Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Blaðsíða 27
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 2011 23
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
ÚTDRÁTTUR
Tilgangur þessarar rannsóknar var að öðlast þekkingu á vandaðri
og árangursríkri heimaþjónustu sem stuðlar að vellíðan eldri
borgara sem eru 80 ára og eldri og búa heima. Athyglin beindist
að starfs háttum í heimahjúkrun. Í þessari grein er fjallað um
sam vinnu. Byggt var á gerenda netskenningunni (Actor Network
Theory) þar sem reynt er að rekja hvernig tengsl skapa og móta
gerendur og hafa áhrif á störf og daglegt líf.
Aðferðin var etnógrafísk og gagnasöfnun fór fram á fjórum
mánuðum árið 2010. Rannsóknargögn voru vettvangslýsingar
af samstarfs fundum og heimsóknum hjúkrunarfræðinga (N 5) og
sjúkraliða (N 4) til eldri borgara (N 15) og viðtöl við sömu aðila.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að samvinna meðal
starfsmanna heimaþjónustunnar, við sjúklinga og aðstandendur
þeirra og við samstarfsaðila innan heilbrigðis og félagsþjónustunnar
var lykilatriði í árangursríkri þjónustu. Þessi samvinna byggði á
fjölbreyttri þekkingu og einkenndist af sameiginlegum skilningi
á áhersluatriðum. Heimahjúkrun má líkja við viðkvæmt net sem
starfsmenn reyna að styrkja og nýta.
Álykta má út frá ofangreindum niðurstöðum að forsenda fyrir
árangursríkri heimahjúkrun sé að tekist hafi að mynda góða
samvinnu og samstarf hinna fjölmörgu aðila sem aðstoða eldri
borgara við að líða vel á heimilum sínum. Bent er á leiðir til að
viðhalda og efla þá samvinnu og þætti sem veikja hana.
Lykilorð: Heimaþjónusta, heimahjúkrun, samvinna, teymisvinna,
gerendanetskenning, etnógrafía.
INNGANGUR
Í stefnumótun stjórnvalda og fræðilegri umfjöllun er oft dregin
upp sú mynd að í framtíðinni verði dvöl á sjúkrahúsum og öðrum
heilbrigðisstofnunum skammvinn og takmörkuð. Því er spáð að
heilbrigðisþjónusta sem veitt er á slíkum stofnunum verði einungis
ætluð þeim sem eru bráðveikir eða geta á engan hátt séð um
sig. Aðrir muni dvelja á heimilum sínum og fá heilbrigðisþjónustu
þangað eða sækja hana á göngudeildir eða dagdeildir. Því ríður
á að þróa árangursríkar leiðir til að stuðla að vellíðan þeirra
sem búa heima en eiga við heilsufarsvandamál að stríða. Í
þessari grein beinist athyglin að heimahjúkrun sem er mikilvægur
þáttur í heimaþjónustu. Sagt verður frá rannsókn þar sem
markmiðið var að skapa þekkingu um vandaða og árangursríka
heimahjúkrun sem stuðlar að vellíðan eldri borgara sem búa
við langvinn heilsufarsvandamál og búa á heimilum sínum. Í
niðurstöðum hennar kom fram að starf í heimaþjónustu byggist
á fjölþættri samvinnu sjúklinga, aðstandenda og starfsmanna og
er að stórum hluta fjölfaglegt. Það útheimtir færni í samvinnu við
einstaklinga með ólíkan bakgrunn og tengsl. Í þessari grein verður
leitast við að varpa ljósi á eðli þessarar samvinnu með hliðsjón af
heimahjúkrun.
Kristín Björnsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
SAMVINNA Í HEIMAHJÚKRUN ELDRI BORGARA
ENGLISH SUMMARY
Bjornsdottir, K.
The Icelandic Journal of Nursing (2011), 87 (4), 23-27
COLLABORATION IN HOME NURSING CARE
The purpose of this study was to develop knowledge
regarding effective and quality home care services that
enhances the well being of the elderly, 80 years and older
who live in their own home. The focus was on home care
nursing practice and this paper addresses collaboration. It
draws on Actor Network Theory (ANT) and describes how
relationships create and shape actors as they perform their
work and daily life.
The research method was ethnographic and data were
collected over a four months period in 2010. Data were
field notes from staff meetings and visits by RN‘s (N 5) and
LPN‘s to elderly individuals (N 15) in addition to interviews
with all of participants.
The findings showed that collaboration in home care,
between home care workers and the elderly and their
relatives as well as health and social care workers was of
key importance in creating effective and quality home care.
This collaboration was based on complex knowledge and
was characterized by a common understanding regarding
emphasis and aims. Home care nursing is like a net that
the workers try to strengthen and use to reach their goals.
From the above findings it can be concluded that the
formation of good collaboration among the different
individuals who participate in assisting the elderly to live
comfortably at home is a precondition for effective and
quality home care. A number of strategies that maintain
and foster such collaboration and factors that prevent it
are identified.
Key words: Home care, home care nursing, collaboration,
teamwork, Actor Network Theory, ethnography.
Correspondance: kristbj@hi.is
Fræðilegur bakgrunnur
Heimahjúkrun er formleg heilbrigðisþjónusta sem er veitt
af hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum á heimilum þeirra
sem þarfnast fræðslu, stuðnings, aðstoðar, umönnunar og
meðferðar vegna veikinda eða minnkaðrar færni. Hún er
hluti af heimaþjónustu en hún hefur verið skilgreind sem
umönnun sem fagfólk veitir einstaklingi á heimili hans eða
hennar þar sem markmiðið er ekki einungis að auka lífsgæði