Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Side 23
Jólasálmar Lúters
Euch ist ein Kindlein heut gebom,
Von einer Jungfrau auserkom,
Ein Kindelein so zart und fein.
Das soll eur Freud und Wonne sein.
Es ist der Herr Christ, unser Gott,
Der will euch fiihm aus aller Not,
Er will eur Heiland selber sein,
Von allen Síinden machen rein.
Er bringt euch alle Seligkeit,
Die Gott, der Vater, hat bereit,
Dass ihr mit uns im Himmelreich
Sollt leben nu und ewiglich.
So merket nu das Zeichen recht:
Die Krippen, Windelin so schlecht,
Da findet ihr das Kind gelegt,
das alle Welt erhalt und tragt.
Des lasst uns alle fröhlich sein
und mit den Hirten gehn hinein,
Zu sehn, was Gott uns hat beschert,
Mit seinem lieben Sohn verehrt.
Eitt Bam er ydur bored og skejnkt
su blezud Moderen oforkreinkt
fædde ydur þ fridast Jod
fagne og gleiest hiörtun god.
Sa er þah hæste Herra Gud
sem hialpar ydr i allre Neyd
Endurlausnare ydar kiær
af öllum Syndum frelsad fær.
Han giefur ydur Glede þa
sem Gud hefur tilreitt Himnum a
ad eilijft Lijfed eimeh þier
eignast mættud lijka sem vier.
Til Merkis munu þier fina þtta
mioa Jötu og Reifa lietta
Sa Heime öllum hialpar vidur
hn er þar lagdur i Stallen nidur.
Þui glediunst vier nu goder Men
og gaungum þar in aller seh
og skodum huad oss Skaparen mætur
Skiepnum sijnu hier veitast lætur.
(Sálmabók Guðbrands)
Þessi fyrstu 6 erindi verða að nægja hér til að sýna efnistök og
vinnubrögð höfundar og þýðanda þessa víðfræga sálms.
Aldamótabókin fellir þennan sálm Lúters niður, en hann kemur aftur í
sjónmál í Nýjum viðbæti 186117 í þýðingu sr. Stefáns á Kálfatjöm, Af
himnum ofan boðskap ber. Hér hefir hann verið styttur um þriðjung, sleppt
er 3., 4., 7., 11. og 14. versi. Sálmabókin 1871 tekur sálminn upp óbreyttan
eftir Viðbætinum. Og enn er hann í sálmabókinni 1886, en nú með nokkrum
lagfæringum þýðandans. Helztu breytingar em í 1., 6., og 8. erindi, en
aðrar óverulegar. Og er skemmst frá því að segja, að síðan hafa þessi 10
erindi sálmsins haldizt óbreytt í íslenzkum sálmabókum til þessa dags.
Baksvið þessa sálms er hnýsilegt, og er því ekki úr vegi að fara um það
nokkrum orðum, raunar full nauðsyn á til að skilja hann til hlítar, eins og
hann er í upphaflegri gerð.
Það gefur auga leið, að margvíslegir siðir hlutu að tengjast helgihaldi
jóla. Löngu fyrir daga Lúters höfðu komið upp helgileikir í kirkjunni, svo
að alþýða manna ætti sem auðveldast með að lifa sig inn í atburðarás
sögunnar helgu á jólanótt. Þannig var um skeið komið fyrir jötu frammi
17 Mýr viðbætir við hina evangelisku sálmabók kom út í 2 útgáfum, 1861 og 1863. Úr
honum voru margir sálmar teknir í sálmabókina 1871.
21