Þjóðmál - 01.06.2012, Síða 95
94 Þjóðmál SUmAR 2012
bókinni atriði sem allir vissu og sáu, að það
var lítil hrifning hjá Birni Bjarnasyni yfir
störfum og skrifum forvera hans í embætti
dómsmálaráðherra og fyrrverandi for
manns Sjálfstæðisflokksins, sem var sestur í
ritstjórastól Fréttablaðsins .
Rosabaugur bætir ekki miklu við heim ildir
um það sem gerðist á árunum 2002–2008 .
Úrvinnsla Björns Bjarnasonar á heim ildum
bætir hins vegar miklu við um skilning á
atburðarásinni í Baugsmáli . Bókin gerir
í raun miklar kröfur til þeirra sem á eftir
koma um vönduð vinnubrögð og greiningu
á atburðarás . Sögunni lýkur aldrei og
sögunni af „Rosabaug“ er langt því frá lokið,
„Rosabaugur“ var aðeins forleikur að hildar
leik eins og áður er sagt . Í stjörnugjöf verð
skuldar Rosabaugur yfir Íslandi 5 stjörnur .
Sakleysi Íslands
í fjölmiðlafári
Daniel Chartier: The End of Iceland´s Innocence
Citizen Press, London/Reykjavik 2010, 239 bls .
Eftir Björn Bjarnason
Fjölmargar bækur hafa komið út um bankahrunið á Íslandi í október 2008 .
Um það er enn skrifað víða bæði af blaða
mönnum og fræðimönnum .
Hér er sagt frá bókinni The End of Iceland´s
Innocence — The Image of Iceland in the
Foreign Media during the Crisis, en hinn
langa titil má þýða á þennan veg: „Þegar
Ísland tapaði sakleysi sínu — ímynd Íslands
í erlendum fjölmiðlum í hruninu .“
Höfundur bókarinnar er Daniel Chartier,
prófessor við Québecháskóla í Montréal
í Kanada . Í bókinni segir frá viðbrögðum
alþjóðasamfélagsins við falli bankanna á
Íslandi haustið 2008 eins og þau birtust í
helstu fjölmiðlum Vesturlanda .
Daniel Chartier er forstöðumaður þver
fræðilegrar rannsóknarstofnunar um mál
efni norðurslóða og kom m .a . að stjórn
rann sóknarverkefnisins „Ísland og ímyndir
norð ursins“ (Iceland and the Images of the
North) . Rannsóknir hans beinast að fjöl
menn ingarsamfélaginu, fjölmiðlum, mál
efnum norðurslóða og menningarsögu .
Prófessorinn kom hingað til lands í nóv
ember 2010, skömmu eftir útgáfu bókar
hans hjá Citizen Press sem hefur aðsetur í
London og Reykjavík samkvæmt því sem
segir í bókinni . Forlagið gaf út Draumaland
ið, bók Andra Snæs Magnasonar, á ensku .
Í tengslum við komu Chartiers hingað var
meðal annars rætt við hann í Viðskiptablaðinu
og þar sagði hann: „Hrunið sem reið yfir
Ísland haustið 2008 var án nokkurs vafa
mikill fjölmiðlaviðburður . Þegar það reis
sem hæst í október og nóvember það ár
birtu þau erlendu dagblöð, sem rannsökuð
voru í bókinni, meira en 900 blaðagreinar
um Ísland .“
Chartier segir að magn skrifanna um Ís
land eitt og sér gefi góða vísbendingu um
hina gríðarlega miklu umræðu á þessum
tíma sem hafi laskað ímynd landsins
verulega . Ótvírætt sé að fjölmiðlaumfjöllun
hafi gríðarleg áhrif á orðspor þjóðar . Við
rannsóknina hafi runnið skýrt upp fyrir
honum að á bak við fjármálakreppuna sem
reið yfir Ísland hafi legið aðrar dýpri krepp
ur . Þær snerti siðferði, hroka, samskipta
leysi, ábyrgðarleysi, niður lægingu, samskipti
við umheiminn, fullveldi og umræður
um framtíð lítils ríkis með „samtvinnaðan
fjármálageira“, eins og það hafi verið kallað
í The Financial Times .
Því hefði verið velt upp í fjölmiðlum hvort
of mikil tengsl milli stjórnmálamanna, at
hafna manna og framkvæmdastjóra hefðu
eyði lagt undirstöður hins „efnahagslega