Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Blaðsíða 35
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 2011 31
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
Starfsmannavelta
Til að reikna út starfsmannaveltu á ákveðnu tímabili er algengast
að finna fjölda þeirra sem hætta störfum og reikna sem hlutfall
af meðalfjölda starfsmanna (Beardwell og Claydon, 2007).
Eftirfarandi formúla var notuð til að reikna út starfsmannaveltu:
Veikindafjarvistir
Á Landspítala er veikindum starfsfólks skipt í þrjá flokka eftir því
hversu lengi þau vara. Skammtímaveikindi eru 40 samfelldar
vinnustundir eða færri. Meðallöng veikindi eru 40,01 til 240
samfelldar vinnustundir. Langvarandi veikindi eru meira en 240
samfelldar vinnustundir.
Hjúkrunarþyngd
Árið 2008 var notast við sex flokka sjúklingaflokkunarkerfi
til að mæla hjúkrunarþyngd á öllum legudeildum LSH.
Deildir skráðu einnig jafnhliða upplýsingar um hversu margir
hjúkrunarfræðingar voru að störfum þann dag, til samanburðar
við þá mönnun sem reiknast æskileg út frá hjúkrunarþyngd
sjúklinganna. Með því að skoða muninn á æskilegum og veittum
hjúkrunarklukkustundum má fá vísbendingar um hvenær of
margir eða of fáir hjúkrunarfræðingar voru að störfum.
Siðfræði rannsóknar
Rannsóknin var tilkynnt til Persónuverndar (nr. S4220/2009)
þegar fyrir lá samþykki framkvæmdastjóra fjárreiðna
og upplýsinga og framkvæmdastjóra hjúkrunar auk leyfis
siðanefndar stjórnsýslurannsókna á LSH (nr. 04/2009). Gögnin
voru öll á tölulegu formi og innihéldu engar persónulegar
upplýsingar um einstaka starfsmenn eða sjúklinga.
NIÐURSTÖÐUR
Úrtakið náði til 24,6% af stöðugildum allra hjúkrunarfræðinga á
LSH. Tafla 2 sýnir yfirlit yfir starfsmannaveltu, veikindafjarvistir
og hjúkrunarþyngd eftir sviðum árið 2008. Starfsmannavelta
hjúkrunarfræðinga var skoðuð í samhengi við fjölda starfandi
hjúkrunarfræðinga árið 2008.
Af þeim 19 deildum sem skoðaðar voru hættu mest fjórir
hjúkrunarfræðingar störfum á einni deild á tímabilinu. Hjúkrunar
fræðingarnir sem hættu störfum voru á aldrinum 2565 ára.
Heildarfjöldi veikindafjarvista hjúkrunarfræðinga á sviðunum
sem skoðuð voru fyrir árið 2008 voru um 4.000 dagar. Að
jafnaði var hver hjúkrunarfræðingur veikur í tæpa 12 daga og
alls samsvöruðu veikindin 17 ársverkum.
Tengsl starfsmannaveltu og veikindafjarvista
Skoðuð voru tengsl starfsmannaveltu hjúkrunarfræðinga
við veikinda fjarvistir miðað við heildarfjölda veikindafjarvista
hjúkrunar fræðinga á ári fyrir hverja deild. Ekki reyndist tölfræði
lega marktæk fylgni milli starfsmannaveltu og fjölda veikinda
daga hjúkrunarfræðinga.
Tvær deildir voru ekki með neina starfsmannaveltu hjúkrunar
fræðinga en mesta starfsmannaveltan var 23,1%. Þegar þessar
deildir voru skoðaðar sérstaklega mátti sjá að veikindahlutfall
hjúkrunarfræðinga var annars vegar 5,4% og 5,2% á deildunum
með enga starfsmannaveltu og hins vegar 4,8% þar sem
starfsmannaveltan var mest. Þær deildir sem hér um ræðir
eru hins vegar misstórar en á þeirri deild sem var með mestu
starfsmannaveltu hjúkrunarfræðinga var meðalfjöldi flokkaðra
sjúklinga á dag 10,3 en 16,7 og 20,3 á hinum deildunum tveimur.
Tengsl starfsmannaveltu og hjúkrunarþyngdar
Fylgni milli starfsmannaveltu hjúkrunarfræðinga og hjúkrunar
þyngdar hverrar deildar fyrir sig reyndist ekki tölfræðilega
marktæk. Þrátt fyrir það má sjá að á lyflækningasviði II var
starfs mannavelta og hjúkrunarþyngd hærri en á hinum tveimur
sviðunum í úrtakinu (tafla 2). Að auki var það eina sviðið þar
sem veittar hjúkrunarklukkustundir voru færri en æskilegar
(skv. sjúklingaflokkunarkerfinu Quadramed).
Tengsl veikindafjarvista og hjúkrunarþyngdar
Fylgni milli hjúkrunarþyngdar og heildarfjölda veikindafjarvista
hjúkrunarfræðinga var ekki tölfræðilega marktæk. Þegar tölur
eru skoðaðar fyrir hvern mánuð fyrir sig yfir árið í heild má sjá
ákveðna fylgni milli hjúkrunarþyngdar og veikinda eins og sést
á mynd 1.
UMRÆÐUR
Starfsmannavelta hjúkrunarfræðinga á lyflækningasviðum I og
II og skurðlækningasviði LSH árið 2008 var tæp 11% og telst
það viðunandi. Það er sambærilegt heildarstarfsmannaveltu
hjúkrunarfræðinga á LSH undanfarin ár sem var 8,111,6% en
minna en meðalstarfsmannavelta fyrir alla starfsmenn spítalans
sem var 11,615,7% (Landspítali, e.d.), Það er einnig minna en
það sem þekkist á almennum vinnumarkaði og hjá opinberum
stofnunum. Samkvæmt upplýsingum frá ParX viðskiptaráðgjöf
IBM var starfsmannavelta 14,6% hjá þeim 2050 fyrirtækjum sem
tóku þátt í könnun ParX árið 2008 (ParX viðskiptaráðgjöf, 2009).
Veikindadagar hjúkrunarfræðinga á lyflækningasviðum I og II
og skurðlækningasviði voru alls rúmir 4.000 árið 2008. Miðað
við meðalfjölda hjúkrunarfræðinga þetta árið gerir þetta tæpa
Mynd 1. Meðalhjúkrunarþyngd og veikindadagar.
450
400
350
300
250
200
150
100
50
0
jan. feb. mar. apr. maí jún. sep. okt. nóv. des.ág.júl.
1,14
1,12
1,1
1,08
1,06
1,04
1,02
1
0,98
0,96
0,94
Hjúkrunarþyngd
Veikindadagar
Fjöldi hjúkrunarfr. sem hættu á LSH á tímabili
(Fjöldi starfandi hjúkrunarfr. í upphafi árs+
fjöldi starfandi hjúkrunarfr í lok árs)/2
x100