska 1459 Hnepptur í hald af Skotum 1459 Kristján I biður Karl IV um aðstoð til að fá Björn lausan 1459 Kemst til Hafnar og er sæmdur tign hirðstjóra 1471 Árni Björnsson fellur í orrustunni við Brunkeberg Hugmynd Sigurðar Guðmundssonar málara um skjaldarmerki Björns Þorleifssonar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.