Þjóðmál - 01.06.2012, Síða 65
64 Þjóðmál SUmAR 2012
hefði mátt heyra saumnál detta þegar einir
1000 viðstaddra héldu niðri í sér andanum .
Berlínarbúar gátu líka átt þess von að
þetta yrði tilkynning um yfirvofandi árás
rússneskra skriðdreka eins hótað hafði verið
árinu áður . En það var þetta spennuþrungna
andartak grafarþagnar sem sagði sitt . Og líka
að á eftir virtust svo allir fara að skvaldra í
einu, léttir í bragði .
Úr bréfi til Elsu
frá Berlín, 1 . nóv . ´62
Ég ætla að hripa þér nokkrar línur áður en ég fer að sofa, en þetta hefur verið
mikill og merkilegur dagur .
Í morgun fórum við í ferðalag meðfram
Berlínarmúrnum . Hann var reistur í fyrra
og lokar öllum samgangi milli Vestur og
AusturBerlínar . Eins og þú veizt af frétt
um hafa AusturBerlínarbúar stöðugt verið
að reyna að komast yfir múrinn, en hans er
gætt af vopnuðum vörðum austan megin .
Margir, sem reynt hafa þetta, hafa verið
drepnir undanfarið ár, og eru krossar og
minnismerki um þá víða með múrnum .
Það er óskaplegt að sjá þennan múr og
fólkið og verðina austan megin . Yfir þessu
öllu liggur einhver ólýsanleg spenna og
tragedía . Nú er búið að hækka múrinn
og auka gaddavírsgirðingarnar, þannig að
manni virðist óskiljanlegt að nokkur skuli
reyna að komast yfir hann . Þó kemur
það fyrir — núna í nótt slapp einn yfir
um . Hann þurfti að auki að synda yfir
á . Það gengur þó ekki alltaf jafn vel . Það
var skotið á ungan mann fyrir nokkrum
mánuðum og verðirnir létu hann svo
eiga sig í næst um klukkutíma . Fólkið
vestan megin horfði á manninn á meðan
honum var að blæða út — ekki ætti ég
kannske að vera að orðlengja þetta en það
hafði mikil áhrif á mig . Hér í nokkurra
kílómetra fjarlægð er sem sagt allt þetta
fólk í fangelsi .
Okkur var boðið í hádegisverð hjá einum
hverfisborgarstjóra hér og síðan í sightseeing
um Berlín . . . Í kvöld fórum við á My Fair
Lady sungið á þýzku . Það var ekkert betra
en heima . . .
Úr bréfi til Elsu
frá Hamborg, 2 . nóv . ´62
Ekki verður sagt að AusturBerlín hafi verið kvödd með neinum tárum eftir
nokkurra klukkustunda heimsókn þar
árdegis í dag áður en flogið var hingað .
En þessi lokapunktur í heimsókninni til
Berlínar verður okkur Varðbergshópnum
minnisstæður dagur, víst er um það . Múrinn
illræmdi blasti þarna við, en útlendingum
er víst yfirleitt ekki meinað að fara inn fyrir
og heimsækja austurhlutann, en það geta
Þjóðverjar ekki .
Okkur var skipt niður í þrjá bíla og var
okkur ekið af Jórdana sem er við háskólanám
í Þýskalandi . Var farið í gegnum þann
kvikmyndalega fræga Checkpoint Charlie
og þegar ég afhenti diplómatapassann
minn sagði Volkspolizeifyrirliðinn með
hríðskotabyssu að ég og samferðafólk mitt
færu í gegn óskoðuð þar sem ég staðfesti
að vera ekki með neitt tollskylt . Nöfn voru
nóteruð og það væri á mína ábyrgð að
farþegar, bílstjóri og Opelbílinn skiluðu sér
aftur á sömu stöð fyrir kvöldið . Hjá hinum
var mikið skoðað og rexast en síðar skildu
leiðir . Jæja, þá var maður kominn inn í alla
dýrðina . Og auðvitað blasti það við, að allt
var ósköp aumt og ósmekklegt samanborið
við VesturBerlín . Austan megin við Brand
en borgarhliðið hafa verið reistar þessar
kassa legu Sovétstílsbyggingar og geypi leg
sigur mónument . Þetta og Karl Marxbreið
gatan eiga að vera hrífandi en ná því síður
en svo . Það gerir ósköp ömurlegt og gleði