Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 70
Þjóðmál SUmAR 2012 69
afþreyingu . Tíðni átaka og glæpa er meiri
í fjölbreyttari samfélögum samkvæmt
rann sóknum, en í staðinn eru þau
gjarnan frjórri og dýnamískari en eins
leit samfélög . Innflytjendastraumur getur
aukið mannmergð á þeim svæðum sem
hann beinist að og hann eykur fjölbreytni
við kom andi samfélaga í samræmi við fjölda
hinna nýju íbúa og bakgrunn þeirra . Mikill
fjöldi innflytjenda frá ólíku menningarsvæði
getur haft áhrif á staðbundin samfélagsleg
verðmæti, sem hafa orðið til á löngum tíma,
eins og tungumál, trú, svipmót, fagurfræði,
siðvenjur og aðra menningarlega þætti .
Lýðfræðileg (e . demographic) samsetning samfélaga skiptir óneitanlega máli
fyrir fólk, ekki síst í nútíma lýðræðislegum
vel ferðarríkjum, þar sem nágranni þinn
hefur pólitískt vald yfir þér í gegnum
kosn ingarétt sinn og efnahagslegt vald
yfir þér í gegnum velferðarkerfið, sem er
fjár magnað með skatttekjum ríkisins . Hið
pólitíska og efnahagslega vald verður ef
til vill ekki virkt á meðan innflytjendur
hafa ekki ríkisborgararéttindi, en þau
verða virk þegar sá réttur er fenginn, sem
gerist iðulega á endanum, annaðhvort
eftir nokkurra ára búsetu eða í gegnum
afkomendur . Ef samfélagsbreytingar, sem
fylgja miklum inn flytjendastraumi, hafa
ekki áhrif á nú verandi kynslóðir munu
þær nær örugg lega hafa áhrif á komandi
kynslóðir .
Ekki er hægt að leggja hlutlægan mælikvarða á hvort áhrifin séu góð eða
slæm; það fer eftir atvikum hverju sinni og
lífsviðhorfum þess fólks sem í hlut á . Aukn
ir búferlaflutningar tengjast hnatt væðing
unni og hafa svipaða kosti og galla og hún .
Suðu pottar ólíkra hópa eru spennandi stað
ir og vettvangur alls kyns gerjunar og úr
vals í matargerð, listum, vísindum, íþrótt
um og fleiru . En viljum við endilega að allt
„hráefnið“ fari í slíka suðupotta? Mynd
um við gera jörðina að litríkari og áhuga
verðari stað með því vinna markvisst að því
að umbreyta menningarlega íhalds sömum
og eins leitum svæðum í opin, frjálslynd
og heims borgaraleg svæði eins og London
og New York? Getur ekki líka fólgist
auður í varðveislu ýmissa samfélagslegra
einkenna? Slík einkenni geta ekki aðeins
orðið frjálslyndri „heimsborgaravæðingu“
að bráð, heldur geta þau einnig vikið fyrir
yfirgangi annarrar íhaldssamrar menn
ingar . Meira að segja eru dæmi um að inn
flytjendastraumur sé hreinlega skipulagð
ur og notaður sem aðferð til að ná land
pólitísk um (e . geopolitical) markmiðum .
Eitt slíkt dæmi er Tíbet . Beijingvaldið
hefur um nokkurt skeið hvatt HanKínverja
til að setjast að í Tíbet, en slík Kínavæðing
svæð isins eflir tilkall kínverskra stjórnvalda
til svæðisins og stuðlar að varanlegum
yfirráðum .
Annað dæmi er frá dögum Sovét ríkjanna, þegar Moskvuvaldið beitti sér
fyrir búferla flutningum Rússa til Eystrasalts
ríkjanna og fleiri svæða undir sovéskum yfir
ráðum . Tilgangurinn var í raun áþekkur og í
tilfelli Tíbeta og Kínverja . Hinir skipulögðu
þjóðflutningar í Sovétríkjunum urðu
reynd ar kveikjan að því að einn virtasti og
atkvæða mesti hugmyndafræðingur frjáls
hyggju manna á tuttugustu öld, Murray
Rothbard, endurskoðaði afstöðu sína til
inn flytjendamála . Áttu hinar kúguðu þjóðir
ekki rétt á að verja landsvæði sitt gegn
rússneskum innflytjendum? Getur verið
að hin fallega hugmynd frjálshyggjunnar
um búsetufrelsi standist ekki próf raun
veruleikans? Þá væri frjálshyggjan gallað
hugmyndakerfi sem bæri að kasta fyrir róða,
því að hugmyndir verða að vera góðar fyrir
þann heim sem við lifum í, en ekki fyrir