Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Page 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Page 12
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 20118 eða í 8.­10. bekk (57%), því næst á miðstigi (36%) en sjaldnast á yngsta stigi, eða í 1.­4. bekk (7%). Í fjórum skólum var tóbaksvörnum sinnt í öllum bekkjum. Mynd 1. Hlutfall bekkja sem fengu tóbaksvarnir í grunnskólum landsins skólaárið 2009­2010. *=Bekkur ekki tiltekinn. Aðilar sem sinntu tóbaksvörnum Þeir sem sinntu tóbaksvörnum í grunnskólum þátttakendanna voru skólahjúkrunarfræðingar, umsjónarkennarar, nemendur, foreldrar og ,,aðrir“. Þátttakendur merktu við alla þá aðila sem við átti í þeirra skóla. Þeir sem féllu undir ,,aðra“ voru meðal annars kennari í lífsleikni (7,4%), námsráðgjafi (4,3%), utanaðkomandi aðili (6,1%), ,,Marítafræðsla“ (4,3%) og 3,7% sögðust ekki vita hverjir sinntu tóbaksvörnum innan síns skóla. Algengt var að samvinna væri milli skólahjúkrunarfræðinga og umsjónarkennara. Í sumum skólum sinnti einn aðili tóbaksvörnum en fleiri í öðrum (mynd 2). Mynd 2. Aðilar sem sinntu tóbaksvörnum í grunnskólunum skólaárið 2009­2010. (,,Aðrir“ = aðrir aðilar en skólahjúkrunarfræðingur eða umsjónarkennari). Spurningum varðandi tóbaksvarnir í heilsufarsskoðunum og viðtölum við nemendur var eingöngu beint til skólahjúkrunar­ fræðinga. Fjörutíu og fimm prósent skóla hjúkrunar fræðinga sögðust spyrja út í tóbaksnotkun. Enginn þeirra spurði út í tóbaksnotkun í fyrstu sex bekkjunum, en 20% spurðu út í tóbaksnotkun í 7. bekk, 15% í 8. bekk, 39% í 9. bekk og í 10. bekk spurðu 15% skólahjúkrunarfræðinganna út í tóbaksnotkun. Fimm skólahjúkrunarfræðingar sögðust ekki vera í stakk búnir til að sinna tóbaksvörnum, en 64 sögðust vera það (91%). Námsefni í tóbaksvörnum og hvatning til reykleysis Margvíslegt námsefni var notað til tóbaksvarna (mynd 3). Þátttakendur gátu merkt við fleiri en eitt atriði varðandi námsefni í tóbaksvörnum en algengast var að notað væri tvenns konar námsefni, eða í 40% tilvika. Algengasta samsetning námsefnis var annars vegar 6H heilsunnar og Tóbaksvarnafræðsla Lýðheilsustöðvar og hins vegar 6H heilsunnar og eigið námsefni. Tóbaksvarnir fóru oftast fram undir þættinum ,,hugrekki“ (96%) í námsefni 6H heilsunnar. „Annað námsefni“ var notað í 14% tilfella og var þar nefnt m.a. myndbandið ,,Djammreykingar“, bíómyndin ,,Thank you for smoking“, ,,Flott án fíknar“ verkefni Ungmennafélags Íslands og efni frá öðrum aðilum. Fjögur prósent þátttakenda vissu ekki hvaða námsefni var notað í tóbaksvörnum. Mynd 3. Notkun mismunandi námsefnis skólaárið 2009­2010. Merkt var við allt námsefni sem notað var í viðkomandi skóla. Marktækur munur var á svörum skólastjóra og skólahjúkrunarfræðinga varðandi námsefni í tóbaksvörnum (p<0,05). Skólahjúkrunarfræðingar sögðu námsefni 6H heilsunnar notað í 85% tilfella í tóbaksvörnum, á móti 39% að sögn skólastjóra. Skólastjórar sögðu námsefnið ,,Vertu frjáls – reyklaus“ notað í 62% tilfella, á móti 21% í svörum skólahjúkrunarfræðinga. Hvatning til reykleysis var hluti af tóbaksvörnum grunnskólanna, en það var meðal annars verkefnið ,,Reyklaus bekkur“ (76%) og herferðir og reykleysisverðlaun (9%) á vegum skólanna. Marktækur munur var á svörum skólastjóra og skólahjúkrunarfræðinga varðandi verkefnið ,,Reyklaus bekkur“ (p<0,001). Skólastjórar sögðu verkefnið ,,Reyklaus bekkur“ vera í 88% grunnskólanna, en 1 2 H lu tf al l (% ) Bekkur 3 4 5 6 7 8 9 10 * 90 5 66 10 19 40 78 82 71 66 1 80 70 60 50 40 30 20 10 0 6H ­he ilsu nna r H lu tf al l (% ) Ver tu frjá ls ­ re ykl aus Tób aks var nar fræ ðsl a Lýð hei lsu stö ðva r Eig ið n ám sef ni Lio ns Qu est An nað ná ms efn i 6 60 45 42 34 14 70 60 50 40 30 20 10 0 Skólahjúkrunarfræðingur og umsjónarkennari Umsjónarkennari Umsjónarkennari og aðrir Skólahjúkrunarfræðingur Skólahjúkrunarfræðingur og aðrir Skólahjúkrunarfræðingur, umsjónarkennari og aðrir 44% 9% 4% 8% 23% 12%

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.