Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Síða 104
eitt mikilvægasta framlag íslams á 20. öld (kannski í sömu deild og „vilayet-e
faqiti' hjá Khomeini).
Hjá Qutb er jahilliyah ekki tímabil heldur ástand. Þetta ástand, en
andheiti þess er íslam, er spilling, efnishyggja og nautnahyggja. Nú er það
svo komið hjá múslimum að þeir búa allir í jahilliyah ástandi vegna þess
að vestræn menning og áhrif tröllríða öllu. I jahilliyah tilbiðja einstaklingar
aðra einstaklinga, en ekki Guð, vegna þess að þeir fylgja ekki lengur lögum
Guðs (sjaría) heldur mannanna lögum. Þessa vegna er jahilliyah samfélög
ekki Guði þóknanleg. St)óvnmí\a.me.nn jahilliyah hafa tekið fullveldi þjóðar-
innar í eigin hendur, en fullveldið á að liggja hjá Guði. Þeir stjórnmálamenn
sem líta á sig sem fulltrúa þjóðarinnar og sækja umboð sitt frá fólkinu eru
trúleysingjar, þar sem þeir halda uppi jahilliyah, vantrú, og þar sem þeir
ætlast til að þjóðin fylgi sér. Þar af leiðandi eru þeir að gera tilkall til að
fólk sýni þeim undirgefni (þ.e. islam). En eins og Qutb bendir á er íslam
eingyðistrú og er því einungis hægt að auðsýna Guði undirgefni (íslam).
Skaparinn hefur gefið okkur hluta af sjálfum sér, þ.e. Orð sitt (Kóraninn),
okkur til leiðbeiningar. Að mati Qutbs er Kóraninn frumheimildin (al-nab
al-awwat) um hvernig eigi að skipuleggja bæði hagnýt og andleg málefni
þjóðarinnar.17 Grundvallaratriði trúarinnar hafa ekki breyst né hafa þau
þróast í gegnum tímans rás. Þau eru þvert á móti „stöðug“ (thabit) óháð
stað og stund. I íslam birtist alheimssannleikur sem ákvarðar mannlegt eðli
og tilveruna alla.18 Þar af leiðandi er sá einstaklingur, sem hefur rétta trú,
hinn „fullkomni maður“ (insan kamil), þar sem hugsanir hans og gjörðir eru
í skugga Guðs. Qutb leggur ríka áherslu á það að það eigi ekki að einskorða
trúna við helgihald og trúarlegar „tilfinningar“ sem hann kallar „amerískan
íslam“. Þvert á móti takmarki ekki sá mátt trúarinnar sem „skilur hvað trúin
sé“. Trúin nær yfir öll við svið þessa heims og alveg sérstaklega stjórnmál
og stjórnskipun samfélagsins. Og þar á skuggi Guðs að veita okkur skjól
í gegnum Kóraninn. Qutb spyr því lesandann: „Hver veit meira, þú eða
Guð?“19
Qutb gerir ráð fyrir því að við sem einstaklingar getum fyllilega skilið
Guð og hvað Guð ætlist til. Hins vegar er Qutb lítið fyrir heimspekilegar
vangaveltur eða deilur innan trúarinnar og hvernig hægt sé að greina rétt
frá röngu og vera viss um hvað sé raunverulegur vilji Guðs. Hann vildi ekki
17 Qutb, Ma 'alim fi al-tariq (al-qahira: Dar al-shuruq, 1992 (15. útg)), bls. 17.
18 Ma 'alim fi al-tariq, bls. 108-12.
19 Ma 'alim fi al-tariq, bls. 104.
102