Þjóðmál - 01.06.2012, Side 93
92 Þjóðmál SUmAR 2012
Rosabaugur verðskuldar
5 stjörnur
Björn Bjarnason: Rosabaugur yfir Íslandi, Ugla,
Reykjavík 2011, 342 bls .
Eftir Vilhjálm Bjarnason
Sagnfræði hvers konar hefur verið hugleikið íslenskri þjóð efni frá landnámi .
Gögn til sagn fræði rannsókna eru misvel
aðgengileg fyrir skrifara . Munn mælasögur
og hlutir í mold hafa oft verið
einu aðföng skrifara . Öll
íslensk sagnfræði þykist hafa
haft orð Ara Þorgilssonar
að leiðarljósi; „hafa það
sem sannara reyn ist“ . Í
réttlætingarbókum, „apol
og ium“, hafa menn það sem
„hentar betur“ .
Í samtímasagnfræði er vænt
anlega betra aðgengi að gögn
um en hjá Ara Þorgils syni og
Kristjáni Eldjárn . Annar hafði
munn mæla sögur en hinn hafði
muni í mold . Í samtíma sagn
fræðinni eru til skjöl, fréttir,
sendibréf af ýmsu tagi, en síðast en ekki síst
aðgengi að þeim sem voru í miðri atburðarás .
Í samtímasagnfræði hefur orðið til vísinda
grein, sem kölluð hefur verið „rann sóknar
blaðamennska“ . Í þeirri vís inda grein hafa
þeir sem reyna fyrir sér reynt að ná lengra en
Robert Woodward og Carl Bernstein, en þeir
grófu sig í gegn um atburða rás í Watergate
máli í Bandaríkjun um og birtu í Washington
Post og síðar í bók um . Til eru samtímamenn
sem halda dag bækur fyrir afkomendur sína en
ætla afkom end unum og dagbókinni að verða
grundvöll til að skapa dýrðarljóma „apologiu“
í ævi sögu eftir að dagbókarhöfundur er
genginn á vit feðra sinna .
Björn Bjarnason er merkilega samansettur
maður . Hann er lögfræðingur að mennt
en hefur jafnframt sagnfræðilegan áhuga
og greinandi hugsun með
mikinn áhuga á samtíma
sínum, enda sinnti hann
blaða mennsku í á annan ára
tug . Svo er hann fastur fyrir
og fylgir sannfæringu sinni
og rétt lætis kennd en ekki
boð um vindhana . Hann
átti alla kosti, sagnfræði,
blaða mennsku og ritstjórn,
embættis mennsku og stjórn
mála feril . Hann reyndi
alla kosti . Sá er þetta ritar
þurfti í tvö skipti að leita
til mennt a málaráðherrans . Í
bæði skiptin hitti hann fyrir
embættis manninn og rök hyggjumanninn .
Önnur af greiðsla ráð herrans átti eftir að
hafa heilla vænleg áhrif á líf fjölda fólks, sem
mátti sín lítils . Um það verður fjallað síðar
og á öðrum vettvangi .
Bókadómar
_____________