Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Page 23
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 19
Bókin Family nursing in action kom út í júlí
2011. Hún er gefin út hérlendis þrátt fyrir að
vera á ensku en Háskólaútgáfan gefur út.
Ritstjórar eru Erla Kolbrún Svavarsdóttir og
Helga Jónsdóttir. Í bókinni eru fimmtán kaflar
eftir hjúkrunarfræðinga frá fjórum heimsálfum
og taka þeir fyrir fjölskylduhjúkrun frá
mörgum sjónarhornum.
Veglegt útgáfuteiti var haldið 1. september
sl. í húsakynnum Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Þrír fræðimenn, þær
Kristín Björnsdóttir, Sigríður Gunnarsdóttir og
Marga Thome, voru fengnar til að rýna í sinn
hluta bókarinnar hver. Í fyrri hluta bókarinnar
eru kynntar kenningar og aðferðafræði við
rannsóknir í fjölskylduhjúkrun, miðhlutinn
fjallar um niðurstöður meðferðarrannsókna
og í síðasta hlutanum er sjónum beint að
hvernig nota megi rannsóknarniðurstöður
í klíník. Niðurstaða rýnanna er að bókin sé
mikilvægt framlag til fjölskylduhjúkrunar.
Allir íslensku höfundarnir saman komnir í útgáfu-
teiti 1. september sl. Frá vinstri Erla Kolbrún
Svavarsdóttir, Þorbjörg Sóley Ingadóttir, Helga
Jónsdóttir og Anna Ólafía Sigurðardóttir.
NÝ BÓK UM
FJÖLSKYLDUHJÚKRUN
Urðarapótek
er í viðskiptum
hjá okkur
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Guðrún Pálsdóttir stofnaði Urðarapótek
og keppir við þá stóru á markaðnum
með áherslu á góð kjör og betri þjónustu.
Við þekkjum slíkar aðstæður mjög vel.
Þess vegna er Urðarapótek í viðskiptum
hjá okkur.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A