Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Síða 72
að stofna kirkjuþingssjóð með samskotum presta og leikmanna með því
að hækka kirkjugjöldin lítillega eða leggja „eitt prestakall enn niður“ og
leggja það sem sparaðist til þingsins þótt slíkt væri neyðarúrræði.81 Hér
hélt Sigurður í stórum dráttum fram sömu skoðunum og í grein sinni um
kirkjuþing sem birtist í Nýju kirkjublaði tveimur árum áður.82 Þá hélt hann
fast við fyrri skoðun sína um að kirkjuþing skyldi kostað af hinu opinbera
ólíkt Einari Þórðarsyni meðflutningsmanni sínum að tillögu um kirkjufund
1909.
Fimm manna nefnd sem sett var um kirkjuþingsmálið skilaði svofelldri
ályktun og var hún samþykkt samhljóða með 26 atkvæðum:83
Prestafundurinn álítur, að vor kirkjulegu mein stafi ekki af því að kirkjan
er í sambandi við ríkið, heldur af öðrum orsökum, meðal annars af því, að
sambandi ríkis og kirkju er óhaganlega fyrirkomið og að kirkjan hefir ekki
nægilegt frelsi til þess að ráða sínum eigin málum. Fundurinn skorar því
á Alþingi, að samþykkja lög um kirkjuþing fyrir hina íslenzku þjóðkirkju,
er komi saman annaðhvort ár, sé skipað prestum og leikmönnum, hafi
fullt samþyktarvald í sínum eigin innri málum og tillögurétt í öllum þeim
almennum löggjafarmálum, er snerta kirkjuna, og sé kostað af landssjóði.8'*
Hér var í öllum meginatriðum byggt á frumvarpi meirihluta
Kirkjumálanefndarinnar frá því þremur árum fyrr.
Prestastefnan á Hólum 1910
Á Þingvöllum tilkynnti Þórhallur biskup að sér hefði komið til hugar að
prestastefnan að ári gæti komið saman á Hólum í tengslum við vígslu fyrsta
vígslubiskupsins í hinu forna stifti. Hafði prestastefnan ekkert við það að
athuga.85 í framhaldi af því boðaði Þórhallur aftur til almennrar presta-
stefnu 1910 og þá fyrir norðan. Ritaði hann próföstunum í Húnavatns-,
Skagafjarðar-, Eyjafjarðar- og báðum Þingeyrjarprófastdæmum tilkynn-
ingu um stefnuna og fól þeim fyrrnefndu ýmis hlutverk við hana eða
vígslubiskupsvígsluna sem fara skyldi fram samtímis. Daginn eftir skrifaði
81 Áædaður kostnaður við kirkjuþing var 3000 kr. Sigurður P. Sívertsen 1909: 179. Prestastefnan
á Þingvelli 1909: 167.
82 Sigurður P. Síversen 1907: 129-130,134. Sjá Hjalti Hugason 2010: 96-98.
83 f nefndinni sátu, auk Sigurðar P. Sívertsen, Haraldur Níelsson þá prestaskólakennari, Kjartan
Helgason(1865-1931) í Hruna, Kristinn Daníelsson (1861-1953) í Útskálum og Valdimar
Briem (1848-1930) síðar vígslubiskup á Stóra-Núpi. Prestastefnan á Þingvelli 1909: 166.
84 ÞÍ. Bps. 1994-BA/l. Prestastefnan 1909: 146-147. Prestastefnan á Þingvelli 1909: 167.
85 ÞÍ. Bps. 1994-BA/l. Prestastefnan 1909: 150.
70