Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Page 108
Þórir Kr. Þórðarson
Á Hólum lögðu menn fram stóran skerf til endurvakningar hins
kristna íslands með útleggingu og prentun „Allrar Heilagrar Ritningar
útlagðrar á Norrænu“ og íslenskri endurreisn í skólamálum. Áherslan lá
á fræðslu og menntun hvers og eins einasta manns og konu til þess að
gera þau betur hæf til virkrar þátttöku í kristnu samfélagi. Hvert eitt
starf, hverju nafni sem nefhdist, var köllunarstarf, jafnt bóndans sem
biskupsins. Á Hólastað var starfað í tilbeiðslu, í ástundun helgra fræða og
þjónustu við náungann.
í þessu er samhengið í sögu Hóla fólgið.
Orð ritningarinnar, kenningarinnar og tilbeiðslunnar flytur
mönnunum kraft og visku. Það er orkustöð og viskubrunnur. — En það
er einnig orð sköpunarinnar. Það talar til mannsins sem skepnu, sem
skapaðrar vera. Og þar sem maðurinn er skapaður af Guði ber hann þá
ábyrgð á herðum sér að beita skynseminni, sem er Guðs gjöf, til þess að
skilja tímanna tákn (Matt. 16.3).
En hver era þá teikn okkar samtíðar?
n
Gildismat ungs fólks
Ég las nýlega grein eftir þýskan diplómat.1 Þar er lýst afstöðu ungu
kynslóðarinnar á meginlandi Evrópu til samtíðarinnar og eigin
framtíðar. Er þar að fínna athyglisverðar niðurstöður kannana, þótt vart
eigi þær allar við hér heima.
Viðhorf ungs fólks á íslandi era um margt ólík afstöðu jaíhaldra
þeirra á meginlandinu, þar sem atvinnuleysi hrjáir mannfólkið og leiðir
fram skuggahliðar tilverunnar. Ungt fólk á íslandi er jákvætt í garð
lífsins, bjartsýnt um eigin framtíð. — Engu að síður er hollt að gefa
gaum að viðhorfum ungs fólks á meginlandi Evrópu, ef ske kynni að við
þekktum sjálf okkur í skuggsjá næstu nágranna.
Þeir sem rita um viðhorf fólks tala gjama inn gildismat. Gildismat
er eins konar heildstætt kerfi hugmynda og afstöðu, jafhvel fordóma.
Þetta heildstæða hugmyndakerfí er orsakavaldur um athafhir manna:
Menn sækjast eftir því sem þeir telja einhvers virði, halla sér að því sem
þeir treysta, en forðast það sem þeir tortryggja. Sé gildismatið
einvörðungu peningalegs eðlis, keppast menn eftir að verða ríkir, sé það
menningarlegt, leitast menn við að efla það sem til mennsku heyrir.
Efnahagslegt gildismat og menningarlegt þurfa ekki að vera tvær
andstæður.
Vestræn menning var öldum saman heildstætt og lífrænt kerfi
gildismats. Um það leyti sem biskupssetur var sett á stofh á Hólum, og
1 í henni (Wilfried A. Hofmann, „Whence the threat? The successor generation and the
equidistance syndrome." Nato Review, No. 3, júní 1987, s. 8-13) er getið
rannsóknastofnana sem kannað hafa viðhorf ungs fólks, „The Harris polling
organization" og Allenbach stofnunarinnar.
106
j