Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Side 102

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Side 102
safnaða í Þýskalandi og vitnar í Albert Einstein sem sagði þýsku kirkjuna var einu stofnunina sem hefði kjark og þor til að reyna stemma stigu við uppgangi þriðja ríkisins, það ætti því miður ekki við um menntamennina og háskólana.12 Það er greinilegt að Sigurbjörn fylltist andagift af baráttu þýsku kirkjunnar sem hefur væntanlega gefið honum kjark til að stíga fram með þessa gagnrýni á Þriðja ríkið á mjög viðkvæmum tímapunkti. Hann lýkur svo bókinni með því að árétta að hún sé ekki „áróður gegn hinni þýsku þjóð... sem vér Islendingar höfum haft fulla ástæðu til að dá og virða. Nazisminn er hennar ógæfa en ekki sök.“13 Þó að aðstæður séu nú allt aðrar en árið 1940 og óvissan minni í heims- málunum er staðan þó að því leytinu lík að síðastu 10 ár höfum við orðið vitni að hinu svokallaða „stríði gegn hryðjuverkum" þar sem baráttan hefur verið við þá sem aðhyllast hugmyndafræði íslamista. Þessi barátta, þetta stríð, hefur sett afgerandi mark á fyrsta áratug 21. aldar. Snúum okkur því að Sayyid Qutb, helsta hugmyndafræðingi íslamista, þeim sem neitaði dansinum í Greely Colorado. Qutb fæddist árið 1906 eða fimm árum á undan Sigurbirni og var tekinn af lífi af ríkisstjórn Gamals Abdels Nassers árið 1966.14 Vegna þessa er hann álitinn píslarvottur af fylgismönnum sínum. Hann ólst upp í litlu þorpi í Asyut héraðinu en fluttist svo til Kairo og fór í kennaranám. Að lokinni útskrift gerðist hann embættismaður í egypska menntamálaráðuneytinu. í fyrstu var hann ekki neitt sérstaklega upptekinn af íslam og eru elstu verk hans veraldleg. Hann varð því róttækari eftir því sem hann varð eldri. Það var í Bandaríkjunum sem ákveðin kúvending átti sér stað í lífi hans og hófst hann handa eftir heimkomuna þaðan árið 1950 að nema Kóraninn ennfrekar og finna leiðir til að innleiða ákvæði trúarinnar í stjórnkerfi Egypta. Það var róstursamt í egypskum stjórnmálum um þessar mundir þar sem konungsveldið sem Bretar höfðu innleitt var að líða undir lok og árið 1952 var bylting þar sem konungsfjölskyldunni var steypt af stóli. Það voru hinir svokölluð Frjálsu herforingjar (Free Officers) sem leiddu byltinguna (og innleiddu það kerfi sem var steypt af stóli nú í febrúar). Egyptaland varð að lýðveldi og Gamal Abdel Nasser varð fljótlega forseti landsins. Eins og 12 Kirkja Krists, bls. 164 13 Kirkja Krists, bls. 168 14 John Calvert hefur skrifað frábæra bók um hugmyndir og ævi Qutbs sem ber heitið Sayyid Qutb and the Origins of Radical Islamism (New York: Columbia University Press, 2010). 100
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.