Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Qupperneq 60
Jón Sveinbjömsson
(symbouleutikon)32 og „tækifæris“ eða „lofræðu“ (epideiktikon).33 Hver
um sig gerir ráð fyrir ákveðnum aðstæðum og væntingum þeirra sem á
hlýddu. Menn telja einkum að bréf Nýja testamentisins tilheyri hinni svo
nefndu „epideiktísku“ orðræðu, en hún varð aðallega form uppfræðslu og
hvatningar.34
Segja má að áhugi ritskýrenda á aðferðum mælskulistar hafí í
auknum mæli beint athygli manna að áhrifum textans á lesandann, en
hingað til hafa fræðimenn fyrst og fremst beitt bókmenntagreiningu og
aðferðum málvísinda35 á byggingu36 textans sjálfs. En margir þeir sem
kanna áhrif textans á lesandann virðast einskorða sig við upphaflega
lesendur og aðstæður þeirra en fjalla síður um áhrif textans á nútíma
lesendur.37
í þessum kafla hefur fyrst og fremst verið fjallað um höfundinn og
aðferðir hans við að semja textann og beita honum þannig að hann nái til
viðtakandans. Nútíma bókmenntaaðferðir og fomar kennslubækur í
mælskulist og rökfræðirit geta hjálpað okkur til að nálgast þetta verkefni
og varpað ljósi á það.
Lesandinn og textinn
Að hve miklu leyti getum við gert okkur mynd af upphaflegum
lesendum fomra texta út frá þeim heimildum sem við höfum? Hver var
félagsleg aðstaða þeirra, að hve miklu leyti mótaði samfélagið
lestrarvenjur þeirra og hæftii að hlýða á, og til hvers ætlaðist höfundur af
lesendum sínum þegar hann samdi texta sinn? Getum við á tuttugustu öld
sett okkur í spor þeirra manna sem lifðu á fyrstu öld?
32 Kennedy, sama rit, bls. 19-23; Lausberg, s.r. 129n.
33 Kennedy, sama rit, bls. 23-27; Lausberg, s.r. 129-138.
34 C. Perelman, Realm of Rhetoric, 19 - 20.
35 í þessu sambandi má benda á fróðlega yfirlitsgrein eftir dr. Birger Olsson "A
Decade of Text-Linguistic Analyses of Biblical Texts at Uppsala," Studia Theolocica
39 (1985) 107-126. Sjá einnig ýmsar greinar í tímaritinu Linguistica Biblica útg. af E.
Giittgemanns, og: A. M. Johnson, Bibliography of Semiological and StructuralStudies
ofReligion (Pittsburgh: Barbour, 1979).
36 Sjá t.d. A. & D. Patte, Stnictural Exegesis: From Theory to Practice. (Philadelphia,
Fortress, 1978); B.W. Kovacs, "A Joint Paper by the Members of the Structuralism
and Exegesis SBL Seminar," Seminar Papers, Society of Biblical Literature, Annual
Meeúng 1982.
37 B. Wiklander, Prophecy as Literature. A Text-Linguistic and Rhetorical Approach to
Isaiah 2-4, (Coniectanea Biblica OT, 22, Malmö: Almqvist & Wiksell 1984); B.C.
Johanson, To AU the Brethren. A Text-Linguistic and Rhetorical Approach to I
Thessalonians, (Coniectanea Biblica NT, 16, Stockholm: Almqvist & Wiksell 1987);
V. K. Robbins, Jesus the Teacher. A Socio-Rhetorical Interpretation of Mark
(Philadelphia: Fortress Press 1984).
58