Þjóðmál - 01.06.2012, Side 83
82 Þjóðmál SUmAR 2012
fjarlægðinni frá Ósló . Gjöldin fara lækk
andi því lengra sem dregur frá höfuðborgar
svæðinu og þar koma til fleiri staðbundnir
þættir . Noregur var kallaður fátækur út
kjálki í Evrópu árið 1956 en er nú ríkasta
land heimsins . Ekkert af ríkidæmi Norð
manna hefur komið af sjálfu sér .
Byggða stefnan þarf síðan að leggja sjálfa sig
niður í takt við árangur sinn — rétt eins og
um þjóð ríkislegt atkvæðavægi væri að ræða .
Mikilvægt er einnig að hafa hugfast að
íslenska þjóðkirkjan er órjúfanlegur þáttur
vel heppnaðrar byggðastefnu þjóðríkisins .
Við getum hvorki verið sæl né byggt farsælt
þjóðríki án hennar . Það er einfaldlega ekki
hægt á okkar tímum .
Jarðgöng út og inn í ekki neitt fyrir ofan og
neðan þefnæmt peninganef héraðsafla og án
réttra efnahagslegra staðarhvata, eru hvorki
byggðastefna þjóðríkis né kapítal ismi . Þau
eru því miður oft til vitnis um kjördæmapot
þing manna og geta jafnvel haft skaðlegar
afleiðingar . Hvatinn að slíkri framkvæmd
þarf alltaf að vera sjálfs bjargar viðleitni
héraðsins undir ramma djúpt hugsaðrar
byggðastefnu þjóðríkisins sem virkar
vel . Þannig, en þó án vel skilgreindrar
stefnu, byggðist gamli heima bærinn minn
upp, Siglufjörður . Í dag hefði Siglu fjörður
ekki getað byggst upp frá grunni vegna
ægivalds höfuðborgarsvæðis með 205
þúsund íbúum .
Allar tekjur ríkissjóðs Íslands og
sveitar félaga á Íslandi koma af atvinnu
starfsemi . Engar aðrar tekjulindir eru til .
Þeim er ekki hægt að fórna í kjördæmapot
stjórnmálamanna sem grefur undan þjóð
ríkinu . Tekjurnar þurfa að verða til, spretta
og vaxa um allt land . Það gera þær ef rétt
byggðastefna er viðhöfð, eins og gerðist
á landnámsöld . Í gegnum hvatakerfið .
Þarna sé ég hlutina líklega með augum
gestsins . Þegar ég kom heim eftir 25 ára
fjarveru varð ég fyrir áfalli vegna hinnar
ískyggilegu byggðaþróunar í þjóðríki okkar .
Ég vil ekki búa á safni .
Sjálfstæðisflokkurinn — sem og fleiri á
þeim væng stjórnmálanna — þarf bráð
nauð synlega á hugmynda fræði legri slipp
vinnu að halda . Allmiklir hrúð ur karl ar
eru komnir á skrokkinn sem draga úr sigl
ingar hraða, auka orkunotkun og torvelda
stý ringu . Kreddulegir ryðblettir sjást .
Eng inn annar einn flokkur getur lyft
þessu eins og er . Það er algerlega úti lokað .
Og við þurfum bandamenn . Náttúr lega
bandamenn .
Skorradal, maí 2012.
VG = Veljum Gúlagið?
Nú ætla Vinstri grænir að halda les hring um marxlenínisma ásamt ein hverju
sem heitir „Rauður vettvangur“ .
Kommúnisminn, marxlenínisminn, kost
aði um eitt hundrað milljón mannslíf á 20 .
öld, eins og rakið er í Svartbók komm ún ism
ans sem kom út á íslensku 2009 . Síðan má
nefna alla þá sem sluppu þrátt fyrir allt lif
andi úr gúlögum rússneskra, kínverskra og
kúb verskra kommúnista .
Hvað yrði sagt ef einhver íslenskur stjórn
málaflokkur auglýsti leshring um Mein
Kampf eftir Hitler?
Kommúnisminn skildi ekki eftir sig rauð
an vettvang, heldur blóðrauðan vett vang .
Skafti Harðarson á eyjan.is 19 . mars 2012 .