Jökull - 01.12.1985, Side 103
skala. Slíkir skjálftar, 4.5-6 stig, eru reyndar ekki
óalgengir í Jan Mayen þverbrotabeltinu, sem er þarna
strax norðan við eyna. Þeir eru af hreinum tektónískum
uppruna og hafa brotlausnir, sem sýna „strike-slip“
misgengi (sniðgengi) með stefnu 10—30° norðan við
vestur (Bungum og Husebye, 1977).
Stefna gossprungunnar, sem opnaðist nú og sumra
hinna eldri er þarna finnast, er nokkurn veginn mitt á
milli stefnu Jan Mayen þverbrotabeltisins og Jan Mayen
eldvirknistefnunnar. Jarðskjálftarnir, sem fylgdu
gosinu, minna meir á tektóníska skjálfta en gosskjálfta.
Því má ætla að skjálftarnir séu vegna „strike-slip“
spennulosunar í suðurjaðri þverbrotabeltisins, en opni
leið til yfirborðs fyrir kviku, sem er til staðar ofarlega og
yst í kvikukerfinu. Ef svo er, er hér um að ræða gos í
leku þverbrotabelti (leaky fracture zone eruption) frem-
ur en gos úr hinu eiginlega kvikukerfi Jan Mayen. Sú
væga tilhneiging til breyttrar goshegðunar og bergsam-
setningar, miðað við Jan Mayen í heild, sem einkennir
NA-horn Jan Mayen, gæti stutt þessa túlkun og
jafnframt bent til þess að þverbrotabeltið sem slíkt hafi
einhver áhrif á efnasamsetningu kvikunnar, sem þar
verður til og þróast.
þakkir
Norrænu eldfjallastöðinni er þakkað fyrir flugferðina
norður og aðra aðstöðu. Starfsfélögum á stofnuninni eru
þakkaðar gagnlegar umræður og aðstoð, einkum Guð-
mundi E. Sigvaldasyni og Guðrúnu Larsen, sem lásu
yfir handrit. Páli Einarssyni, Ragnari Stefánssyni og
Barða Þorkelssyni eru þakkaðar upplýsingar um jarð-
skjálftana, Ragnari Axelssyni Ijósmyndara eru þökkuð
not af myndasafni úr flugferðinni og Atla Rúnari Hall-
dórssyni fréttamanni hjálp við að rekja fréttir af atburð-
unum og kanna heimildagildi þeirra.
HEIMILDIR
Adresseavisen mánudaginn 7. jan. og þriðjudaginn 8.
jan. 1985.
Aftenposten þriðjudaginn 8. jan. 1985.
Arbeiderbladet mánudaginn 7. jan. og þriðjudaginn 8.
jan. 1985.
Bungum, H. og E.S. Husebye, 1977: Seismicity of the
Norwegian Sea: The Jan Mayen Fracture Zone.
Tectonoph. 40: 351-360.
Hawkins, T.R.W. og B. Roberts, 1963: Agglutinate in
North Jan Mayen. Geol. Mag. 100: 156—163.
Imsland, P., 1978: The geology of the volcanic island
Jan Mayen, Arctic Ocean. Nordic Volcanol. Inst.,
Res. Rep. 7813: 74 pp.
Imsland, P., 1984: The petrology, mineralogy and evo-
lution of the Jan Mayen magma system. Vísindafél.
íslendinga, Rit 43: 332 bls.
Norsk Polarinstitutt, 1959: Topographic map of Jan
Mayen, Blad 2 Nord-Jan. 1:50.000.
Roberts, B. og T.R.W. Hawkins, 1965: The geology of
the area around Nordkapp, Jan Mayen. Norsk
Polarinst. Árbok 1963: 24-47.
Siggerud, T., 1972: The volcanic eruption on Jan Mayen
1970. Norsk Polarinst. Árbok 1970: 5-18.
THE VOLCANIC ERUPTION
ON JAN MAYEN
IN JANUARY 1985
Páll Imsland
University of lceland
101 Reykjavík, Iceland
ABSTRACT
A volcanic eruption started on Jan Mayen on the 6th of
January 1985. The eruption occurred on a 1 km long
fissure trending around 15° south of W at the extreme
NE-corner of the island, on the lower flanks of Beeren-
berg. It extended from sea-level and up to more than 200
m height. The eruption was short, lasting only around
35 —40 hours. It delivered an estimated amount of 7
million m3 of magma to the surface. This did apparently
mostly form a thin lava which covers 1 km2 ofwhich 0.24
km2 advanced into the sea to form new land. When
observed from the air on the 7th ofjanuary, the eruption
was just fading out. The remaining activity was slight
spattering in two craters, a steady brown eruption col-
umn, but no flowing lava. Though short, this eruption
was intense while it lasted. The extrusion rate was on the
average 49—56 m3/sec on the 1 km longfissure which was
most productive in the upper half of its length.
Considerable seismic activity accompanied the erup-
tion. Among the earthquakes were several apparently
reaching between 4.5 and 5 on the Richter scale, which is
unusually strong for volcanic earthquakes. Immediately
north ofthe eruption site is theJan Mayen Fracture Zone
striking around 25° north of W. The general trend of the
volcanic features on the island itselfis SW-NE. The trend
of the new fissure is thus midway between the general
trend of the island volcanism and that of the fracture
zone. This and the strong earthquakes might indicate that
the eruption could be a leaky fracture zone eruption
rather than an eruption from the Jan Mayen magma
system proper, initiated by strike-slip stress release
associated with the strong earthquakes at the junction of
the fracture zone and the volcanic island magma system.
JÖKULL 35. ÁR 101