Sagnir - 01.06.1998, Side 44

Sagnir - 01.06.1998, Side 44
43 falið að leita eftir allt að sjö milljón króna láni til fram- kvæmdanna.40 Jón hélt utan á vormánuðum í því skyni að afla lánsfjár og ræða við hugsanlega verktaka. Lá leið hans fyrst til Bretlands þar sem hann reyndi að vekja traust og áhuga fjár- málamanna á framkvæmdinni. Meðal þeirra gagna sem borgarstjóri hafði í farteskinu var lítill sexblöðungur, þar sem rekstrargrundvöllur og framtíðarmöguleikar virkjunarinnar voru raktir í stórum dráttum. Með öðrum orðum, sýnir plagg þetta hvernig bæjaryfirvöld reyndu að „selja“ útlendingum hugmyndina. Er í því efni rétt að hafa í huga að vatnsaflsvirkjanir eru afar staðbundin fyrirbæri sem verða ekki svo glatt hreyfð úr stað. Hönnun þeirra tekur að jafnaði fyrst og fremst mið af staðháttum á hverjum stað, auk þess sem drjúgur hluti fjárfestingarinnar er bundinn í steinsteypu, háspennulínum og kostnaði við staðbundnar undirbúningsrannsóknir og hönnun. Þegar kemur að því að meta hversu traustar virkjanir eru sem veð fyrir lánum, skiptir því mestu máli hversu stöndugt sjálft veitusvæðið er og hverjir vaxtarmöguleikar þess eru, fremur en verðgildi sjálfrar virkjunarinnar. Margt forvitnilegt kemur í ljós við lestur plaggsins. Athygli kann að vekja að útreikningarnir miðuðu ekki við að veruleg aukning yrði í orkunotkun til iðnaðar, eða að ráðist yrði í einhvers konar stóriðju á borð við áburðarframleiðslu.41 Ekki er heldur að sjá að bærinn hafi reiknað með verulega aukinni orkunotkun í kjölfar virkjunarinnar, heldur var væntanlegur vöxtur reiknaður út frá þróuninni undanfarin ár. Loks kemur það nokkuð á óvart, að í úttektinni var sérstaklega bent á þann vaxtarbrodd sem fælist í nærsveitum virkjunarinnar. Bent var á að íslenskur landbúnaður hagnýtti sér sáralítið kosti rafmagnsins og að auka mætti framleiðni hans til mikilla muna með því að nýta orku Sogsvirkjunar.42 Sýnir það glögglega hversu sterk staða landbúnaðarins var enn í hugum manna um miðjan fjórða áratuginn, að vænlegra þótti að freista erlendra fjárfesta með því sýna fram á kosti rafvæðingar í sveitum, en til að mynda í sjávarútvegi þar sem rafvæðing var skammt á veg komin og hugmyndir um vél- frystingu sjávarafurða rétt á umræðustigi. Svo dæmi sé tekið hafði Sænska frystihúsinu verið synjað um rafmagn frá Elliðaárstöð til framleiðslu sinnar.43 Til samanburðar höfðu einstaklingar í Færeyjum strax á öðrum áratugi aldarinnar hafið undirbúning að því að taka rafmagnið í þjónustu fiskvinnslunnar.44 Erfitt er að átta sig á því hversu umfangsmikla rafvæðingu aðstandendur Sogsvirkjunar sáu fyrir sér í sveitum Suðurlands, þar sem slíkar hugmyndir voru ekki útfærðar í bæklingnum. Ljóst er að til að nokkur glóra væri í slíkri framkvæmd, yrðu bændur að nota raf- magn a.m.k. til lýsingar, eldunar og húshitunar. Við sjálf landbúnaðarstörfin hefði rafmagn getað nýst við geymslu og vinnslu mjólkur, svo sem fyrir skilvindur og kælitæki. Jafnframt hefði komið til greina að láta rafmagnið knýja heyþurrkunarvélar, en þær voru alþekktar á Norðurlöndum. Hugmyndin um rafvæddar sveitir var ekki ný af nálinni og hafði verið til umræðu í Þýskalandi um áratugaskeið. Þar eygðu rafveitustjórar vænlega viðskiptavini, sem notuðu mest rafmagn að sumarlagi þegar almenn rafmagnsnotkun var í lágmarki. Var í því sambandi einkum horft til rafmagnsplóga, en þeir höfðu verið á markaði frá því fyrir aldamót. Þegar á hólminn var komið reyndust sveitirnar ekki sá öflugi markaður sem orkufyrirtækin höfðu vonast til. Ástæðan var sú að stórfelld rafvæðing þeirra krafðist margvíslegra skipu- lagsbreytinga, sem ekki nutu stuðnings íhaldssamari afla þjóðfélagsins.45 Undirtektir þær sem Jón Þorláksson fékk í Lundúnum voru fremur dræmar. Réði þar miklu að bresk stjórnvöld settu ströng skilyrði fyrir lánveitingum til útlanda, einkum ef ekki stóð til að verja þeim til kaupa á breskum fjárfestingavörum. Þurfti leyfi frá æðstu stöðum fyrir öllum slíkum viðskiptum.46 Taldi Jón að andstaða breska fjár- málaráðuneytisins hafi ráðið mestu um að lítið varð úr lánsfjáröfluninni þar. Þetta viðhorf kom fram í bréfi sem Jón ritaði meðan á utanförinni stóð, en samkvæmt því leist breskum fjár- málamönnum prýðisvel á áætlanir bæjarins og höfðu mikinn hug á að leggja til þeirra fé. Þar segist borgar- stjóri hafa talað við aðila frá fjármálafyrirtækinu Royal Exchange Assurance, en þeir talið lánsfjárupp- hæðina fullháa. Hins vegar hafi breskir bankamenn verið bjartsýnir á að afla mætti lánsfjár, ef samþykki stjórn- valda fengist.47 Bréf Royal Exchange Assurance til Jóns segja þó nokkuð aðra sögu. Þar var gagnrýnt að bærinn hyggðist ekki leggja neitt fjármagn í framkvæmdirnar, Sogsvirkjun Íslenskt fullveldi í 80 ár SAGNIR ‘ 98 Hér að ofan: Járnbraut á virkjunarsvæðinu. Til vinstri: Grunnur virkjunarinnar. Til hægri: Borað fyrir staura línunnar með þrýstilofti á Mosfellsheiði. Hugmyndin um rafvæddar sveitir var ekki ný af nálinni og hafði verið til umræðu í Þýska- landi um áratugaskeið.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.