Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 31
30 Þjóðmál SUmAR 2012
viðurkennt að viðskiptahöft eru skaðleg
fyrir hagkerfið, hafa stjórnvöld hérlendis
enn ekki afnumið takmarkanir á ýmsum
innflutningi, né heldur tolla og vörugjöld .
Þá er íslenska ríkið þegar búið að innleiða
höft á fjármagnsflutninga, sem upphaflega
áttu að vara í nokkra mánuði en hafa nú
varað á fjórða ár og ítrekað verið hert á
þeim tíma . Það er því alls ekki útilokað að
lendi íslenskt samfélag í djúpri kreppu, sem
það eigi erfitt með að leysa vegna þess að
landið notast við erlendan gjaldmiðil, komi
fljótt fram hugmyndir frá illa upplýstum
lýðskrumurum um að framkvæma innri
gengisfellingu með innflutningshöftum .
Val á gjaldmiðli
Greinarhöfundur fær með engu móti skilið hvers vegna þeir sem tala fyrir
upp töku erlends gjaldmiðils á Íslandi eru
með hugmyndir um að taka upp tiltölulega
litla gjaldmiðla eins og Kanadadollar eða
norska krónu, gjaldmiðla sem afar lítil við
skipti eru með á alþjóðlegum vettvangi .
Vilji menn á annað borð fara út í þá áhættu
sem felst í upptöku erlends gjaldmiðils á
Íslandi ættu menn að velja stærsta og lang
mikil vægasta gjaldmiðil heims, Bandaríkja
dollar . Slíkt myndi auka ávinninginn af
upptöku erlends gjaldmiðils; en ekki er
greinarhöfundur að hvetja til þess .
Vart kemur til greina að taka einhliða upp
næststærsta gjaldmiðil heimsins, evruna .
Með einhliða upptöku væri Ísland að skapa
sér mikla óvild ESB, sem er mjög mót
fallið einhliða upptöku evrunnar í lönd
um utan gjaldmiðilssambandsins (næg eru
deilumálin milli Íslands og ESB, án þess
að menn fari að óþörfu að bæta þar á) . Þá
fælist í því veruleg áhætta vegna þess að
óvíst er með öllu hvort evran verði til sem
gjaldmiðill eftir nokkur ár og verði hún til
er líklegra en ekki að aðildarlöndin verði
ekki að öllu leyti þau sömu og í dag —
verður evran germönsk eða latnesk? Eina
skyn samlega leiðin til að taka upp evruna er
með aðild að ESB . Það er ferill sem myndi
taka fjölda ára, því að fyrst þyrfti Ísland
að uppfylla skilyrði Maastrichtsáttmálans,
þ .m .t . afnema öll gjaldeyrishöft, auk þeirra
við bótar skilyrða sem líklega verða sett á
næst unni . Það verður enginn „afsláttur“
veitt ur við upptöku evrunnar eftir allt það
sem á undan er gengið í Evrópu .
Þeir gjaldmiðlar sem koma á eftir dollar og
evru í alþjóðaviðskiptum eru breska pundið
og japanska jenið, en aðrir gjaldmiðlar skipta
svo til engu máli í alþjóðaviðskiptum . 2
Mýtur um erlenda gjaldmiðla
Umræðunni um upptöku erlends gjaldmiðils á Íslandi hafa fylgt ýmsar
mýtur um kosti upptöku erlends gjaldmiðils
umfram það að vera með þjóðargjaldmiðil .
Aðrar algengar mýtur eru:
Stærð gjaldmiðils leiðir til stöðug
leika:
Það er vissulega rétt að það dregur úr við
skiptakostnaði að nota Bandaríkjadollar í
alþjóðaviðskiptum og það er dýpri mark
aður í viðskiptum með stóra og miðl ungs
stóra gjaldmiðla en litla gjaldmiðla eins og
krónuna . Hins vegar er það rangt sem oft
er fullyrt að stærð hagkerfis ráði stöðug
leika gjaldmiðils og vaxtastigi . Nokkur
af fámennari ríkjum heims búa við mjög
stöðuga gjaldmiðla, sem sumir eru jafnvel
eftir sóttari meðal sparifjáreigenda en gjald
miðlar stórríkja . Sem dæmi má nefna
Noreg (5 milljónir íbúa), NýjaSjáland (4,4
milljónir íbúa) og Singapúr (5 milljónir
íbúa) . Vissulega eru þessi lönd mun fjöl
2 Kannski ættu Íslendingar að taka upp kínverskt yuan . Þá
væri mynd af Maó formanni á öllum seðlum í umferð, en
það hefði sumum yfirmönnum Seðlabankans án efa hugnast
vel á sínum yngri árum!