Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Qupperneq 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Qupperneq 21
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 2011 17 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER ÚTDRÁTTUR Vinnuálag í heilbrigðisþjónustu hefur aukist síðustu ár og einkenni um kulnun meðal heilbrigðisstarfsmanna er vaxandi vandi hérlendis og erlendis. Rannsóknir sýna að slíkum aðstæðum fylgir hætta á mistökum sem oft má rekja til mikils álags auk samskipta­ og stjórnunarvanda. Nýjar rannsóknir undirstrika mikilvægi úrbóta á starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna, einkum með því að tryggja að starfsfólk hafi áhrif á ákvarðanir um eigin störf og njóti félagslegs stuðnings frá samstarfsfólki og stjórnendum. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta einkenni kulnunar meðal hjúkrunarfræðinga á bráðalegudeildum (lyf­ og skurðlækninga) á Landspítala (LSH) og kanna tengsl við sálfélagslega þætti, einkum vinnuálag, sjálfræði og stuðning í starfi. Gagnasöfnun fór fram í mars 2008. Hjúkrunarfræðingar (n=206) svöruðu tveimur viðurkenndum spurningalistum um sálfélagslegt starfsumhverfi og einkenni kulnunar. Kí­kvaðrat var notað til að skoða tengsl bakgrunnsbreyta og sálfélagslegra þátta og t­próf til að kanna mun á milli hópa og hugsanlegar breytingar á umfangi kulnunar miðað við fyrri rannsókn á Landspítala. Niðurstöður sýndu að vinnuálag var mikið og aðeins þriðjungur þátttakenda sagðist oft geta haft áhrif á mikilvægar ákvarðanir fyrir starfið. Félagslegur stuðningur reyndist einnig mikill og sérstaklega meðal yngra starfsfólks. Einkenni um hlutgervingu voru meiri en í fyrri rannsókn á LSH og mat á eigin vinnuafköstum var lakara en fyrri rannsókn hafði leitt í ljós. Vísbending kom fram um aukið tilfinningaþrot á lyflæknissviði I og tengdist það vinnuálagi. Niðurstöður benda eindregið til að efla þurfi verndandi þætti í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á LSH þar sem áhersla er lögð á sjálfræði í starfi, uppbyggileg samskipti og stuðning stjórnenda. Lykilorð: Vinnuálag, ákvarðanavald, stuðningur, kulnun, sálfélags­ l egt starfsumhverfi. INNGANGUR Fjöldi rannsókna sýnir fram á tengsl vinnuálags og heilsu starfsfólks í heilbrigðisþjónustu (deJonge o.fl., 2010; van Bogaert o.fl., 2010). Jafnframt hefur verið sýnt fram á samband vinnuálags og öryggis sjúklinga sem og að mistök í heilbrigðisþjónustu megi oft rekja til vinnuálags (Kramer o.fl, 2011) og samskiptavanda (Westbrook o.fl., 2010). Einkenni um kulnun meðal heilbrigðisstarfsfólks er ennfremur vaxandi vandi erlendis (McHugh o.fl., 2011; van Bogaert o.fl., 2010) og vísbendingar eru um hið sama hérlendis (Sigrún Gunnarsdóttir, 2006). Lög um vinnuvernd kveða á um að atvinnurekandi skuli stuðla að góðum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnustað í nánu samstarfi við starfsmenn fyrirtækis (Lög um aðbúnað, Anna Guðbjörg Gunnarsdóttir, hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir, Háskóla Íslands Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands STARFSTENGD VIÐHORF OG LÍÐAN HJÚKRUNARFRÆÐINGA Á LANDSPÍTALA ENGLISH SUMMARY Gunnarsdottir, A. G., Asgeirsdottir, A. G., Gunnarsdottir, S. The Icelandic Journal of Nursing (2011), 87 (4), 17-22 NURSES‘ WELL-BEING AND THEIR ATTITUDES TOWARDS WORK AT LANDSPITALI UNIVERSITY HOSPITAL Workload in health care services has intensified in the last years and subsequently increased symptoms of burnout have become an emerging problem among health care workers in Iceland and abroad. Studies show that such circumstances increase the risk of mistakes related to work load and problems in communication and management. Recent studies underline the importance of improved work­environment in health care, in particular increased participation in decision making regarding own job and social support from co­workers and supervisors. The aim of this study was to evaluate levels of burnout among nurses working in acute medical and surgical wards at Landspítali university hospital (LSH) and potential links to psychosocial work environment factors. Data collection took place in March 2008. The nurses (n=206) answered two commonly used questionnaires regarding psychosocial work environment and burnout symptoms. Pearson’s Chi­square tests were used to determine relations between variables and t­test to examine difference in burnout levels between specialities and potential changes of burnout levels in comparison with a prior study at LSH. Results showed that workload was high and only one third could often participate in important decisions regarding own work. Social support rated high, especially among younger nurses. Depersonalization levels were higher and levels of personal accomplishment were lower than a prior study had indicated. In the medical wards levels of emotional exhaustion were also higher and were related to workload. The results indicate the importance of promoting a supportive work environment for nurses at LSH with the emphasis on autonomy, constructive communication and managerial support. Keywords: Workload, autonomy, social support, burnout, psychosocial work­environment. Correspondance: anndadi@gmail.com
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.