Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Side 52
Einar Sigurbjömsson
Guðspjallið
Lífsferill Jesú, guðspjallið, afhjúpar leyndardóm bæði Guðs og
manns. „GuðspjaU“ (af góðspjall - spjall = tíðindi) merkir
„fagnaðarerindi“. í guðspjallinu er oss birt og boðað, hvert svarið sé við
tilvistarspumingunni. Svarið er: Jesús Kristur. í honum lýkst upp
merking tilverunnar, því að hann afhjúpar leyndardóm Guðs og manns.
Vegna þessa skipar Biblían þann sess í kristinni trú, sem hún gerir. Ef
kristin trú væri samsafn kenninga um eðli manns og heims, skipti engu
máli, hvort Jesús hefði lifað eða ekki, því að „eilíf sannindi“ um lífið og
tilveruna þarf út af fyrir sig ekki að rekja til ákveðinna höfunda.
Kenningar Platons geta t.d. staðist, jafnvel þótt sannað væri, að aldrei hafi
verið uppi heimspekingur að nafni Platon. Sama máli gegnir um Buddha
og Karl Marx. Kristin kenning stenst hins vegar ekki, ef Jesús hefur ekki
verið til, því að kenningar Jesú standast ekki án trúar á hann og trú á hann
getur engin verið, ef Jesús hefur aldrei verið til. Kenningar Jesú fela
nefnilega í sér kröfu hans um að vera Kristur og Drottinn og þeir titlar
boða engin „eilíf sannindi“ um tilveruna, heldur fela þeir í sér þessa
yfirlýsingu:
Það er persónubundinn hugur, sem stýrirheimi öllum, sá hugur
er Guð; það sem öllu varðar ílífinu, er að samræma huga sinn
Guði, feta þann veg, sem hann sjálfur hefur lagt, ogjátast þeim
krafti, sem hann sjálfur gefur. Hugurinn er Guð Faðir,
samræming hugans Guði er trúin, vegurinn er Guð Sonur og
krafturinn er Guð Heilagur andi.
Þetta upplýsir saga Jesú í guðspjöUunum. Og saga Jesú byggist á sögu
ísraelsþjóðarinnar í Gamla testamentinu. Sú saga rætist í Jesú, sem lýkur
upp merkingu þess. Viku eftir viku og ár eftir ár er saga Jesú lesin og
útlögð í kirkju Krists, af því að hún afhjúpar leyndardóm Guðs og manns.
50