Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Blaðsíða 34
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 201130
Hjúkrunarþyngdarstuðull (einnig kallað bráðleiki sjúklinga)
endurspeglar mismunandi veikindi sjúklinga og leggur grunn
að æskilegri mönnun. Þannig má áætla mönnunarþörf til
lengri eða skemmri tíma og nýta úrræði í mönnun á sem
hagkvæmastan og bestan hátt (Fagerström og Engberg,
1998). Hjúkrunarþyngd legusjúklinga á Landspítala var mæld
daglega með mælitækinu Medicus Type VI (Quadramed) sem
flokkar sjúklinga í sex bráðleikaflokka samkvæmt daglegu mati
hjúkrunarfræðinga á hverri deild. Hjúkrunarþyngdarflokkar
Quadramed eru sýndir í töflu 1.
Í flokki I er sá hópur sjúklinga sem metinn er hafa þörf fyrir
04 hjúkrunarklukkustundir á sólarhring, en í flokki VI sá hópur
sem metinn er með þörf fyrir flestar hjúkrunarklukkustundir
eða yfir 20 klst. á sólarhring (Medicus Systems Corporation,
1996). Hjúkrunarþyngd sjúklinga á legudeildum LSH hefur farið
hækkandi frá árinu 2000 og hefur sú þróun haldist í hendur
við styttri meðallegutíma (Elísabet Guðmundsdóttir o.fl., 2007).
Meðalhjúkrunarþyngd sjúklinga á LSH var 1,181,20 árin
20062009 (Landspítali, e.d.).
AÐFERÐ
Um lýsandi fylgnirannsókn var að ræða. Úrtakið var fastráðnir
hjúkrunarfræðingar á legudeildum á lyflækningasviðum I og
II og skurðlækningasviði Landspítala árið 2008. Þetta voru
samtals 19 deildir, átta deildir á lyflækningasviði I, þrjár deildir
á lyflækningasviði II og átta deildir á skurðlækningasviði.
Á þessum sviðum voru fastráðnir hjúkrunarfræðingar á
þátttökudeildum samtals 317 í byrjun árs 2008 og 351 ári
síðar. Þeir voru á aldrinum 22 til 69 ára.
Gagnagreining
Gagna var aflað úr starfsemisupplýsingum spítalans. Búin voru
til tvö gagnasöfn í SPSS 15.0 þar sem breytur voru skilgreindar.
Annað gagnasafnið innihélt samtölur fyrir árið 2008 í heild,
það er tölur um starfsmannaveltu, meðalveikindafjarvistir
og hjúkrunarþyngd á hverri deild. Í hinu gagnasafninu voru
breyturnar hjúkrunarþyngd og meðalveikindafjarvistir á hverri
deild fyrir hvern mánuð í senn sama ár. Við útreikninga var
notuð lýsandi tölfræði með tíðnidreifingu, meðaltölum og
fylgniprófum og var miðað við 95% marktektarmörk.
Tafla 2. Starfsmannavelta, veikindadagar og meðalhjúkrunarþyngd eftir sviðum.
Starfsmannavelta Lyflækningasvið I Lyflækningasvið II Skurðlækningasvið Samtals
Stöðugildi hjúkrunarfræðinga 1. janúar 2008 89,3 31,3 95,1 215,7
Stöðugildi hjúkrunarfræðinga 1. janúar 2009 109,4 35,9 102,3 247,6
Mismunur á stöðugildum 20,1 4,6 7,2 31,9
Starfandi hjúkrunarfræðingar 1. janúar 2008 138 42 137 317
Starfandi hjúkrunarfræðingar 1. janúar 2009 158 44 149 351
Hætt störfum 14 5 15 34
Starfsmannavelta 10,01% 11,85% 10,80% 10,89%
Veikindadagar Lyflækningasvið I Lyflækningasvið II Skurðlækningasvið Samtals
Skammtíma veikindi 841 214 796 1852
Meðallöng veikindi 356 88 311 755
Langvarandi veikindi 522 431 441 1394
Hjúkrunarþyngd* Lyflækningasvið I Lyflækningasvið II Skurðlækningasvið Samtals
Meðalhjúkrunarþyngd 1,07 1,16 1,06 1,10
Æskilegar hjúkrunarklst. 6,41 8,89 6,42 7,24
Veittar hjúkrunarklst. 6,51 8,16 7,06 7,24
Mismunur á æskilegum og veittum hjúkrunarklst. 0,10 0,73 0,64 0,00
*Þegar hjúkrunarþyngd á mánuði var skoðuð niður á deild reyndist hún lægst 0,84 á einni deild og hæst 1,33. Meðaltal æskilegra hjúkrunarklukkustunda var
7,24 fyrir úrtakið í heild, sem var jafnt veittum hjúkrunarklukkustundum.