Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Síða 9
Formáli ritstjóra
Efni Ritraðarinnar er er býsna fjölbreytilegt að þessu sinni enda af ýmsum
fræðasviðum guðfræðinnar. Hér er að finna bæði greinar sem glíma við mál
sem mjög eru á dagskrá í samtíð okkar og aðrar sem eru meira á sögulegum
nótum en hafa þó jafnframt skýrar tengingar inn í samtíðina.
Fyrsta greinin sem hér birtist, Wolves in Sheperds‘ Clothing: Sexual Abuse
by Pastors, snertir efni sem mjög hefur verið til umfjöllunar hér á landi á
árinu. Greinin er eftir dr. Marie M. Fortune, sem er einn virtasti fagaðili
á sviði fræðslu- og forvarnarmála um kynferðisvandamál í Bandaríkjunum.
Hún er forstöðumaður FaithTrust Institute í Seattle, en stofnunin býður upp
á þjálfun, ráðgjöf, kennslu og fræðsluefni í því markmiði að binda endi á
kynferðislegt ofbeldi og heimilisofbeldi. Grein hennar er að stofni til erindi
sem haldið var í Háskóla íslands í 18. október 2011. I greininni er fjallað um
ábyrgð og viðbrögð kirkjunnar sem stofnunar við kynferðislegri misnotkun
á hennar vettvangi. Lögð er áhersla á að vandamálið sé sannarlega ekki nýtt
af nálinni, en það vanti grundvallar skilning á eðli brotanna. Viðbrögð
kirkjunnar sem stofnunar þurfi að ríma við gildi trúarinnar.
Einar Sigurjörnsson skrifar grein um útför Jóns Sigurðssonar forseta og
Ingibjargar konu hans og er tilefnið að 200 ár voru á árinu 2011 liðin frá
fæðingu Jóns Sigurðssonar. í greininni kemur fram að útförin hafi verið
vegleg og lík því sem sem um útför þjóðhöfðingja væri að ræða. Með
athöfninni tjáðu íslendingar þakklæti sitt til Jóns Sigurðssonar og sýndu að
þeir byggju yfir menningarlegri reisn og metnaði og væri það ekki síst að
þakka Jóni Sigurðssyni. Erfiljóð Matthíasar Jochumssonar lyftu athöfninni
upp yfir stund og stað og einblína ekki á sorgina eða tilefni stundarinnar.
Með erfiljóðum sínum boðar hann von og hvetur sérhvern Islending að læra
sanna tign sín sjálfs. Það er undirstaða frelsis og framfara.
í tveimur næstu greinum horfa höfundarnir rúma öld tilbaka í tíma,
væntanlega með í huga öðrum þræði, að öld er nú liðin frá stofun Háskóla
Islands.
Gunnlaugur A. Jónsson rifjar upp þær deilur sem urðu um gildi trúar-
játninga á prestastefnunni hér á landi 1909 og kringum hana, en þá voru
játningarnar gagnrýndar harðlega. Gunnlaugur staðhæfir að trúarjátningar
hafi fýlgt kristninni frá upphafi og séu meira að segja til staðar fyrir upphaf
kristni, í Gamla testamentinu. Heiti greinarinnar Faðir minn var umreikandi
Aramei er sótt í eina þeirra trúarjátninga sem Þjóðverjinn Gerhard von
Rad taldi í áhrifamikilli grein mynda grunninn að Mósebókum. Grein
7