Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 80
Þjóðmál SUmAR 2012 79
stór hluti hins vinstri vængs stjórnmála,
hérlendis sem erlendis, hefur svo oft hræðst
þjóðríkið, frekar en hitt . Hræðst sterkar
frjálsar stofnanir velmegandi lýðræðislegs
þjóðríkis eins og til dæmis lögreglu, dóm
stóla, peningastofnanir og sterkan engil
sax nesk an markaðskapítalisma . Í öflugu
þjóð ríki er erfiðara fyrir þessa menn að
komast til valda og æsa til ófriðar . Póli
tísk skiptimynt þeirra verður minna virði .
Erfiðara verður fyrir þá að framselja hluta
fullveldis þjóðríkisins í pólitískum vöru
skiptum og erfiðara að koma sér undan
ábyrgð gagnvart kjósendum .
Þjóðríki eða keisaraveldi
Hér er staður til að skilgreina hvað ég á við með orðinu „þjóðríki“ . Þjóðríki er
ríki þar sem einungis borgarar þess (demos)
— sem eiga með sér sameiginleg markmið
(telos) og sameiginlegan tilgang og sam
eiginlegt siðferði (ethos) — setja þau lög
sem ríkja í ríki þeirra og bara fyrir þá sjálfa,
en ekki fyrir þá sem standa utan þess . Við
sjálf og einungis við sjálf semjum, og búum
við, þau lög sem hjá okkur gilda og þau
gilda bara fyrir okkur sjálf en ekki fyrir aðra .
Allir þeir sem standa utan þjóðríksins eru
utanaðkomandi (alien) . Þjóðríkið get ur tek ið
á móti utanaðkomandi með þeim skilyrð um
uppfylltum að þeir gangi í það og taki upp
viðtekin sameiginleg mark mið, siðferði og
tilgang þeirra sem byggja þjóðríkið . Best
farnast þjóðríkinu ef þar viðhelst öflugt lýð
ræði sem elur af sér frjálst markaðs hag kerfi
af engilsaxneskum toga . Þá verður þjóð ríkið
sterkt og til friðs í heim inum . Lýðræðis ríki
fara að jafnaði ekki í styrjöld við önnur
lýðræðisríki . Það gerist einungis þar sem
lýðræði er á undanhaldi, visnandi og virkar
ekki lengur . Einræðisríki og keisaradæmi
eru á hinn bóginn líkleg til að heyja stríð
við lýðræðisríki . Þá þurfa lýðræðisríki
að búast til varnar . En þau leysa yfir leitt
ágreiningsmál sín á milli með friðsam leg
um hætti .
Keisaraveldi, í ætt við Sovétríkin sálugu, eru
af allt öðrum toga . Þau hafa hvorki demos
né telos og ekki heldur sameiginlegt ethos .
Þegar utanaðkomandi (alien) bankar á dyr
„keisaraveldis“ eins og t .d . Evrópusambands
ins eða Sovétríkjanna, er honum iðulega hleypt
inn . En þegar inn er komið verður hann ekki
hluti af þjóðríki heldur áfram framandi vera .
Valdabygging og löggjöf í keisaraheimsveldi
er með allt öðrum hætti en í þjóðríkinu og
skapar innri ófrið . Að lokum fer eins og
þegar keisaraveldi Evrópu rákust saman og
kveiktu elda heimsstyrjaldar árið 1914 . (Hér
ber að hafa í huga að breska heimsveldið hafði
engin ítök í Evrópu .)
Hinn sundurtætti jarðvegur meginlands
ins varð síðan sú glóðvolga gróðurmold sem
ól af sér nasismann . Hann og hugmynda
stefnur sem honum líkjast geta aldrei þrifist
í sterku þjóðríki . Þýskaland nasism ans
var ekki þjóð ríki . Það var rústir keisara velda
í upp lausn, hafði ekkert með þjóðríkið að
gera en hins vegar allt með stjórnleysi og upp
lausn að gera (anarki) . Ríki stjórnleysis náði
völd um í rústum keisaraheimsvelda . Nas
ism inn er sú útgáfa kommúnismans þar
sem fólkið sjálft og stjórnmál þess eru
þjóðnýtt . Álíka andlýðræðisleg öfl ófrelsis
þríf ast allt af best í rústum keisara og sovét
velda . Rústir þeirra eru gróður mold
einræðis þessara afla . Þar verða til sovét ríki
og hin þriðju ríki fortíðar og nú tíðar . Það er
því ýtrasti þvættingur að stofnun Evrópu
sam bandsins á megin land inu, undir vafn
ingi hinna fyrstu þriggja til sex ríkja þess,
hafi nokkurn tíma komið eitt hvað að
varðveislu friðar í Evrópu . Ekkert er meira
fjarri sanni . Evrópusambandið er einungis
gamli 1871þráðurinn frá því fyrir 1914,
tekinn og spunninn upp á ný, þar sem bæði
Þýskaland og Frakkland sjá sig komast