Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 18
Þjóðmál SUmAR 2012 17
stéttskiptum þjóðfélögum og á friðar tím
um . Þegar mikið liggur við hentar ein ræðið
betur . Því aflögðu Grikkir og stundum
einnig Rómverjar lýðræði tíma bundið
þegar ógn steðjaði að, enda er ekki hægt að
stýra her með lýðræðislegum hætti fremur
en skipi eða hljómsveit .
Raunar bjuggu þrjár af helstu þjóðum
við Miðjarðarhaf í fornöld, Grikkir, Róm
verjar og Karþagómenn, allar við lýðræði í
einhverri mynd, þó að konur og þrælar hafi
að sjálfsögðu hvergi komið að ákvarðana
töku . Slíkt hefði fornmönnum þótt álíka
fráleitt og að veita húsdýrum kosningarétt .
„Jafnréttisumræðan“ var nefnilega enn ekki
komin á skrið .
Á stæða þess, hve margir vilja eigna Grikkjum lýðræðið er trúlega sú, að
þeir komu fyrstir fram með orð yfir fyrir
bærið og fundu jafnframt upp ein hverja
undarlegustu og vitlausustu útgáfu af lýð
ræði sem þekkst hefur, þar sem menn voru
kosn ir til ábyrgðarstarfa með hlut kesti .
Þeir virð ast nefnilega hafa verið haldn ir
sömu þrá hyggju og „pólitískt rétt hugs andi“
vinstri menn og einfeldningar samtímans
og ímyndað sér að fyrst menn væru jafnir
fyrir lögunum væru þeir alveg eins . Vegna
þess að menn væru jafningjar væru þeir
líka jafnokar og því jafnhæfir til allra hluta .
Þetta er sama hugsun og veldur því t .d . að
þroskaheft um er nú veittur kosningaréttur
og kjörgengi þótt margt af þessu ágæta fólki
hafi ekki meira vit í kollinum en fimm ára
börn . Þroska heftir eru hið besta fólk, en þeir
eru einfaldlega ekki jafnokar okkar hinna til
allra hluta, svo ágætir sem þeir annars kunna
að vera . Kjánarnir, sem fyrir þessu standa,
ímynda sér að þetta sé á einhvern hátt „lýð
ræð is legt“ og komi einhverjum „mann
rétt ind um“ við . En þetta er einfaldlega
heimska, og má spyrja sig hvorir hafi meira
vit í kollinum, þeir þroskaheftu eða hinir,
sem fyrir þessu standa . En því ekki þá að
veita fimm ára börnum kosningarétt?
Þetta uppátæki Aþeninga með hlutkestið
mislukkaðist að sjálfsögðu enda eru engir
tveir einstaklingar eins og jafnhæfir til allra
hluta þó að þeir séu jafningjar fyrir lög
unum og hafi sama atkvæðisrétt . Allir hafa
mismunandi áhugamál, hæfileika og getu á
ýmsum sviðum og alls ekki allir, þótt þeir
séu að öðru leyti ágætismenn, eru færir
um að stjórna borg eða ríki, hvort sem er í
Grikklandi hinu forna eða hér í Reykja vík .
Beint lýðræði, völd múgsins, er ekki svar ið við vandamálum heimsins .
Mað ur inn er félagsvera og það liggur djúpt
í eðli flestra að hlýða, ekki stjórna, taka við
skipunum, ekki gefa þær . Sauðahjörðin
fylgir forystusauðnum, en það gleymist
stundum, að forystusauðurinn er líka sauð
ur . Það eina sem hann hefur fram yfir hina
sauðina er frekjan . Valið á forystusauðnum
skiptir því öllu máli . Vondur forystusauður
gæti leitt hjörðina fyrir björg . Hjörðin
sjálf verður eitthvað að hafa til málanna að
leggja . Þetta vandamál hafa menn á Vestur
löndum leyst með því að blanda saman
einræði og lýðræði í hæfilegum skömmt
um . Almenningur gegnir hlutverki ráðn
ingar stjórans („mannauðsstjórans“ eins og
hinir pólitískt rétthugsandi segja) og ræður
tiltekinn einstakling og/eða flokk manna
með honum til að hafa í meginatriðum
einræðis völd í tiltekinn tíma . Stjórnvöld fá
þannig vinnufrið en eiga á hættu að missa
völdin ef ekki tekst vel til . Þessi blanda af
einræði og lýðræði, þ .e . fulltrúalýðræði,
hefur reynst vel og betri lausn er ekki í sjón
máli .
En, eins og ég hef margoft bent á annars
staðar, eru hvorki lýðræði né mannréttindi
hugsanleg án tjáningarfrelsis . Víkjum aðeins
að Þýskalandi Hitlers, Rússlandi Stalíns
eða NorðurKóreu samtímans . Stuðn