Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 67
66 Þjóðmál SUmAR 2012
á hina glæsilegu Hamborg sem blasir við,
verður manni þakklæti í huga fyrir okkar
hlutskipti, Íslendinga, en það er varið af
NATO og annarri vestrænni samvinnu .
Mín afstaða er skýr .
*
Löngu síðar lá leiðin aftur til velmegandi Berlínar í sameinuðu Þýskalandi . Fátt
minnti á dapurlega fortíð . Helst væri það þá
Brandenborgarhliðið en þar höfðu Austur
Berlínarbúar fagnað frelsi 1989 . Einhverjar
hugleiðingar um þetta setti ég í blaðgrein frá
2010 („Berlín“, Fréttablaðið 28/10 2010)
sem hér fer á eftir .
*
Að Berlín væri gjöreyðilögð í stríðinu var okkur ungmennum þeirra ára
harla lítið undrunarefni . Í þessu síðasta
vígi Hitlers voru ótrúlega illvígir bardagar
fanatískra þýskra hersveita við rússneska
herinn og eftir stóðu rústir einar . Berlín
sýndist manni af fréttamyndum ekki annað
en steinhrúga . Um tuttugu árum síðar gafst
höfundi þessara lína tækifæri að heimsækja
borgina, þá hersetna af sigurvegurunum en
múrinn skildi að Vestur og AusturBerlín .
Farið var í gegnum hinn fræga Checkpoint
Charlie inn í Þýska alþýðulýðveldið . Í
end ur reisninni var um að ræða tvær borg
ir, að vísu aðskildar en þó samvaxnar og
hvor mjög svo með sínum brag, önnur
spennandi, hin grá og leiðinleg; vestur
hlutinn var birtingarmynd allsnægta fyrir
hina fangelsuðu austurbúa . Ekki var útlit
fyrir annað en að hin tilkomulitla Bonn
yrði höfuðborg VesturÞýskalands um
ókomin ár . En 1989 féll Berlínarmúrinn,
Þýskaland sameinast 3 . október 1990 og
með að höfuðborg þá hina sömu og fyrrum
varð til sem stórborg á keisaratímanum .
Berlín varð að rísa að nýju og gefur það
borginni sérstakan sess meðal stórborga
eins og París, London og Washington . Um
80% miðborgarinnar voru eyðimörk eftir
stríðið og einu mesta byggingarátaki sög
unnar er það að þakka að þarna er núna nær
4 milljóna manna glæsileg nýtískuborg . Og
höfuðborg Þýskalands, stærsta aðildar ríkis
Evrópusambandsins, sómir sér vel á vatna
skilum sinnar erfiðu fortíðar og bjartrar
framtíðar nýrrar Evrópu . Branden borgar
hliðið, sem áður var á mörkum Austur og
VesturBerlínar, er táknrænt nýtt hlið við
að þungamiðja Evrópu sambandsins hefur
færst til austurs . En það verður heldur ekki
hlaupið frá fortíðinni . Átakanlegt geipistórt
minnismerki er um milljónir gyðinga sem
myrtir voru af mönnum Hitlers . Sýnishorn
er af múrnum og Checkpoint Charlie . Því
geyma Þjóðverjar þessa fortíð og sinna
nýju hlutverki . Þeirra er stærsta hagkerfi
Evrópusambandsins sem hefur notið hins
frjálsa innri markaðs um vöxt og viðgang
undanfarna áratugi .
Ein afleiðing söguþróunarinnar, þegar
Þýska land sameinast og höfuðborgin flyst til
Berlínar, var að samvinna Norðurlandanna
tók á sig nýja og glæsilega mynd . Tekið var
höndum saman um að byggja þar sam eigin
lega sendiráðsskrifstofur landanna fimm .
Hvergi er sendiráð Íslands betur sett en í
því samfélagi . Höfundur átti þess kost fyrir
skemmstu að heimsækja þarna hinn marg
reynda sendiherra Gunnar Snorra Gunnars
son, fyrrum ráðuneytisstjóra, og starfslið hans .
Ánægjulegt var að geta kynnst því að í þessu
sameiginlega sendiráða svæði hefur á rösk
um áratug áunnist sterk staða í Þýskalandi,
hvort sem er í stjórn málatengslum, viðskipt
um eða menn ingarlegri útbreiðslu . Og starf
sendi ráðsins í Berlín er sömuleiðis rækt
eftir föngum í Póllandi, Króatíu, Serbíu og
Montenegró . Sé litið til austurs er Berlín
ákjósanlegur staður .