Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Page 55
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 51
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
umbunin aðallega frá sjúklingunum. Einnig var rætt um traust
milli starfsmanna og fannst þátttakendum það vera mikilvægur
þáttur í starfinu.
Þátttakendur sögðu að sjúklingahópurinn á sjúkrahúsinu væri
að eldast og fólk væri orðið veikara þegar það legðist inn á
sjúkrahús. Erfitt reynist að útskrifa sjúklinga á aðrar stofnanir
og lágu þeir þá oft lengi inni. Einnig fannst þátttakendum
meira um að sjúklingar legðust inn aftur og aftur, enn veikari
en áður stuttu eftir að þeir væru útskrifaðir af sjúkrahúsinu. Að
auki kom fram að sjúklingahópurinn væri að breytast. Töluvert
væri um fíkniefnaneytendur og sjúklinga sem lagðir voru inn
eftir afleiðingar ofbeldisverka. Þátttakendur voru uggandi yfir
þessari þróun því þessir sjúklingar væru oft erfiðir, æstir og
leituðu að ýmsum efnum á deildunum, auk þess sem erfiðir
vinir og aðstandendur kæmu inn á deildina. Sjúkraliðarnir voru
sammála um að þeir væru oft varnarlausir gagnvart þessum
sjúklingum. Rætt var um að fræðslu vantaði fyrir starfsfólk um
þennan sjúklingahóp og einnig að námskeið í sjálfsvörn gæti
verið þarft. Sjúkraliði með tæplega þrjátíu ára reynslu sagði:
Sjúklingahópurinn virðist vera að eldast og eldast og núna
bætast við fórnarlömb ofbeldisverka, ribbaldar og dópistar
sem var bara eiginlega aldrei þegar ég var að byrja ... þá sá
maður þetta fólk eiginlega aldrei, það er að bætast mikið við
... þannig að það er eins og ofbeldið sé að skila sér inn á
deild til okkar.
Annar sjúklingahópur, sem hafði stækkað inni á deildum
sjúkrahússins, voru of feitir einstaklingar. Þeir skapa mikið álag
á starfsfólk og hjálpartæki ekki alltaf til staðar. Þessir sjúklingar
voru oft mjög veikir og þurftu aðstoð við allt í daglegu lífi. Einn
þátttakandi lýsti þessu svona:
... en svo er annar hópur, sem hefur breyst líka, það er
yfirþyngdin og það er ekki bara í yfirþyngd eins og vart var við
hér áður ... hann er ekki sá fyrsti sem er yfir 200 kg hjá okkur
þannig að þá hugsar maður: Hvernig verður þetta í framtíðinni
þegar við fáum fleira fólk yfir 150 kg á þyngd.
Álagið á starfsfólk var mikið og virtist það ekki hafa orku í neitt
nema að vinna, að sögn þátttakenda. Mikið var um að hringt
væri í þátttakendur og þeir beðnir um að taka aukavaktir.
Þetta var þreytandi og erfitt að sögn þátttakendanna og töluðu
þeir um að fá samviskubit, annars vegar gagnvart vinnunni
og hins vegar gagnvart fjölskyldunni. Það var því togstreita
þarna á milli og sögðu þátttakendur það vera mjög íþyngjandi.
Einn sjúkraliði lýsti þessu svo: „Ja ... ég hlakka ekki lengur til
fjögurra daga frís því það er legið í manni ... maður er hættur
að segja það ef maður á langt frí.“
Tafla 1. Þemu, flokkar og tilvísanir úr viðtölum.
Þemu Samstarf og nýting þekkingar Styðjandi vinnuumhverfi Umfang starfs
Flokkar Samstarf Verkferlar Húsnæði Aðföng Sjúklingar
Þættir Tilvísanir sem liggja til grundvallar
Vinnuumhverfi Veikindi í baki.
Tíð veikindi.
Góður starfsandi.
Góður stuðningur.
Umbun mikilvæg.
Aðeins því brýnasta
sinnt.
Húsnæðisþrengsli.
Álag vegna mikillar
göngu í vinnu.
Skortur á
hjálpartækjum.
Biluð hjálpartæki.
Skortur á líni og
aðföngum.
Stöðugt vinnuálag.
Aukið vinnuálag.
Stöðugt álag á
frívöktum.
Tafir og truflanir Símsvörun.
Tíð veikindi.
Tungumálavandi.
Bið eftir hjúkrunar
fræðingi.
Flutningur sjúklinga
milli deilda.
Leit að eigum
sjúklinga.
Gott skipulag
hjúkrunar.
Þrengsli hamla
starfi.
Leit að
hjálpartækjum.
Starfskröfur Skortur á trausti.
Ósamræmi í
starfskröfum.
Vannýting á kunnáttu
sjúkraliða.
Skortur á símenntun.
Sjl. vilja krefjandi
verkefni.
Vantar staðfestingu
á hæfni og þekkingu
sjl.
Skipulag og stjórnun Störf sjl. lítið rædd á
deildarfundum.
Gott samband við
stjórnendur.
Jákvæður deildar
stjóri mikils virði.
Deildastjórar
uppteknir vegna
manneklu.
Mikilvægt að hafa
starfsmannafundi.
Skýrt skipulag á vakt.
Félagsleg samskipti Félagsleg samskipti
við samstarfsfólk
utan vinnu í hófi,
jákvæð.
Reglulegir
fræðslufundir á
einstaka deild.