Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 21
20 Þjóðmál SUmAR 2012
Jónas Ragnarsson
Leiðin til Bessastaða 1952
Þegar þjóðin kaus forseta í fyrsta sinn
Sveinn Björnsson forseti Íslands lést 25 . janúar 1952, 70 ára að aldri .1 Sveinn
hafði verið kjörinn forseti af Alþingi á
Þingvöllum 17 . júní 1944 og þjóðkjörinn án
atkvæðagreiðslu 1945 og 1949 . Áður hafði
Sveinn starfað sem lögfræðingur í Reykjavík,
verið sendiherra í Kaupmannahöfn og hann
var fyrsti ríkisstjóri Íslands .
„Í fyrsta sinn syrgjum við innlendan þjóð
höfðingja, íslenskan forseta,“ sagði Ásg eir
Ásgeirsson alþingismaður í minn ingar orð
um .2 „Með glæsimennsku sinni, virðuleika
og prúðmennsku tókst honum að móta þetta
æðsta embætti landsins þannig að af því stóð
ljómi, tign og fyrir mennska, án nokkurs
tildurs eða prjáls,“ sagði séra Bjarni Jónsson .3
Þess má geta að farið var að tala um for
setann sem sameiningartákn þjóðarinnar
á fyrri hluta starfstíma Sveins, árið 1947 .4
Áður hafði svipað orðalag verið notað um
íslenska fánann .
1 Forseti Íslands Sveinn Björnsson andaðist aðfaranótt
föstudags kl . 3 .30 . Banamein hans var hjartaslag .
Morgunblaðið, 26 . janúar 1952, bls . 1 .
2 Ásgeir Ásgeirsson: Minning Sveins Björnssonar forseta .
Alþýðublaðið, 2 . febrúar 1952, bls . 2 .
3 Bjarni Jónsson: Þannig á forseti að vera . Morgunblaðið,
2 . febrúar 1952, bls . 2 .
4 Forsetaveisla bæjarstjórnar á 161 . afmælisdegi
Reykjavíkur . Morgunblaðið, 19 . ágúst 1947, bls . 2 .
Margir nefndir til sögunnar
Viku eftir útför Sveins var farið að ræða um það í blöðum að „flokkarnir“ ættu
að sameinast um forsetaframbjóðanda .5
Blöðin nefndu hugsanlega frambjóðendur
svo sem Ásgeir Ásgeirsson alþingismann og
bankastjóra, Gísla Sveinsson fv . alþingis
mann, Halldór Kiljan Laxness rithöfund,
Jón Pálmason alþingismann, Ólaf Thors
ráðherra, Pálma Hannesson rektor, Sigurð
Nordal prófessor, Thor Thors sendiherra og
Vilhjálm Þ . Gíslason útvarpsstjóra .6
Rödd fólksins nefndist blað sem samtök
frjálslyndra manna hófu að gefa út í byrjun
mars til að beita sér fyrir því að Gísli
Sveinsson yrði kosinn þjóðhöfðingi .7 Hálf
um mánuði síðar sagði blaðið að enginn
maður hefði jafn mikið fylgi og Gísli .8 Um
miðjan mars var Ásgeir Ásgeirsson talinn
lík leg astur sem frambjóðandi svonefndra
5 Hannes á horninu (Vilhjálmur S . Vilhjálmsson): Vett
vangur dagsins . Alþýðublaðið, 9 . febrúar 1952, bls . 3 .
6 Ajax (Ólafur Hansson): Forsetaefnin . Mánudagsblaðið,
11 . febrúar 1952, bls . 4 . Starkaður: Baðstofuhjal . Tím
inn, 23 . febrúar 1952, bls . 4 .
7 Við kjósum nýjan þjóðhöfðingja í vor . Rödd fólksins, 1 .
mars 1952, bls . 1 .
8 Forsetavalið . Rödd fólksins, 15 . mars 1952, bls . 1 .