Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 66

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 66
væru að töluverðu leyti frá þeim komnar sem vildu losna „við alla kirkju og kristindóm“.47 Taldi hann að frjáls eða ófrjáls andi í kirkju réðist ekki af tengslum hennar við ríkið: „Það eru ekki ný föt, sem kirkjan, móðir okkar, þarfnast, heldur nýtt líf. Og séu prestarnir lifandi, hlýtur að kvikna eitthvert líf kringum þá.“48 Fimm manna nefnd var kosin til að fjalla um málið og tók hún tilefni af framsöguræðunni og þingsályktun neðri deildar frá því fyrr á árinu.49 Hölluðust nefndarmenn að því að sá útbreiddi áhugi á aðskilnaði sem fram hefði komið á þingmálafundum væri ekki með öllu marktækur „þar sem öllum þorra þeirra, er atkvæði greiða, er naumast fullljóst, hverjar afleið- ingarnar yrðu“ ef aðskilnaður yrði. Þá töldu þeir lítið bera á andmælum við aðskilnað þar sem söfnuðir landsins álitu „málið svo fjarri því að koma til framkvæmda, að ekki þyrfti að hefja mótmæli“.50 Nefndarmenn lýstu afstöðu sinni til málsins svo: Vér getum eigi heldur viðurkennt, að þjóðkirkja sé óeðlilegt fyrirkomulag. Svo framarlega sem þjóðin viðurkennir þann sannleika, að siðgæði borgar- anna sé þýðingarmesta atriðið í hverju mannfélagi og að trúin sé öflugasti þátturinn í að efla það, þá er það ekki nema sjálfsagt að hið opinbera styrki trúarfélögin, og þá fyrst og fremst evangelisk lúterska kirkju, sem langmestur hluti þjóðarinnar nú telst til. Hitt er rétt að athuga, að alþingi ætti engin afskifti að hafa af kirkjunnar málum, en því má kippa í lag með stofnun kirkjuþings.51 Minnir þessi röksemdafærsla á álit meirihluta Kirkjumálanefndarinnar 1904—1906. I lokaorðunum brást prestastefnunefndin við rökum sem tilfærð höfðu verið á Alþingi og lutu að vanhæfi þess að ráða kirkjulegum málum til lykta en Böðvar Bjarnason virðist hafa sniðgengið þetta málefni í framsögu sinni. Þá er athyglisvert að nefndarmenn litu svo á að ekki væri óeðlilegt að trúarlega hlutlaust ríkisvald styddi við trúariðkun og þá einkum 47 Prestastefnan á Þingvelli 1909: 166. 48 Prestastefnan á Þingvelli 1909: 166. Sjá og nefndarálit á sama stað. 49 í nefndinni sátu auk Böðvars Bjarnasonar Gísli Skúlason (1877-1942) á Stokkseyri (Stóra- Hrauni), Jón Sveinsson (1858-1921) í Görðum á Akranesi, Kjartan Einarsson (1853-1913) í Holti undir Eyjafjöllum og Ólafur Magnússon (1864-1947) í Arnarbæli. ÞÍ. Bps. 1994-BA/l. Prestastefnan á Þingvelli 1909: 166. 50 ÞÍ. Bps. 1994-BA/l. Prestastefnan á Þingvelli 1909: 166. 51 ÞÍ. Bps. 1994-BA/l. Prestastefnan á Þingvelli 1909: 166. 64
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.