Þjóðmál - 01.06.2012, Page 32
Þjóðmál SUmAR 2012 31
mennari en Ísland, en þau eru engu að síður
smáríki í samanburði við Bandaríki Norður
Ameríku, evrusvæðið, Japan, Kína, Indland,
Rússland, Brasilíu og Indónesíu, sem öll eru
með meira en 100 milljónir íbúa og mun
stærri hagkerfi . Greinarhöfundur er ekki
að gera því skóna að íslenska krónan yrði
jafnsterk og eftirsótt og Singapúrdollar eða
norsk króna og alls ekki víst að slíkt væri
heppilegt, en stærðarrökin eru bábilja .
Jafnvel þó svo að Íslendingar tækju upp
nokkuð stöðugan gjaldmiðil er ekki gefið
að slíkt leiddi til stöðugleika íslenska hag
kerfisins . Þvert á móti má búast við því
að ýmsir þættir, sem fyrrum hafa leitt til
óstöðugleika, muni gera það áfram . Birt
ingar myndin yrði fremur í stærri sveiflum
í atvinnustigi og gjaldþrotum fyrirtækja .
Þó að ætla mætti að hegðun landsmanna
breyttist eitthvað við að taka upp gjaldmiðil
sem þeir gætu á engan hátt stýrt, þá sýnir
reynslan af evrusvæðinu að upptaka erlends
gjaldmiðils (evrunnar) breytti ekki hegðun
stjórnvalda og íbúa þeirra landa nægilega til
þess að koma í veg fyrir gríðarlegar sveiflur .
Lægri vextir:
Það er ekki gefið að vextir á Íslandi lækki
endilega við upptöku erlends gjald miðils .
Vextir ráðast af framboði og eftirspurn, svo
og mati á mótherjaáhættu í lána viðskiptum .
Á upphafsdögum evrunnar gerði fjármála
markaðurinn þau mistök að krefjast svo
til sömu ávöxtunar á öllu evrusvæðinu .
Afleiðingin varð m .a . gríðarleg fasteignabóla
á Írlandi og á Spáni, svo og ofskuldsetning
ríkja eins og Portúgals og Grikklands . Þó
svo að vextir á fasteignalánum á Írlandi hafi
lækkað eftir upptöku evrunnar hækkaði sú
upphæð sem Írar þurftu að greiða samtals
í vexti og afborganir húsnæðislána, vegna
hærra fast eigna verðs, sem nú hefur gengið til
baka — en það sama á ekki við um höfuðstól
lán anna sem tekin voru . Lágir vextir þýða
ekki endilega að heimilin hafi meira á milli
hand anna, sérstaklega þegar tekið er tillit
til þess að það eru einnig heimilin sem eru
spari fjáreigendur . Í dag er ástandið annað á
evrusvæðinu . Vextir eru nú orðnir misjafnir
milli landa, sem endurspeglar misjafnt
aðgengi að fjármagni og áhættumat, þrátt
fyrir að Seðlabanki Evrópu dæli fjármagni
inn í bankakerfið .
Afnám verðtryggingar:
Við upptöku nýs gjaldmiðils falla gerðir
samningar ekki niður, heldur breytast þeir
yfir í skuldbindingar í nýja gjaldmiðlinum .
Þannig er farið samkvæmt lögum ESB ef
tekin er upp evra og dómar Hæstaréttar í
svokölluðum gengislánamálum staðfestu að
ekki megi hrófla við umsömdum ákvæðum
lánssamninga, svo sem vöxtum, þrátt fyrir
að skipt sé um gjaldmiðil . Það verður því
að gera ráð fyrir að verðtryggð skuldabréf
og lánssamningar, sem þegar hefur verið
stofnað til, haldist óbreytt . Það ræðst síðan
af ákvæðum þessara samninga hvort og
hvernig hægt er að greiða upp lán fyrir lok
samningsbundins lánstíma .3
Hvað ný lán varðar mun framboð óverð
tryggðra lána ráðast af áhuga fjárfesta á
3 Það er þrálátur misskilningur að verðtrygging lána sé
rótin að misgengi húsnæðisverðs og húsnæðislána . Hækkun
verðtryggðra lána er birtingarmynd vandans en ekki orsök
hans . Misgengi húsnæðisverðs og húsnæðislána stafar af
raunlækkun húsnæðisverðs, en raunvirði húsnæðisverðs
getur sveiflast gríðarlega og hefur gert það í svo til öllum
löndum á einhverjum tímabilum . Þar sem verðbólga
er lítil er birtingarmyndin hins vegar mikil lækkun á
nafnvirði húsnæðis á meðan upphæð höfuðstóls slíkra lána
helst óbreytt . Dæmi um slíkt er lækkun fasteignaverðs í
Finnlandi upp úr 1990 og á Írlandi á síðustu árum, en í
báðum tilfellum lækkaði húsnæðisverð um meira en 50%
að nafnvirði á skömmum tíma . Þegar raunvirði húsnæðis
lækkar er vandi húseiganda hinn sami hvort sem hann býr
við verðtryggð lán og verðbólgu eða óverðtryggð lán og
nafnvirðislækkun húsnæðis . Eigið fé rýrnar hratt, sérstaklega
ef stór hluti fjárfestingarinnar er fjármagnaður með lánsfé .
Það er því hrein fölsun að reyna að telja fólki trú um að með
upptöku erlends gjaldmiðils yrðu vandamál tengd misgengi
húsnæðisverðs og húsnæðislána minni en verið hefur á
Íslandi fram til þessa .