Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 89

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 89
Páll í Efesus Þetta er umgjörð hins opinbera rýmis sem Páll postuli stígur inn í um miðja fyrstu öld þessa tímatals. Sem einstaklingur á hann einnig sitt einkarými. Kominn til Efesus mæta honum ýmsar áskoranir: hann þarf að takast á við þá sem hann telur vera þar í nokkurn veginn sömu erindagerðum og hann sjálfur en hefir þó ýmislegt að athuga við frá sínum eigin bæjardyrum. Kristnir forverar hans í borginni eru ekki að vinna að fagnaðarerindinu í samræmi við hugmyndir hans og þar hefjast átök hans við kristna hópa eða aðra sem um leið eru hluti af hinu stærra og opinbera rými. Hann mætir fylgjendum Apollosar frá Alexandríu í Egyptalandi en hann er Kristsdýrkandi sem þó þekkir ekki krossdauða Jesú, þau örlög sem Páll boðar, heldur aðeins þá skírn sem Jesús var sagður hafa gengist undir fyrir tilsdlli Jóhannesar skírara (sbr. P 18.24-28).34 Stærri hópur kristinna forvera Páls í Efesus samanstóð af lærisveinum Jóhannesar skírara (sbr. P 19.1-7) en einnig þeir þekktu ekki til písla, dauða og upprisu Krists eins og Páll boðaði.35 Einnig lendir Páll í útistöðum við Gyðinga í Efesus sem hlaut að enda með vaxandi aðskilnaði frá samkunduhúsinu.36 Þessir hópar standa Páli á einhvern hátt nokkuð nálægt eins og gefur að skilja en hann hlaut einnig að rekast á við hópa utan síns uppruna og starfa og í Postulasögunni (19.1-20.1) er einmitt greint frá því hvernig hann kemst upp á kant við silfursmiði sem framleiða minjagripi fyrir dýrkendur og pílagríma Artemis gyðjunnar. I Fyrra Korintubréfi (15.32; 16.9) ýjar Páll að frekari agnúum við íbúa Efesusborgar. Enda þótt ekki komi fram hverja hann á þar við mætti ímynda sér að átökin beindust áfram að Artemisardýrkendum fremur en til að mynda samfélagi Gyðinga í borginni. Smátt og smátt verður Páll að horfast í augu við hið stærra opinbera rými. Það hefir tekið og heldur áfram að taka breytingum á miklum umbrotatímum samfara stofnun rómverska heimsveldisins. Um leið er það innsiglað með ásetningi um frið (lat. pax romana) sem oft er kenndur við Agústus keisara en þessi friðarsáttmáli er talinn hafa haldið til dauða Markúsar Árelíusar (121-180 e. Kr.; keisari frá 161). Þennan frið skyldi tryggja með hernaðarmætti og sigrum yfir óvinum rómverska ríkisins. Andspænis þeirri kröfu að unnt sé að tryggja frið með hernaðarmætti (e. 34 Murhpy-O'Connor, St. Paul's Ephesus, s. 202; Patrick J. Hartin hefir skrifað um Apollos, Apollos: Paul's Partner or Rival? 2009. 35 Murhpy-O'Connor, sama rit, s. 205-207. 36 Murhpy-O'Connor, sama rit, s. 207-209. 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.