Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 73
72 Þjóðmál SUmAR 2012
Forystumenn Evrópusambandsins (ESB) hefur frá upphafi dreymt um, að með
þessu ríkjasambandi, sem leynt og ljóst er
verið að þróa í átt að sambandsríki, nái
Evrópu ríkin viðspyrnu í samkeppni sinni
um stjórn málaleg, viðskiptaleg og síðar
hern að ar leg áhrif í heiminum við BNA,
Banda ríki NorðurAmeríku . Þetta er yfir
skyggj andi markmið hugmyndafræðinga og
búró krata ESB í Brüssel . Hvað þurfa þeir til
að ná þessu markmiði?
Aðgengi að orku og hráefnum
Sumarið 1972 var tekizt grimmilega á í Noregi um samning, sem þá hafði
verið gerður um inngöngu Noregs í Efna
hags bandalag Evrópu, EBE, forvera ESB .
Barátt an var tilfinningaþrungin af því, að
fjöl margir Norðmenn litu svo á, að Þjóð
verjar væru nú að undirbúa endurkomu
sína eftir hrun Þriðja ríkisins 1945 til að ná
tangar haldi á auðlindum Noregs, en fjöldi
Norðmanna átti á árinu 1972 enn bitrar
minningar frá stríðsárunum og hernámi
Wehrmacht á árunum 1940–1945 .
Árið 1972 höfðu nýlega fundizt miklar
olíulindir í Norðursjó, sem Norðmenn
höfðu einsett sér að nýta sjálfum sér til
fram dráttar . Þjóðaratkvæðagreiðslan um
aðild Noregs að EBE haustið 1972 snerist
af þessum sökum um yfirráð auðlinda í
norskri lögsögu . Fiskimið Norðmanna og
yfirráð þeirra voru þar með mjög í um
ræðunni á milli Já og Neifólks . Ekki þarf
nú að fara í grafgötur um, að ákvörðun
Norðmanna þá og aftur árið 1994 um
að hafna ESBaðild var rétt miðað við
þjóðarhagsmuni þeirra .
Enn horfa þjóðir ESB til norðurs . Þar
eru gríðarleg hafflæmi, sem lúta stjórn Ís
lendinga og Norðmanna . Þarna er að finna
mikilvægt fæðuforðabúr Evrópu, og að
öllum líkindum eldsneytislindir, sem létt
gætu á óvissum orkuaðdráttum Evrópu
vestan Rússlands .
Sem dæmi má nefna, að olíubirgðirnar,
sem taldar eru vera undir hafsbotni ís
lenzka hluta Drekasvæðisins, nema um
10 milljörðum tunna . Miðað við að vinna
1 Mtu/d,1 sem er fremur afkastamikil
vinnsla af einu olíusvæði, mundu þessar
lindir endast í um 30 ár . Ef reiknað er með
söluverði þessarar framleiðslu 150 USD/tu,
sem er lágmark þess, sem vænta má að 10
árum liðnum,2 munu árssölutekjur þessarar
vinnslu nema 35 590 milljörðum kr . eða
sem jafngildir landsframleiðslu 22ja ára á
Bjarni Jónsson
Hagsmunir ESB á Íslandi