Þjóðmál - 01.06.2012, Side 79
78 Þjóðmál SUmAR 2012
konar „frístundasvæði“ . Þeir sem fást við
viðskipti búa og hugsa undir nokkurs
konar hjálmi og sjá illa út fyrir hann nema
þá helst í gegnum glugga á eilífri ferð um
borð í flugvél á leið til höfuðborga útlanda .
Firr ingin hefur náð svo langt að margt fólk
á höfuð borgarsvæðinu heimtar nú að þing
kosninga atkvæði bóndans, sem sjálfur þarf
landrými mælt í hekturum, til að halda
lífinu í 200 manns sem býr á fimmtán
hundruð fermetra lóð undir einni blokk
á höfuðborgarsvæðinu, hafi jafnmikið, eða
öllu heldur, jafnlítið þjóðríkislegt vægi og
atkvæði þeirra sem búa á svæði sem er minna
en gólfið sem hann þarf undir tvo tugi fjár
á vetrarfóðrum . Hér er hætta á ferðum .
NorðurAtlantshafsatkvæðin í þing kosn ing
um í Danmörku fóru oft illilega í taugarn ar
á Dönum í Danmörku . Erum við á leið í
þessa átt? Já, svo sannarlega .
Nýjar kynslóðir, sem eingöngu hafa
vaxið upp á höfuðborgarsvæðinu, sjá heil
lönd sem höfuðborgir og koma ekki auga
á tækifærin utan þeirra . Ég óttast að við
skiptalífið í Reykjavík sjái ekki skóg sinn
vegna trjáa . Það sama gildir um marga
þing menn og fylgifiska þeirra .
Komin heim
Síðan við fluttum aftur heim til lands okkar hef ég hundrað sinnum mátt
hlusta á fólk spyrja þeirrar spurningar
sem hljóðar svo: Hvernig Ísland viljum
við? Þetta finnst mér vera spurning úr öllu
sam hengi við raunveruleikann og frekar
dapurleg . Spurningin ætti að vera þessi:
Ætlum við að eiga Ísland eða ekki? Þetta er
sú spurning sem þjóðin ætti að spyrja sig nú .
Ætlum við að halda landinu eða ætlum við
að tapa því úr höndum okkar? Land, sem er
ekki notað, verður alltaf á endanum tekið
af fólkinu .
En fólkið verður að sjá tækifæri í byggða
stefnu . Það verður að gera það á sama
hátt og það sá tækifærin í Reykjavík og
fluttist þangað þeirra vegna . Þegar byggða
stefna er nefnd á nafn í dag sér fólkið fyrir
sér kjör dæma pot þingmanna en ekki tæki
færi . Og þegar „byggða stefna“ er nefnd á
nafn utan höfuðborgar svæð isins sér lands
byggðin einungis fyrir sér brostnar vonir,
svikin loforð og hræsni .
Byggðastefna til góðs eða ills
Það er hægt að nota byggðastefnu sem valdaverkfæri til að ná fram ákveðinni
þróun og árangri en oftast til að ná fram
öðru af tveimur markmiðum:
a) Byggðastefna er notuð til að mynda,
styrkja og halda þjóðríki borgaranna sam
an . Þá er hún notuð sem verkfæri í þágu
þjóð ríkis borg aranna og til að styrkja
það . Byggða stefna er þá lím (ethos) fyrir
land þjóð ríkis fólks (demos) sem á sér
sam eiginleg mark mið (telos), þ .e .a .s .
þann sameigin lega til gang og markmið sem
mynd ar þjóðríki þeirra .
b) Byggðastefna er notuð til þess að
slökkva og til að sundra og þurrka upp þann
jarð veg sem þjóðríki borgaranna getur þrifist
í . Undir þannig skipulagi og laga ramma er
byggðastefna notuð sem eins konar slökkvi
tæki og verkfæri niðurrifs . Hún kem ur inn
í samfélag þjóðríkisins sem tund ur spillir .
Þannig stefna getur einnig komið innan
frá úr þjóðríkinu með aðstoð og fyrir til
stilli utan að komandi afla eins og við erum
að upp lifa í dag sem Evrópu sambands
martröð ríkis stjórn ar Jóhönnu Sigurðar dótt
ur og Stein gríms J . Sigfússonar . Til gang ur
inn er að sundra, spilla, etja fólki saman og
upp á móti samfélagi sínu og koma þjóð
rík inu fyrir á biðlistanum eftir engu nema
þeim hægfara dauða sem ég kynnt ist svo vel
í dreif býli meginlands Evrópu .
Þetta ætti ekki að koma á óvart því