Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 63

Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 63
62 Þjóðmál SUmAR 2012 lagt til að 1 .000 mia króna, sem nú eru í lausum innstæðum, yrðu færðar yfir á efna­ hagsreikning Seðlabankans og yrðu þar með skuld Seðlabanka við innstæðuhafana þótt viðskiptabankar sæju áfram um öll samskipti við innstæðuhafa . Á móti myndi Seðlabankinn eignast jafnháa kröfu á bankana . Sú krafa myndi innheimtast jafn­ óðum og útlánasafn bankanna innheimtist, hugsanlega á tíu árum . Bankarnir hefðu því góðan tíma til að laga rekstur sinn að breyttu umhverfi . Það verður að teljast ólíklegt að inn­ stæðuhafar myndu vilja liggja með 1 .000 mia á vaxtalausum innistæðureikningum í Seðla ­ bankanum . Þeir myndu trúlega frekar vilja færa verulegan hluta af þeim krónum yfir á bundna innlánsreikninga sem gæfu vexti . Það er rétt að taka fram að þótt peningavaldið yrði tekið af bönkum myndi það ekki þýða að bankar yrðu ríkis vædd­ ir . Einkabankar myndu eftir sem áður bjóða upp á innlánsreikninga, lánveitingar, greiðslu miðlun, gjaldeyrisviðskipti og flest sem heyrir til bankastarfsemi í dag . Mikill ávinningur Með þessum breytingum þyrfti ekki að óttast áhlaup á bankana, því að inn stæður á óbundnum reikningum væru ávallt til reiðu hjá Seðlabanka og bundin innlán væru ekki til útgreiðslu fyrr en bindi­ tíminn væri liðinn . Leggja mætti því niður hið kostnaðarsama og gagnslausa inni­ stæðutryggingakerfi . Einnig mætti draga úr ýmsum öðrum íþyngjandi kröfum á banka­ kerfið . Seðlabankinn myndi geta stýrt peninga­ magni með beinum og skilvirkum hætti . Þótt peningastefnunefnd tæki ekki alltaf réttar ákvarðanir um peningamagn er nánast öruggt að slík nefnd myndi ná betri árangri fyrir þjóðina en þau hags­ munaöfl sem hingað til hafa ráðskast með peningavaldið . Með þessum breytingum væri einnig búið að aðskilja ákvörðunina um aukningu pen ingamagns og ráðstöfun þess . Hvorki stjórnvöld né einkabankar gætu lengur stjórnað peningamagninu . Krónan myndi þar með verða miklu stöðugri gjaldmiðill en hingað til og verðtrygging yrði að öllum líkindum óþörf . Tugmilljarða árlegur myntsláttuhagn að­ ur bankanna myndi lækka ár frá ári um leið og skuld þeirra við Seðlabank ann greidd­ ist upp . Seðlabankinn (ríkissjóð ur) myndi framvegis fá myntsláttuhagn að af nýj um rafkrónum og hann mæti nota til að lækka skatta eða greiða niður ríkisskuldir . Betri króna er framtíðin Talsverð umræða hefur verið um upp­töku erlendrar myntar en þeim mun minna fjallað um leiðir til að ná betri árangri með krónu sem framtíðargjaldmiðil . Nú ríkir óvissa um framtíð myntbandalags Evrópusambandsins og viðhorfskannanir benda til þess að þjóðin sé mótfallin aðild . Skoðanir eru mjög skiptar um kosti þess að taka einhliða upp erlenda mynt . Líklegt má telja að krónan verði enn um sinn gjaldmiðill Íslands og því ekki eftir neinu að bíða að gera endurbætur á umgjörð hennar . Stjórnmálamenn ólíkra flokka ættu að geta fallist á nauðsyn þess að koma peningavaldinu í skjól, efla þar með verðstöðugleika og færa tug milljarða myntsláttuhagnað bankanna til þjóðar­ innar . Heimildir: Huber & Robertson: • Creating New Money, a monetary reform for the information age, 2000 . Fisher: • The Chicago Plan for Monetary Reform, 1933 . Zarlenga: • The Lost Science of Money, 2002 . Positivemoney .org .uk .•
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.