Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Blaðsíða 69
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 2011 65
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
Allar stúlkurnar nema ein áttu fráskilda foreldra og er það í
samræmi við fyrri rannsóknir sem bent hafa á að unglingsmæður
komi frekar úr brotnum fjölskyldum (Hao o.fl., 2007). Helmingur
mæðranna taldi sig hafa glímt við þunglyndiseinkenni auk
annarra heilsufarsvandkvæða sem komu upp hjá þátttakendum
og börnum þeirra. Þetta styður niðurstöðurnar fyrri rannsókna
(Chen o.fl., 2007; Thome, 1998). Í ljósi þess að rannsóknir hafa
sýnt að góður stuðningur dregur úr líkum á þunglyndi, kvíða
og streitu hjá móðurinni (Devereux, o.fl., 2009) er mikilvægt að
styðja vel við bakið á ungum mæðrum og foreldrum, aðstoða
þá við að bera kennsl á og nýta sér nauðsynlega hjálp og
stuðning og veita þeim markvissa einstaklingshæfða þjónustu. Í
yfirlitsgrein Latrourneau og félaga (2004) kemur fram að ekki sé
einungis mikilvægt að horfa á fjölda stuðningsaðila heldur skipti
gæði stuðningsins ekki síður máli. Rannsóknir á áhrifum faglegs
stuðnings og áhrif fagmanna á þróun stuðningsnets innan
fjölskyldu unglingsmæðra er ábótavant en talið er mikilvægt
að fagaðilar styðji við þróun jákvæðra tengsla í fjölskyldum
þeirra og hvetji aðstandendur unglingsstúlkna til þess að veita
þeim virkan stuðning í aðlögun þeirra að krefjandi verkefnum
móðurhlutverksins (Devereux, o.fl., 2009; Latrourneau,o.fl.,
2004).
Ungu mæðurnar bjuggu oftast hjá mæðrum sínum og allar utan
ein voru í föstu sambandi með barnsföður sínum. Niðurstöður
rannsóknarinnar um stuðning mæðra og barnsföður
samræmast vel fyrri rannsóknum þar sem mæður voru oftast
tilnefndar sem helsti stuðningsaðilinn og barnsfeður ef þeir eru
til staðar komu þar næst á eftir (Judith, 2006; Latrourneau
o.fl., 2004; Maposa og SmithBattle, 2008). Ungu mæðurnar
sem tóku þátt í þessari rannsókn stóðu frekar vel hvað varðaði
félagslegan stuðning frá fjölskyldum þeirra. Áhugavert hefði
verið að fá breiðari hóp inn í rannsóknina sem býr við erfiðari
félagslegar og fjárhagslegar aðstæður.
Ekki er ljóst hvernig heilbrigðiskerfið heldur utan um ungar
mæður en niðurstöður rannsóknarinnar gefa tilefni til nánari
úttektar á barneigna og samfélagsþjónustu við ungar mæður.
Hugsanlega er þörf á endurskoðun með það í huga að stuðla
að frekari þróun faglegra leiðbeininga og sérhæfðari móttöku
og eftirlits er snýr að þessum hópi sérstaklega.
HEIMILDIR
American Academy of Pediatrics. (2001). Care of adolescent parents and
their children. Pediatrics, 107(2), 429434.
Anderson, C., og McGuinness, T. M. (2008). Do teenage mothers
experience childbirth as traumatic? Journal of Psychosocial Nursing and
Mental Health Services, 46 (4), 2124.
Bender, S.S., Geirsson, R.T., og Kosunen, E. (2003). Trends in teenage
fertility, abortion and pregnancy rates in Iceland compared with
other Nordic countries, 197699. Acta Obstetricia et Gynecologica
Scandinavia, 82 (1), 3847.
Benson, M. J. (2004). After the adolescent pregnancy: Parents, teens, and
families. Child and Adolescents Social Work Journal, 21 (5), 435454.
Chen, X. K., Wen, S. W., Fleming, N., Demissie, K., Rhoads, G. G., og
Walker, M. C. (2007). Teenage pregnancy and adverse birth outcomes:
a large population based retrospective cohort study. International Journal
of Epidemiology, 36, 368373.
Cox, J. E., Buman, M., Valenzuela, J., Pierre Joseph, N., Mitchell, A.,
og Woods, E. R. (2008). Depression, parenting attributes, and social
support among adolescent mothers attending a teen tot program.
Journal of Pediatric and Adolescent Gynecology, 21(5), 275281.
de Jonge, A. (2001). Support for teenage mothers: a qualitative study
into the views of women about the support they received as teenage
mothers. Journal of Advanced Nursing, 36 (1), 4957.
Devereux, P.G., Weigel, D.J., BallardReisch, D., Leigh G., og Cahoon,
K.L. (2009). Immediate and longer term connections between support
and stress in pregnant/parenting and nonpregnant/nonparenting
adolescents. Child and Adolescent Social Work Journal, 26, 431446.
Dykes, F., Moran, V.H., Burt, S., og Edwards, J. (2003). Adolescent mothers
and breastfeeding : Experiences and support needs – a exploratory
study. Journal of Human Lactation, 19(4), 391341.
Hagstofa Ísland (2011). Lifandi fæddir, öll börn og frumburðir eftir aldri
móður 1971-2008. Sótt 23. júní 2011 á http://www.hagstofa.is/Hagtolur/
Mannfjoldi/Faeddir og danir.
Hao, L., Astone, N. M., og Cherlin, A. J. (2007). Effects of child support and
welfare policies on nonmarital teenage childbearing and motherhood.
Population Research and Policy Review, 26 (3), 235257.
Judith, H. (2006). The voices of teen mothers: The experience of repeat
pregnancy. The American Journal of Maternal/Child Nursing, 31 (4), 243
249.
Kvale, S. (1996). Interviews. An introduction to qualitative research
interviewing. Lundúnir: Sage Publication.
Latrourneau, N. L., Stewart, M. J., og Barnfather, A. K. (2004). Adolescent
mothers: support needs, resources, and supporteducation interventions.
Journal of Adolescent Health, 35 (6), 509525.
Logsdon, M. C., Hertweck, P., Ziegler, C., og PintoFoltz, M. (2008).
Testing a bioecological model to examine social support in postpartum
adolescents. Journal of Nursing Scholarship, 40 (2), 116123.
Maposa, S., og SmithBattle, L. (2008). Preliminary reliability and validity of
the grandparent version of the grandparent support scale for teenage
mothers (GSSTMG). Journal of Family Nursing, 14 (2), 224241.
Marga Thome (1998). Þunglyndiseinkenni og foreldrastreita hjá íslenskum
mæðrum með óvær ungbörn. Læknablaðið, 84, 838845.
Molina, R. C., Roca, C. G., Zamorano, J. S., og Araya, E. G. (2009). Family
planning and adolescent pregnancy. Best Practice & Research Clinical
Obstetrics & Gynaecology, 24 (2), 114.
Munhall, P.L. (1994). Revisioning phenomenology, nursing and health
science research. New York: National League for Nursing Press.
Rubin, H.J., og Rubin, I.S. (1995). Qualitative interviewing, The art of hearing
data. Lundúnir: Sage Publication.
Rúnar Vilhjálmsson (1989). Um rannsókn á eðli og þýðingu samhjálpar.
Íslensk félagsrit, 1, 732.
Sadler, L. S., Swartz, M. K., RyanKrause, P., Seitz, V., MeadownOliver,
M., Grey, M., og Clemmens, A. D. (2007). Promising outcomes in teen
mothers enrolled in a schoolbased parent support program and child
care center. Journal of School Health, 77 (3), 121130.
Sanders, C. (2003). Application of Colaizzis´s method: Interpretation of an
auditable decision trail by a novice researcher. Contemporary Nurse, 14
(3), 292302.
Sigfríður Inga Karlsdóttir, Hjálmar Freysteinsson, Sigríður Sía Jónsdóttir
og Margrét Guðjónsdóttir (2007). Andleg líðan kvenna á Akureyri eftir
fæðingu. Þunglyndiseinkenni og foreldrastreita við þriggja mánaða aldur
barns. Ljósmæðrablaðið, 85, 614.
Wahn, E. H., og Nissen, E. (2008). Sociodemographic background, lifestyle
and psychosocial conditions of Swedish teenage mothers and their
perception of health and social support during pregnancy and childbirth.
Scandinavian Journal of Public Health, 36 (4), 415423.