Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Page 32
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201128
hefur aukist. Vegna smæðar samfélagsins
eru atvinnumöguleikar hjúkrunarfræðinga
á hverjum stað bundnir við eina stofnun.
Ef hjúkrunarfræðingar sætta sig ekki við
starfsaðstæður eða kjör þýðir það flutning
á milli svæða með öllu því raski fyrir
fjölskyldur þeirra sem því fylgir.
Áhrif efnahagskreppunnar á
hjúkrunarfræðimenntun á Íslandi
Efnahagskreppan hefur augljóslega
ekki einungis áhrif á heilbrigðiskerfið á
Íslandi heldur ekki síður á menntakerfið.
Háskólarnir hafa þurft að skera jafnvel
meira niður en heilbrigðisstofnanir
landsins. Sú fjölgun námsplássa fyrir
hjúkrunarfræðinema, sem vonast var
eftir, mun ekki ganga fram þó þörfin til
að fylla þær stöður, sem losna þegar
stórir árgangar hjúkrunarfræðinga fara
á eftirlaun, sé sannarlega fyrir hendi.
Nám í hjúkrunarfræði tekur fjögur ár svo
undirbúa þarf þær breytingar vel sem
verða á hópi hjúkrunarfræðinga á næstu
árum. FÍH hefur varað við því að fjöldi
brautskráðra hjúkrunarfræðinga sé hvergi
nærri nægur til að fylla í skörð þeirra
sem fara á lífeyri. Úttekt, sem FÍH gerði
2007, sýndi að 170 hjúkrunarfræðingar
þurfa að brautskrást árlega til að halda í
við þörfina. Undanfarin fimm ár hafa hins
vegar einungis 112 hjúkrunarfræðingar
brautskráðst að meðaltali á ári. Reynslan af
fyrri alþjóðlegum efnahagskreppum kennir
okkur að eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu
eykst mjög þegar kreppan gengur yfir. Þá
verður hins vegar of seint að bregðast
við með fjölgun hjúkrunarfræðinema í ljósi
þess að námið tekur fjögur ár.
Aðsókn að námi í hjúkrunarfræði tvöfaldaðist
á milli áranna 2008 og 2009. Vegna
takmarkana á klínískum námsplássum þarf
þó enn að takmarka fjölda nemenda þannig
að einungis um helmingur þeirra sem hefja
nú nám í hjúkrunarfræði fær að halda áfram
námi að loknu fyrsta misseri. Aðsókn að
meistaranámi í hjúkrun hefur dregist saman
eftir hrun. Hjúkrunarfræðingar virðast hvorki
hafa persónulegar aðstæður eða fjármagn
til að fara í nám né heldur fá þeir námsleyfi
frá vinnu veitanda. Þetta er að mínu mati
mikið áhyggju efni þar sem það dregur úr
rannsóknum í hjúkrun og kemur í veg fyrir
að metnaðarfull markmið um fjölgun sér
fræðinga í hjúkrun nái fram að ganga.
Ýmsar breytingar í heilbrigðiskerfinu og
í samfélaginu krefjast fleiri hjúkrunar
fræðinga. Í stefnu FÍH er kveðið
á um að þarfir þjóðfélagsþegna
fyrir hjúkrunarþjónustu séu það
grundvallaratriði sem markar störf
hjúkrunarfræðinga. Ber þeim undir
öllum kringumstæðum að tryggja gæði
hjúkrunar með hagsmuni skjólstæðinga
að leiðarljósi. Vinna þarf mun öflugar að
forvörnum og heilsueflinu en gert hefur
verið. Með styttri legutíma á sjúkrahúsum
færist heilbrigðisþjónusta við fólk á öllum
aldri frá sjúkrahúsum og til annarra
stofnana og til heimilanna. Það kallar
á aukna þjónustu hjúkrunarfræðinga.
Jafnframt eiga sér stað breytingar á
aldurssamsetningu þjóðarinnar og vegna
þróunar í meðferð lengist meðalævi
landsmanna. Um leið fjölgar sífellt alvarlegri
og langvinnari heilsufarsvandamálum og
það kallar einnig á aukna þjónustu. Á
tímum efnahagsörðugleika geta þarfir
þjóðfélagsþegna fyrir heilbrigðisþjónustu
breyst og því er brýnt að meta þarfirnar
svo hægt sé að bregðast við þeim.
Áætlanir stjórnvalda
Hjúkrunarfræðingar og læknar, þessar
tvær burðarstéttir hins íslenskra heilbrigðis
kerfis, hafa saman og hvorir í sínu lagi,
kallað eftir framtíðarsýn stjórnvalda um
skipulag heilbrigðisþjónustunnar og mati
á þeim mannafla sem þarf til að veita
þjónustuna. Því miður hafa stjórnvöld
ekki svarað því kalli. Við undirbúning
þessa erindis óskaði ég eftir því við
aðstoðarmann velferðarráðherra að fá
upplýsingar um áætlanir stjórnvalda um
breytingar á heilbrigðisþjónustunni og
kerfinu á næstu árum. Þær upplýsingar
voru ekki fáanlegar.
FÍH hefur lýst yfir áhyggjum vegna þess
hve hratt hefur verið farið í breytingar
á skipulagi heilbrigðiskerfisins á undan
förnum misserum, oft án mikils samráðs
við heimamenn á þeim landsvæðum
sem breytingar verða á. Félagið hefur
lagt áherslu á að grund vallarbreytingar
á þjónustu verði gerðar í viðráðanlegum
skrefum svo íbúar geti aðlagast
breytingunum. Félagið hefur einnig
lagt áherslu á mikilvægi þess að meta
heildaráhrif breytinga á kerfinu, faglegar
og fjárhagslegar, til lengri tíma litið.
FÍH hefur á undanförnum árum leitast við
að hafa áhrif á stefumótun stjórnvalda
í heilbrigðismálum. Til að leggja sitt af
mörkum til stefnumótunar hefur félagið
nú sett fram stefnu í hjúkrunar og
heilbrigðismálum til ársins 2020. Félagið
leggur meðal annars áherslu á:
• að forsenda fyrir framförum í hjúkrun
og góðri heilbrigðisþjónustu sé að
hjúkrunarfræðingar séu í forystu og
hafi forræði yfir hjúkrunarþjónustu,
þróun hennar og skipulagi
• að hjúkrunarfræðingar séu virkir þátt
takendur í allri umræðu og ákvarðana
töku varðandi heilbrigðis þjónustu og
heilbrigðismál
• að þekking, reynsla og sjónarmið
hjúkrunar fræðinga séu nýtt við stefnu
mótun og breytingar innan heilbrigðis
þjónustunnar
• að hjúkrunarfræðingar sýni sjálfstæði
og frumkvæði í að nýta þá möguleika
sem felast í breytingum innan
heilbrigðis þjónustunnar.
Lokaorð
Það er von mín að mér hafi tekist
að veita nokkra innsýn í hvaða áhrif
djúp efnahagskreppa getur haft á lítið
heilbrigðiskerfi í fámennu landi. Einnig
þau áhrif sem kreppan og viðbrögð við
henni hafa á þá sem njóta og þá sem
veita heilbrigðisþjónustu. Á krepputímum
sem öðrum skapast þó alltaf tækifæri –
tækifæri til endurskoðunar, til breytinga,
til áhrifa. Hjúkrunarfræðingar geta, í krafti
þekkingar sinnar og þjálfunar í heildrænni
nálgun og markvissri áætlanagerð,
tekið frumkvæði og orðið breytingarafl í
heilbrigðiskerfum þjóða – skjólstæðingum
okkar, hjúkrunarstéttinni og samfélaginu
öllu til hagsbóta.
Eftirtaldir veittu upplýsingar og efni við
undirbúning erindanna og eru þeim
færðar bestu þakkir fyrir:
Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri hjá
Landlæknisembættinu,
Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar á Landspítala,
Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags
Íslands,
dr. Rúnar Vilhjálmsson, prófessor við
hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands,
stjórn deildar hjúkrunarstjórnenda í
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
World Class
á 9 stöðum
Vertu í formi með
20 % afsláttur
Upplýsingar á worldclass.is eða í síma 55 30000
Skólakort World Class
- HEILSURÆKT FYRIR ÞIG -
World Class Laugum Reykjavík • Kringlunni Reykjavík • HR Reykjavík • Spönginni Grafarvogi
Dalshrauni Hafnarfirði • Ögurhvarfi Kópavogi • Turninum Kópavogi • Lágafellslaug Mosfellsbæ • Sundlaug Seltjarnarness
Korthafar fá aðgang að Laugardalslaug, Lágafellslaug og Sundlaug Seltjarnarness
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
skólakort okt 2011.pdf 1 10/7/11 3:24 PM