Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Blaðsíða 58
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 201154
ÚTDRÁTTUR
Tilgangur: Að meta lífsgæði stómaþega og kanna tíðni og
alvarleika húðvandamála í kringum stóma og áhrif SenSura
stómabúnaðar á þessa þætti.
Aðferð: Fjölþjóðleg rannsókn á 3.017 stómaþegum í 18 löndum,
þar af 73 á Íslandi. Í tveimur viðtölum með 68 vikna millibili voru
lífsgæði metin með Stóma QoL spurningalistanum, húð í kringum
stóma metin með Ostomy Skin Tool (OST) og þátttakendur
spurðir hvort þeir ættu við húðvandamál að etja. Marktæknimörk
í tölfræðigreiningum voru sett við p≤0,05.
Niðurstöður: Í fyrra viðtali greindust húðvandamál hjá 60%
þátttakenda. Af þeim töldu 53% sig eiga við húðvandamál að etja.
Tíðni húðvandamála hafði fylgni við hækkandi aldur (p=0,025)
og lengri tíma frá aðgerð (p=0,021). Ástand húðar var betra hjá
einstaklingum sem notuðu eins hluta stómabúnað (p=0,024)
og hjá þeim sem notuðu flata plötu (p=0,002). Stóma QoL stig
voru fleiri eftir því sem ástand húðar var betra. Sá þáttur sem
hafði mesta fylgni við ástand húðar og lífsgæði var leki hægða
undir plötu. Algengustu ástæður húðvandamála voru ertisnerti
húðbólga og áverkar. Meðal Stóma QoL stig og ástand húðar var
marktækt betra í viðtali 2 (p<0,0001).
Ályktanir: Húðvandamál eru algeng meðal stómaþega en
einungis hluti þeirra gerir sér grein fyrir því. Niðurstöður benda til
þess að sambland af ráðleggingum hjúkrunarfræðings og notkun
á SenSura stómabúnaði geti haft áhrif á ástand húðar og lífsgæði
stómaþega. Stöðluð matstæki eins og OST og Stóma QoL geta
gert hjúkrunarmeðferð stómaþega markvissari og stuðlað að
bættum lífsgæðum þeirra.
Lykilorð: Stóma, lífsgæði, húðvandamál, stómahjúkrun.
INNGANGUR
Árlega eru gerðar um 6080 stómaaðgerðir á Íslandi. Íslenskir
stómaþegar eru um 500 en nákvæmur fjöldi þeirra er ekki
þekktur (Geirþrúður Pálsdóttir, munnleg heimild, 1. júlí 2011). Í
stómaaðgerð er hluti ristils (ristilstóma), garna (garnastóma) eða
þvagleiðara (þvagstóma) leitt út í gegnum kviðvegginn. Þar til
gerður poki er límdur á húðina yfir stómað til að taka á móti þvagi
eða hægðum. Algengustu ástæður þess að einstaklingur fær
stóma eru bólgusjúkdómar og illkynja sjúkdómar í meltingarvegi
og þvagfærum og getur þá verið um að ræða varanlegt eða
tímabundið stóma (Colwell o.fl., 2001; Lyon o.fl., 2000).
Stómaaðgerðir og ýmis búnaður tengdur stóma hefur þróast mikið
síðastliðin ár. Þrátt fyrir það þarf stómaþegi oft á tíðum að takast
á við margvíslega fylgikvilla. Líkamlegir fylgikvillar geta meðal
annars verið kviðslit, þrengingar, inndráttur eða framfall stóma.
Leki hægða undir stómaplötu er einnig þekkt vandamál (Colwell
Margrét Hrönn Svavarsdóttir, heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.
Oddfríður Jónsdóttir, Landspítala
Geirþrúður Pálsdóttir, Icepharma
ÁSTAND HÚÐAR OG LÍFSGÆÐI STÓMAÞEGA
ENGLISH SUMMARY
Svavarsdottir, M. H., Jonsdottir, O., Palsdottir, G.
The Icelandic Journal of Nursing (2011), 87 (4), 54-59
QUALITY OF LIFE AND PERISTOMAL SKIN
CONDITION IN PEOPLE WITH OSTOMY
Purpose: To assess quality of life, frequency and severity
of peristomal skin disorder among ostomates and explore
the impact of SenSura stoma appliance.
Method: Multinational study on 3.017 ostomates in 18
countries, thereof 73 from Iceland. In two clinical visits,
6–8 weeks apart, participants filled out the StomaQoL
questionnaire, peristomal skin conditions were assessed
using the Ostomy Skin Tool (OST) and participants were
asked if they had peristomal skin complications. Statistical
significance was set at p≤0.05.
Results: At vistit 1, 60% of participants had a skin
disorder, of those 53% considered themselves to have a
skin disorder. There was a significant correlation between
skin problems and increasing age (p=0.025) and longer
time from surgery (p=0.021). The skin condition was better
on those using 1piece appliance (p=0.024) and on those
using flat baseplate (p=0.002). QoL score increased with
improved skin condition. Leakage had significant effect
on QoL and skin condition. The most common cause of
skin disorder was irritant contact dermatitis followed by
mechanical trauma. There was a significant improvement in
skin condition and QoL between visit 1 and 2 (p<0.0001).
Conclusions: Peristomal skin problems are common
among individuals with stoma who often are not aware
of the problem. The results indicate that a combination of
evidencebased nursing and SenSura stoma appliances
can improve skin condition and QoL for people with stoma.
Standardised tools like OST and Stoma QoL can help
improve nursing treatment, peristomal skin condition and
QoL.
Key words: Ostomy, quality of life, skin ulcer, ostomy
nursing.
Correspondance: mhs@unak.is
o.fl., 2001; Gooszen o.fl., 2000; Robertson o.fl., 2005)
sem getur valdið ertingu og alvarlegum húðvandamálum.
Margar rannsóknir hafa sýnt að húðvandamál eru algeng
meðal stómaþega (Colwell o.fl., 2001; Gooszen o.fl., 2000;