Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Blaðsíða 6
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 20112
Í fyrsta skipti í sögu ráðstefnu hjúkrunar hérlendis var ákveðið að gefa út greinasafn
með ritrýndum fræðigreinum. Öllum sem vildu senda inn ágrip af erindum fyrir
ráðstefnuna Hjúkrun 2011 var boðið að reyna að fá grein byggða á erindinu birta í
Tímariti hjúkrunarfræðinga.
Áhuginn var meiri en skipuleggjendur þorðu að vona. Alls eru birtar í þessu tölublaði
ellefu rannsóknagreinar. Greinarnar bera þess vitni að vísindavinna hjúkrunar
fræðinga er margvísleg og fjölbreytileg. Greinarnar fjalla meðal annars um forprófun
á spurningalistum til að nota í klínískri vinnu, hvernig nota megi tóbaksvarnir í
grunnskólum, starfsmannaveltu meðal hjúkrunarfræðinga á Landspítala og fjölþjóðlega
rannsókn á húð og lífsgæðum stómaþega. Þær rannsóknir sem þessar greinar
byggjast á sýna gróskuna í rannsóknum og þróunarvinnu hjúkrunarfræðinga. Þegar
grein birtist í vísindatímariti er vinnsluferli handrits oft hálft ár eða lengra. Hér liðu
einungis tæpir 3 mánuðir frá því að handrit var sent inn til birtingar þar til það er nú
komið út á prenti sem ritrýnd fræðigrein. Að baki því var samstillt átak margra aðila.
Því viljum við ritstjórar ritrýndra fræðigreina nota tækifærið og þakka öllum sem komu
að þeirri vinnu. Fyrst og fremst viljum við þakka þeim ritrýnum sem lögðu fram vinnu
sína við að ritrýna fræðigreinarnar. Það sýnir velvilja þeirra að hægt var að hringja
í þá, jafnvel til útlanda þar sem þeir voru í sumarfríi með fjölskyldu sinni, og enginn
skoraðist undan að gera það sem um var beðið. Ritnefnd naut ómetanlegrar aðstoðar
Helgu Garðarsdóttur og Halldórs Þráinssonar. Þau sáu meðal annars um samskipti við
höfunda og prófarkalestur. Ritstjóri Tímarits hjúkrunarfræðinga, Christer Magnusson
hefur fylgst vel með þessari vinnu og aðstoðað við að tryggja útgáfu á tilsettum tíma.
Án góðrar samvinnu allra þessara aðila hefði þetta varla tekist.
Það er mat ritstjóra ritrýndra fræðigreina að margt sé hægt að læra af þessari vinnu.
Mikilvægasti lærdómurinn er þó sá að gerlegt er að birta ritrýndar vísindagreinar í
tengslum við hjúkrunarráðstefnur hérlendis. Fagstétt sem á slíkan mannauð sem birtist
í fjölda og fjölbreytni innsendra ágripa á ráðstefnuna Hjúkrun 2011 þarf ekki að kvíða
framtíðinni.
Árún K. Sigurðardóttir og Þóra Jenný Gunnarsdóttir
voru ritstjórar ritrýnda fræðigreina vegna ráðstefnunar
Hjúkrun 2011.
Pistill ritnefndar Hjúkrunar 2011
FYRSTA GREINASAFN
HJÚKRUNARRÁÐSTEFNU Á ÍSLANDI