Þjóðmál - 01.06.2012, Síða 77
76 Þjóðmál SUmAR 2012
Hvað eiga Mónakó, Kuwait, Lúxemborg og Ísland sameiginlegt? Jú,
mest ur hluti fólksins í þessum löndum býr
á höfuð borgarsvæði þeirra . Vegna plássleys
is; land fræðilegs eða andlegs .
Á Íslandi búa nú um það bil 320 þúsund
manns, tæplega þre faldur sá mann fjöldi sem
gaf út sjálf stæðis yfirlýsingu íslenska lýð veld
isins árið 1944 . Á höf uð borgar svæð inu búa
nú um 205 þúsund manns . Þjóðríki Ís lend
inga er 103 þúsund ferkíló metrar að flatar
máli, ofan sjávar . Og þjóðríki okkar hefur
aðsetur á átjándu stærstu eyju heimsins . Að
flatarmáli er hún helmingur StóraBret lands
og 325 sinnum stærri en eyjan Malta . Land
helgi þjóðríkis okkar er um 750 þúsund
ferkílómetrar að stærð . Við höfum því tæp
lega milljón ferkílómetra til umráða . Þetta
er mun meira en í Mónakó þar sem allt
fólkið í ríkinu neyðist nánast til að hírast í
ein um peningaskáp . En samt búa 205 þús
und ir af 320 þúsund manna þjóð okkar á
aðeins tuttugu þúsund hekturum lands, eða
sem svar ar til rúmlega helmings jarð næðis
Gríms staða á Fjöllum . Á aðeins tvö hundr
uð fer kílómetrum búa sextíu og fjögur prós
ent þjóð arinnar . Mestur hluti þjóðarinnar
býr sem sagt í eins konar skráargati að Ís
landi .
Í þjóðríki Íslendinga ríkir engin byggða
stefna . Engin . Þegar landið okkar var numið
var hins vegar sterk byggðastefna í gildi;
að nema landið . Hún var einföld og öflug og
hún virkaði án aðstoðar bygging ar reglu gerða
og embættismanna veld is . En tólf hundruð
árum síðar búa um það bil sextíu og fjögur
prósent mannfjölda þjóð ríkis okkar á aðeins
200 ferkílómetrum þess lands sem numið
var . Sem svarar til núll komma tveggja
prósentu hlutfalls þjóð ríkisins . Á hinum
102 .800,09 ferkíló metrum Íslands, rúm
lega tíu milljón hekturum, búa nú jafnvel
færri eða álíka margir og bjuggu þar á tímum
Snorra Sturlusonar um og upp úr alda
mótunum 1200 . Hvernig gat þetta gerst?
Af svona byggðastefnu leiðir:
• Verðbólga verður meiri. Það þekkja þeir
Gunnar Rögnvaldsson
Byggðastefna undir
sjálfstæðisyfirlýsingu
Vegurinn opnaður vegna jarðarfarar?