Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 59

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 59
Prestastefnur voru á þessum tíma haldnar árlega en oftast aðeins boðaðar með bréfi til prófasta frá Rangárvöllum vestur á Mýrar og þeim gert að hvetja presta til þátttöku. Strangt tekið mun þó hafa verið litið svo á að prófastarnir einir væru skyldir til þátttöku en þeir voru fimm á þessu svæði. Formlega séð giltu ákvæði í erindisbréfi biskupa frá 1746 enn um prestastefnuna.8 Hún var upphaflega einkum æðra dómþing (synodalréttur) „til að dæma um kærðan mann andlegrar stéttar í andlegum málum“ sem áður höfðu komið til kasta prófastsdóms. Þar sem þetta vald hennar var því sem næst horfið leit að minnsta kosti meirihluti Kirkjumálanefndarinnar 1904-1906 á hana sem valdalausa stofnun og leifar frá liðnum tíma.9 A 19. öld var þar enda oft fátt gert annað en að „telja sundur, eptir uppástungu stiptsyfirvaldanna, prestsekkna- og uppgjafarpresta peninga, sem þeim eru veittir úr lands- sjóði“.10 Af þessum ástæðum taldi meirihlutinn að prestastefnan ætti „að hverfa úr sögunni sem önnur úrelt stofnun, er alls ekki [gæti] fullnægt kröfum tímans“.10 Nokkrar umræður urðu um prestastefnuna og breytingar á henni í biskupstíð Hallgríms Sveinssonar og taldi Þórhallur Bjarnarson að þá hafi færst nýtt líf í hana. Prestastefnubók tímabilsins vitnar einnig um að svo hafi verið og stefnurnar tekið að líkjast prestastefnum nútímans auk þess sem tekið var að flytja þar formlega fyrirlestra sem stundum voru opnir almenningi.* 11 Fyrirlestrarnir lifðu lengi í mynd svokallaðra synódus-erinda sem flutt voru í útvarpi en hafa nú horfið. 8 Instruction for superintendenterne i Island 1. 7. 1746, Lovs. f. Isl. 1853(2): 656-657. Jón Pétursson 1890: 169-171. Tillögur um kirkjumál 1906: 20-21. Sjá og Einar Arnórsson 1912: 73. Bjarni Sigurðsson 1986: 288-289. 9 Jón Pétursson 1890: 52-57. Tillögur um kirkjumál 1906: 20-21. 10 Jón Pétursson 1890: 171. Sjá FriðrikJ. Bergmann 1901: 61-63. 11 ÞÍ. Bps. 1994-BA/l. Hallgrímur biskup 1910: 2. í biskupstíð Hallgríms Sveinssonar, nánar tiltekið 1892, urðu nokkur greinaskrif í Kirkjublaðinu, fyrra málgagni Þórhalls Bjarnarsonar, um endurbætur á prestastefnunni er miðuðu að því að gera hana að virkari umræðuvettvangi í kirkjunni. Tengdust þær tillögum Þórarins Böðvarssonar um kirkjuþing. Þar lagði Jónas Jónasson (1856-1918) á Hrafnagili m.a. áherslu á að synódus í þeirri mynd sem hún var þá, þ.e. með mætingu úr prófastdæmunum fjórum sem næst voru Reykjavík, yrði að verða kirkjuþing með kjörnum fúlltrúum presta af landinu öllu. Þá lagði Björn Bjarnarson (1856-1951) bóndi í Reykjakoti (síðar Reykjahvoli) alþm. Borgf. til að prestastefnan yrði þróuð yfir í kirkjuþing er væri skipað bæði prestum og leikmönnum og byggði þar á fyrirmyndum frá Vesturheimi. Þórhallur Bjarnarson taldi aftur á móti að slík þróun væri ómöguleg innan vébanda ríkiskirkju. Synodalrjettur. - Synodus. - Kirkjuþing 1892a: 26-27. Guðmundur Guðmundsson 1892: 56-57. Jónas Jónasson 1892: 74-76. Björn Bjarnarson 1892: 87-88. Synodalrjettur - Synodus - Kirkjuþing 1892b: 104-107. 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.