Þjóðmál - 01.06.2012, Síða 78
Þjóðmál SUmAR 2012 77
sem búa á höfuðborgarsvæðinu því þeir
hafa knúið verðbólguna áfram með eins
konar hurðarskellum .
• Bólumyndun í hagkerfinu verður eðli
lega meiri .
• Nýsköpun verður minni því of margir
hugsa eins við svipaðar aðstæður .
• Samkeppni minnkar því svæða og hér
aðs öfl landsins eru orðin geld .
• Fjölbreytni minnkar því svo fáir vita um
alla möguleikana annars staðar . Þeir eru í
hjörð sem bítur gras á sama bala á sama
stað .
• Fákeppni innanlands og eignaupptaka
fyrir utan ferkílómetrana fáu verður ráð
andi .
• Samfélagið verður vanskapað, visnar og
gæti veslast upp .
• Landið verður tekið af okkur og aðrir
nema það .
Spurningar vakna
Kveikjuna að hugsunum mínum um lands byggðarþróun á Íslandi má rekja
til 25 ára samfelldrar búsetu í ESBland
inu Danmörku . Það var árið 1985 að við
fjöl skyldan lentum á Jótlandi og hófum
þar háskólanám . Árið 1989 hófum við
hjónin fyrirtækjarekstur sem náði til alls
landsins . Þegar börnin okkar höfðu náð
15 ára aldri á erlendri grund, var of seint
fyrir okkur að flytja heim á ný, fyrr en þau
væru vaxin úr grasi . Væru orðin sjálfbjarga
og helst sjálf flutt að heiman . Því sem
foreldri flytur maður ekki frá börnum
sínum . Það gengur ekki . Jafnvel þó svo
að okkur langaði lengi aftur „heim“ . Árið
1997 gjörbreyttum við fyrirtæki okkar og
gerðum það að ráðgjafarþjónustu, stund uð
um markaðsrannsóknir, rekstrar ráð gjöf og
veittum stund um rekstrarþjón ustu . Þegar
fyrstu fyrirtækin á Íslandi byrjuðu að leita til
okkar eftir ráðgjöf og markaðs rannsóknum
voru liðin fáein fá ár frá aldamótunum
árið 2000 . En svo ótrúlega sem það kann
að hljóma, varð ég hægt og rólega fyrir
áfalli þegar ég gat farið að mynda mér
heildstæða skoðun um marga, en þó alls
ekki alla, hina íslensku viðskiptavini mína .
Hvað er eiginlega að gerast uppi á Íslandi?
hugsaði ég . Hvað er að? Af hverju eru þeir
orðnir svona?
Jú, þeim fundust vegalengdir oft svo
furðu lega miklar og oft óbærilega langt að
aka í Danmörku, sem þó er aðeins rúmlega
einn þriðji af öllu flatarmáli Íslands . Kannski
væri réttara að segja að þeim fundust allar
vegalengdir svo ótrúlega miklar fyrir utan
Ráðhústorgið og Strikið, sem sumir halda
enn að sé götuheiti . Greinilegt var að of
margir Íslendingar hugsuðu fyrst og fremst
ein ungis í höfuðborgum og sáu lífið sem
höfuð borg . Já, en Danmörk er hvorki
Ráð hús torgið, Strikið né Kaup manna
höfn, sagði ég . Aðeins 34 prósent Dana
búa á höfuðborgarsvæðinu í samanlagt 34
bæjar félögum . Helmingur fyrirtækja lands
ins hefur aðsetur á Jótlandi og Fjóni . Þessi
15 þúsund manna bær þarna til vinstri við
næstu vegamót er til dæmis með uppland
sem er þrefalt að mannfjölda og sem
verslunarstaður er hann fyrirtak . Starfs
fólkið er ákaflega gott og áreiðanlegt á
jaðar svæðum svona bæja . Þarna fer einnig
fram mesta nýsköpunin í öllu hagkerfi Dan
merkur, þ .e .a .s . á jaðarsvæðum þéttbýlis og í
sveit um umhverfis þéttbýliskjarna af flestum
stærðum og gerðum . Nýsköpun þrífst illa í
skarkala, dýrtíð, tímaskorti og samgöngu
höft um höfuðborga .
En þetta skildist ekki og sennilega vegna
þess að flest fólk í svo kölluðu „viðskipta
lífi“ á Íslandi er að miklu leyti hætt að
sjá land ið sitt eins og það er . Næstum
allt við skipta líf landsins hefur aðsetur á
hálfri landareign Gríms staða á Fjöllum og
lítur á 99,98 prósent af Íslandi sem eins