Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 64
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201160
NIÐURSTÖÐUR
Þátttakendur
Alls vísuðu læknar 22 þátttakendum á aldrinum 2055 ára til
rannsóknar. Enginn hafnaði boði um þátttöku en þrír uppfylltu ekki
skilyrði rannsóknarinnar. Þátttakendunum 19 var skipt í tvo hópa,
Ahóp (n=10) og Bhóp (n=9) af handahófi. Tveir einstaklingar úr
Bhóp hættu þátttöku á biðtíma án þess að þiggja meðferð og því
eru einungis sjö þátttakendur í Bhóp í úrvinnslu. Ekkert brottfall
varð á meðferðartíma hjá hvorugum hópanna.
Kannað var hversu lengi þunglyndi hafði staðið og var
meðalárafjöldi fyrir úrtakið í heild 3,9 ± 1,3 ár. Þunglyndi hafði
staðið að meðaltali í 3,3 ± 1,3 ár hjá Ahóp og 4,7 ± 0,8 ár hjá
Bhóp eða um 1,4 árum lengur en hjá hóp A og þessi munur á
hópum var tölfræðilega marktækur (t(15) = 2,771, p = 0,015).
Aldur þátttakenda var á bilinu 2051 ár og meðalaldur var
32,5 ± 8,9 ár. Í Ahóp var meðalaldur 33,7 ± 8,2 ár og í Bhóp
var meðalaldur 30,7 ± 10,2 ár. Ekki var marktækur munur á
meðalaldri, kyni, hjúskaparstöðu, menntun og starfi hópa A og B.
Áhrif meðferðar
Mynd 1 sýnir breytingu á meðaltalsstigafjölda á þunglyndiskvarða
Beck hjá báðum hópum. Á tíma 2 hjá Ahóp, eftir meðferð, sést
greinileg fækkun stiga á þunglyndiskvarða og stigum fjölgaði
aðeins lítillega næstu 8 vikur á eftir þegar engin meðferð átti
sér stað (biðtími) eða fram að tíma 3. Hjá Bhóp var stigafjöldi
þunglyndiskvarða svo til óbreyttur á biðtíma, eða frá tíma 1 til tíma
2, en síðan fækkaði stigunum eftir meðferð, á tíma 3. Á mynd 2 sést
breyting á meðaltalsstigafjölda á ástandskvíða hjá báðum hópum.
Greinileg meðaltalslækkun sést eftir meðferð á tíma 2 hjá Ahóp en
lækkunin hélst út næstu 8 vikur eða fram að tíma 3. Hjá Bhóp hófst
rannsóknin á biðtíma, tími 1 og 2, þar sem þátttakendur sýndu litla
breytingu á kvíðastigum. Fækkun stiga vegna ástandskvíða átti sér
stað hjá Bhóp eftir meðferð á tíma 3. Á mynd 3 sést að lyndiskvíði
jókst hjá báðum hópum eftir meðferð en lyndiskvíðinn var svo til
óbreyttur á biðtíma hvort sem það var fyrir eða eftir meðferð.
Mælingar á tímabilinu
Meðaltal og miðgildi voru skoðuð á öllum tímum
meðferðarprófunar. Ef haft er í huga víxlsnið rannsóknarinnar þá
er tími 2 lýsandi fyrir breytingu á svörum á tíma þar sem Ahópur
hafði fengið meðferð en Bhópur hafði ekki fengið meðferð.
Mismunur á tíma 1 og 2 hjá Bhóp gaf til kynna að breyting á
líðan væri lítil á biðtíma, sjá töflu 2. Tími 3 var mælikvarði á líðan
eftir meðferð hjá Bhóp og eftir 8 vikna bið hjá Ahóp.
Tafla 2 gefur til kynna fækkun stiga á þunglyndiskvarða frá tíma
1 til tíma 2 hjá Ahóp um 14,5 stig og fækkun frá tíma 2 til tíma
3 hjá B hóp um 11,7 stig. Meðferðin hefur áhrif til fækkunar
stiga á þunglyndiskvarða hjá báðum hópum og biðtími breytir
litlu um stigafjölda á þunglyndiskvarða. Jafnframt sést á töflu
2 að ástandskvíði minnkar um 9,6 stig frá tíma 1 til tíma 2 eftir
meðferð hjá Ahóp en meðal Bhóps var lækkun frá tíma 2 til
tíma 3, eða eftir meðferð, 13,4 stig. Svæðameðferðin fækkaði
ástandskvíðastigum hjá báðum hópum.
Tafla 2 sýnir að lyndiskvíði jókst hjá báðum hópum. Stigum á
lyndiskvíðakvarða frá tíma 1 til tíma 2, eftir meðferð, hjá Ahóp
fjölgaði um 5,6. Hjá Bhóp fjölgaði stigum frá tíma 2 til tíma 3
eftir meðferð um 7,5 stig.
Niðurstöður eftir meðferð
Hópum A og B var slegið saman fyrir og eftir svæðameðferð,
það er að segja stigafjöldi á tíma 2 fyrir Ahóp og stigafjöldi á tíma
3 fyrir Bhóp. Gögnin voru síðan greind með pöruðu Wilcoxon
prófi. Þá kom í ljós að stigafjöldi á þunglyndiskvarða Beck
lækkaði tölfræðilega marktækt fyrir og eftir meðferð (p=0,001).
Rannsóknartilgátu 1 er því svarað játandi, svæðameðferð
Mynd 1. Meðalstig á þunglyndiskvarða Beck (BDI).
Þunglyndiskvarði Beck á öllum stigum meðferðarprófunar hjá
báðum hópum.
M
eð
al
st
ig
á
B
D
I
Tími 1 Tími 2 Tími 3
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Hópur A
Hópur B
Mynd 2. Meðalstig á kvíðakvarða Spielberger. Ástandskvíði á
öllum stigum meðferðarprófunar hjá báðum hópum.
M
eð
al
st
ig
á
Y
I
Tími 1 Tími 2 Tími 3
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Hópur A
Hópur B
Mynd 3. Meðalstig á kvíðakvarða Spielberger. Lyndiskvíði á öllum
stigum meðferðarprófunar hjá báðum hópum.
M
eð
al
st
ig
á
Y
I
I
Tími 1 Tími 2 Tími 3
60
50
40
30
20
10
0
Hópur A
Hópur B