Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Side 60
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 201156
Siðfræði
Þátttakendur fengu ítarlegar skriflegar og munnlegar
upplýsingar um rannsóknina, markmið hennar, framkvæmd,
mögulegar áhættur, óþægindi og ávinning. Upplýst samþykki
var staðfest með undirskrift þátttakenda. Fyllsta trúnaðar
var gætt og ekki mögulegt að rekja svör til einstakra
þátttakenda. Rannsóknin var framkvæmd í samræmi
við Helsinki yfirlýsinguna og tilskilin leyfi fengin í hverju
landi fyrir sig. Á Íslandi var fengið leyfi Vísindasiðanefndar
(VSNb2008120005/03.1) og Persónuvernd send tilkynning
um rannsóknina (S4156/2008). Rannsóknin var kostuð af
Coloplast A/S.
Framkvæmd og gagnasöfnun
Gagnasöfnun fjölþjóðlegu rannsóknarinnar fór fram á árunum
2008–2010. Á Íslandi var gögnum safnað á tímabilinu apríl
til september 2009. Þátttakendur mættu tvisvar sinnum með
sex til átta vikna millibili í viðtal og skoðun. Þátttakendur
voru beðnir að svara lýðfræðilegum spurningum, spurningum
um stómað (tegund, ástæðu, vandamál, eftirlit o.fl.) og
stómavörur sem þeir notuðu. Stóma QoL spurningalistinn var
útskýrður fyrir þátttakendum og þeir beðnir að svara honum
í einrúmi. Húð umhverfis stóma var metin af rannsakanda
samkvæmt OST matstækinu. Ef húðvandamál voru til staðar
var tekin ljósmynd af húðsvæðinu. Í lok viðtals 1 fékk
einstaklingurinn afhentan SenSura stómabúnað til notkunar
á rannsóknartímabilinu ásamt leiðbeiningum um notkun
á vörunum, meðferð húðar og hvert ætti að leita ef upp
kæmu vandamál. Í viðtali 2 var Stóma QoL spurningalistinn
lagður fyrir þátttakendur og húð metin á sama hátt og
áður. Þátttakendur voru spurðir um reynslu sína af SenSura
stómabúnaðinum og um vandamál tengd stómanu.
Tölfræðileg úrvinnsla
Tölfræðiforritið SAS, útgáfa 9.1.3, var notað við úrvinnslu
gagna. Samfylgnigreiningu var beitt til að kanna fylgni aldurs,
kyns, tíma frá aðgerð, tegundar stóma (garna, ristil eða
þvagstóma) og gerð stómabúnaðar (eins eða tveggja hluta,
kúpt eða flöt plata) við Stóma QoL, DET stig og mat
þátttakenda á ástandi húðar. Marktæknimörk voru sett við
p≤0,05. Fjöldi þvagstómaþega var lítill og tölfræðilegur styrkur
ekki nægur til að meta einstaka þætti hjá þeim hópi. Það sama
gilti um íslenska úrtakið. Niðurstöður fyrir þessa hópa eru
því eingöngu settar fram sem lýsandi tölfræði (tíðni, hlutföll,
meðaltal og staðalfrávik).
NIÐURSTÖÐUR
Þátttakendur í rannsókninni í heild voru 3.017 stóma
þegar. Lýsingu á þátttakendum má sjá í töflu 1. Á
rannsóknartímabilinu hættu 217 (7%) einstaklingar
þátttöku í rannsókninni, flestir vegna vandamála tengdum
stómabúnaði eða að rannsóknaráætlun var ekki fylgt. Hér
verður greint frá fjölþjóðlegum niðurstöðum rannsóknarinnar,
ásamt niðurstöðum íslenska úrtaksins og er þess þá getið
sérstaklega.
Ástand húðar
Í viðtali 1 voru 60% þátttakenda með DET ≥2, (meðaltal 2,5
±2,8). Af þeim voru 41,5% með mild húðvandamál (DET 23),
42,5% miðlungs alvarleg (DET 46) og 16% með alvarleg
húðvandamál (DET 715). Algengustu ástæður húðvandamála
voru ertisnerti húðbólga (48%), ytri áverkar (21%) og snerti
ofnæmi (7%). Á Íslandi voru 56% þátttakenda með DET≥2.
Algengustu ástæður húðvandamála hjá íslenskum stómaþegum
voru einnig ertisnerti húðbólga (63%), ytri áverkar (15%) og
snerti ofnæmi (10%). Á mynd 1 má sjá dreifingu DET stiga
meðal íslensku þátttakendanna.
35
30
25
20
15
10
5
0
Fj
öl
d
i þ
át
tt
ak
en
d
a
DET stig
10 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
Mynd 1. Dreifing DETstiga meðal íslenskra þátttakenda (viðtal 1).
Tafla 1. Þátttökulönd og lýsing á þátttakendum í upphafi rannsóknar.
Ísland
N = 73
Allir*
N = 3017
Kyn, aldur og tími frá aðgerð
Konur (%) 53 51
Aldur í árum (spönn) 62 (2584) 63 (1895)
Tími frá aðgerð í árum (spönn) 8,9 (0,533) 5,9 (0,564)
Tegund stóma (%)
Ristilstóma 44 67
Garnastóma 56 32
Þvagstóma 0 2
Ástæða stóma (%)
Krabbamein 34 58
Sáraristilbólga 47 12
Svæðisgarnabólga 1 8
Ristilpokabólga 4 6
Annað 14 15
Varanleiki og ákvörðun um stóma (%)
Varanlegt stóma 92 86
Tímabundið stóma 8 13
Stóma ákveðið fyrir aðgerð 93 72
Gerð stómabúnaðar (%)
Eins hluta 22 48
Tveggja hluta 78 52
Flöt plata 53 77
Kúpt plata 47 23
Tíðni eftirlits (%)
Aldrei 30 15
Einungis þegar þörf er á 69 52
Reglulega 1 33
*Fjöldi þátttakenda eftir löndum: Bandaríkin 701, Frakkland 522, Pólland 261, Þýskaland
166, Bretland 140, Portúgal 136, SuðurKórea 132, Spánn 131, Ítalía 115, Japan 110,
Argentína 104, Danmörk 100, Tékkland 92, Ísland 73, Slóvakía 61, Kanada 43, Ástralía 36.