Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 133
Oddný á Vöðlum
Vöðlaskriður og skútinn.
Ljósm.: Hrafnkell A. Jónsson.
Jón Þorleifsson
Jón Þorleifsson fæddist á Krossanesi í
Hólmasókn 6. september 1793, foreldrar
hans voru hjónin Þorleifur Stefánsson f.
1761, og Þuríður Jónsdóttir f. 1763 Þau
bjuggu lengst í Ormsstaðahjáleigu í Norð-
firði. Þorleifur naut álits og var hreppstjóri í
Norðfirði, hann var góður bátasmiður og
var oft kallaður Þorleifur skipasmiður. Jón
ólst upp með foreldrum sínum í Orms-
staðahjáleigu og þar var hann vinnumaður
eftir að faðir hans flutti að Teigagerði í
Reyðarfirði. Arið 1819 er hann vinnu-
kippt undan tilveru hennar, hún orðin
ekkja með 4 börn í ómegð og lands-
drottinn hennar Kolfreyjustaðarkirkja.
Það var alveg ljóst að þótt ungu hjónin
hefðu komist bærilega af miðað við
marga frumbýlinga þá voru sveitar-
stólpar þess tíma svo ábyrgir að for-
sjárlaus ekkja með ómegð gat ekki
búist við að fá byggða jörð og þá blasti
ekki annað við en að sundra barna-
hópnum, þar sem þau áttu von í mis-
góðri vist.
Þann 12. desember 1823 var Páll
Jónsson bóndi á Vöðlum jarðsunginn
á Hólmum.
Nýtt hjónaband
En lífið hélt áfram og Oddný
Andrésdóttir þurfti að ráða fram úr því
hvemig hún bjargaði sér og bömum
sínum frá því að feta stigu hrepps-
ómagans. I ljósi þess verður að skoða
framhald sögu Oddnýjar. Þann 3.
nóvember 1824 eignast hún dóttur
sem skírð er Kristín, faðir hennar er
Jón Þorleifsson og þau Oddný talin
hjón á Vöðlum. Samkvæmt hreppsbók
þá er Oddný talin fyrir búi 1825 til
1826 en Jón Þorleifsson er ekki talin bóndi
fyrr en 1826. Af þessu ræð ég það að Jón og
Oddný hafi ekki gifst fyrr en 1826. Eins og
fyrr sagði vantar í kirkjubækur Hólma og
verður að geta í eyðurnar. Þrátt fyrir að
kirkjubókin telji Oddnýju og Jón hjón þegar
Kristín er skírð þá trúi ég frekar hrepps-
bókinni sem telur Oddnýju fyrir búi árið
1825, en það er óhugsandi að hún hafi verið
skráð fyrir búinu ef hún var þá gift kona.
Það virðist hins vegar til siðs hjá sumum
prestum að skrá fólk sem var í óvígðri
sambúð hjón, ef sambúðin var presti þókn-
anleg þá var talað um „ógift hjón.“
131