Þjóðmál - 01.06.2012, Síða 92

Þjóðmál - 01.06.2012, Síða 92
 Þjóðmál SUmAR 2012 91 stjórnar manna ásamt m .a . Ragnari Baldurssyni, starfsmanni sendiráðs Íslands í Kína . Ragnar er þarna titlaður „Arctic Explorer“ — líklega eftir ferðina á Norðurpólinn með … já, „Íslands vininum“ Huang Nubo . Takið eftir hönnuði síðunnar neðst — Teikn Design . Halldór aftur? Ýmsir aðilar kosta síðuna, m .a . Utanríkis ráðuneytið og Iðnaðarráðuneytið, svo þetta ævintýri Halldórs er alltént kostað af almenningi í þetta sinn . Fróðlegt væri að vita hve háar upphæðir af skattfé okkar hafa farið í þetta verkefni Halldórs Jóhannssonar . Utanríkis ráðherra er svo hrifinn af framtaki Halldórs að fyrir utan fjárstuðninginn gaf hann sér tíma til að skrifa Fréttablaðsgrein í mars 2011 til að mæra vefsíðuna . Fróðlegt væri að vita meira um tengsl Össurar og Halldórs . Af þessari samantekt Láru Hönnu Einars­ dóttur má ráða hvers vegna umræður um áhuga Huangs Nubos og Kínverja á hafnaraðstöðu hér á landi hafa vaknað . Ís­ lenskur umboðsmaður Huangs er nefnilega önnum kafinn við að kynna og skipuleggja aðstöðu hér á landi bæði vegna siglinga og olíuleitar . Á þessu stigi er ekki unnt að segja hver verður niðurstaða í annarri tilraun Huangs Nubos við að ná tangarhaldi á Grímsstöðum á Fjöllum . Hann sagði í apríl að hann mundi ljúka gerð samninga við Íslendinga um miðjan júní 2012 . Á hverju hann byggði þá bjartsýnu spá sína er óljóst . Miðað við það sem þeir segja sem ætla sér að verða viðsemjendur hans hér á landi er líklegt að það dragist fram eftir þessu ári að menn fullmóti samningsmarkmið sín gagnvart Huang . Af almennum umræðum verður sú álykt­ un dregin að bægslagangur Huangs vegna Íslands haustið 2011 hafi ekki orðið honum til framdráttar meðal Íslendinga . Það hefur einnig skýrst undanfarnar vikur að lítil innstæða var fyrir heitstrengingum í apríl 2012 um að allt væri að smella saman milli Íslendinga og Huangs . Vissulega má kenna skorti á skilningi vegna lélegra þýðinga um allan þennan vand ræðagang . Hér er hins vegar um djúp­ stæðari vanda að ræða sem rekja má til allt annars konar viðhorfa í samskiptum og viðskiptalífi . Full ástæða er til að flytja sveitar­ stjórnarmönnum á norðausturhorni Ís lands varnaðarorð og benda þeim á að sagan sýnir að í samskiptum við Kínverja er nauð syn­ legt að glöggva sig vel á því hyldýpi sem er á milli þeirra og vestrænna þjóða í hvers kyns samskiptum . Þá er barnaskapur að halda að Huang Nubo fjárfesti hér á landi án beinna eða óbeinna afskipta kínverskra stjórn valda . Engum manni auðnast að komast yfir jafnmiklar eignir og Huang hefur tekist í Kína án þess að njóta skjóls stjórnvalda eða beinna tengsla við þau . Þegar sveitarstjórnarmenn leggja á ráðin um kínverska framtíð Grímsstaða á Fjöll um ber þeim að hafa hina hnattrænu tog streitu í huga . Hún mótar afstöðu þeirra í Peking sem leyfa Huang Nubo að standa í samning­ um við íslenskar sveitarstjórnir í því skyni að komast fram hjá innanríkisráðherranum sem fer að vísu einnig með sveitarstjórnarmál .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.