Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Page 44
44 45
Í ályktun kirkjuþings í 2. máli – Skýrsla um fjármál þjóðkirkjunnar - segir m.a.:
Kirkjuþing 2011 afgreiðir ársreikninga þjóðkirkjunnar fyrir árið 2010 um einstaka sjóði,
stofnanir og viðfangsefni þjóðkirkjunnar athugasemdalaust.
Farið hefur verið yfir fyrirliggjandi endurskoðunarskýrslu til kirkjuþings frá Ríkisendurskoðun.
Kirkjuþing staðfestir að reikningshald kirkjulegra embætta, stofnana og sjóða fyrir árið 2010
hafi hlotið fullnægjandi endurskoðun.
Rekstraráætlun fyrir árið 2012 um helstu viðfangsefni þjóðkirkjunnar, er í samræmi við
megináherslur kirkjuþings með hliðsjón af þeim fjárhagsramma sem þjóðkirkjan býr við.
Kirkjuþing vekur athygli á því að sóknargjöld hafa lækkað um 20% frá árinu 2008 að teknu tilliti
til úrsagna úr þjóðkirkjunni. Á sama tíma hafa greiðslur til stofnana innanríkisráðuneytisins
hækkað vegna verðlagsbóta um 5%. Nú er svo komið að ekki er unnt að halda úti grunnstarfi
í mörgum sóknum víðsvegar um landið, þar sem rekstrarkostnaður og fjármagnskostnaðar
hefur hækkað verulega á þessu tímabili.
Kirkjuþing lýsir þungum áhyggjum af þessari þróun. Sóknargjöld eru félagsgjöld og
grundvöllur kirkjustarfsins í heimabyggð. Skorað er á ríkisstjórn og Alþingi að beita sér
fyrir því að sóknargjöldin verði leiðrétt til samræmis við þróun fjárveitinga til stofnana
innanríkisráðuneytisins þannig að sóknargjöldin verði 919 kr. á mánuði fyrir hvern
gjaldanda á árinu 2012.
(Sjá umfjöllun síðar í skýrslu þessari um fjármál).
5. mál. Þingsályktun um sameiningu prófastsdæma
Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun svohljóðandi:
Kirkjuþing 2011 ályktar að beina því til kirkjuráðs að mynda starfshóp sem geri tillögu um
framtíðarskipan prófastsdæma í þjóðkirkjunni. Starfshópurinn skili tillögum til kirkjuþings
2012.
Kirkjuráð leggur fram tillögu um málið á kirkjuþingi 2012, eins og nánar er gerð grein
fyrir síðar í skýrslu þessari.
6. mál. Þingsályktun um sameiningu sókna innan prestakalla
Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun svohljóðandi:
Kirkjuþing 2011 hvetur sóknarnefndir til að kynna sér kosti sameiningar sókna innan
prestakalla og hefja undirbúning að sameiningu þar sem hentugt þykir og sátt næst um.
Kirkjuþing beinir því til kirkjuráðs að fylgja málinu eftir með kynningu og ráðgjöf til
sóknarnefnda.
Kirkjuráð kynnti sóknum framangreinda ályktun og einnig var hún send próföstum til
kynningar á héraðsfundum. Þá var gefinn út á vegum kirkjuráðs bæklingur til fræðslu
og upplýsinga um málið. Bæklingurinn var sendur sóknarnefndum, vígðum þjónum og
kirkjuþingsfulltrúum.
7. mál. Þingsályktun um félagatal þjóðkirkjunnar
Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun svohljóðandi:
Kirkjuþing 2011 ályktar að beina því til kirkjuráðs að skipa starfshóp til að meta hagsmuni og