Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 27
26 Þjóðmál SUmAR 2012
Saga íslensku krónunnar er ekki glæsileg þegar horft er á hversu mikil virðis
rýrnun hennar hefur verið frá því að hún
var skilin frá dönsku krónunni stuttu eftir
að Ísland fékk fullveldi . Reyndar hafa svo
til allir gjaldmiðlar heims rýrnað stöðugt
vegna verðbólgu frá upphafi síðari heims
styrjaldarinnar og þá sérstaklega á áttunda
áratugi liðinnar aldar, í kjölfar þess að
Bretton Woodssamkomulagið leystist upp .
Undan tekningin frá þessari virðisrýrnun
er japanska jenið síðasta aldarfjórðung
inn, en í Japan hefur verið verðstöðnun og
á tímabili verðhjöðnun allt frá því að jap
anski fasteigna og hlutabréfamarkaðurinn
hrundi fyrir rúmlega tveimur áratugum .
Ástandið í Japan hefur ekki þótt eftirsóknar
vert í augum umheimsins . Krónan hefur
hins vegar rýrnað mun meira en flestir aðrir
gjald miðlar í þróuðum hagkerf um, sem
birtist í lækkun á gengi hennar gagnvart
helstu gjald miðlum heims síðustu 70 árin,
með nokkrum hléum þó .
Í ljósi sögunnar er ekki að furða að ýmsir
velti því fyrir sér hvort ekki kynni að vera
betra að leggja niður krónuna og taka upp
annan gjaldmiðil á Íslandi, einhliða eða í
tengslum við aðild Íslands að Evrópu sam
band inu (ESB) . En er krónan rót vandans
eða er stöðug veiking hennar og óstöðugt
gengi ekki fremur birtingarmynd dýpri
vanda? Ef svo er, munu gjaldmiðilsskipti
draga úr vandanum? Eða eru líkur til þess að
birt ingar mynd vandans breytist og það verði
jafnvel erfiðara og dýrara fyrir sam félagið að
takast á við vandann verði krónunni skipt
út? Væri ekki vænlegra að ráðast að rót
vandans og gera krónuna þannig stöðugri
og verðlagsþróun hérlendis meira í samræmi
við verðlagsþróun í öðrum vestrænum lönd
um, fremur en að fara í yfirborðsbreytingar
með upptöku erlends gjaldmiðils?
Tveir möguleikar
og ein blönduð leið
Það eru aðeins tveir möguleikar þegar kemur að því að velja gjaldmiðil: þjóð
ar gjaldmiðill eða upptaka erlends gjald
miðils . Síðan eru vissulega ólíkar leiðir við
pen inga stjórnun þjóðargjaldmiðils og það
eru nokkrar ólíkar aðferðir við upptöku
erlends gjaldmiðils, en í raun stendur valið
um aðra hvora leiðina .
Erlendur Magnússon
Upptaka erlends
gjaldmiðils á Íslandi