Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 114

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 114
Óskar Guðmundsson gerir vel grein fyrir ættmönnum og uppvexti Þórhalls . Úr þessu verður breið lýsing á mannlífi og aldarháttum við Eyjafjörð, Reykjavík og Islendinganýlendunni í Kaupmannahöfn þann tíma sem Þórhallur var þar við nám. Þórhallur var náinn Jóni Sigurðssyni forseta á námsárum sínum og í Kaupmannahöfn og Tryggva Gunnarssyni athafna- manni og síðar bankastjóra Landsbankans, sem var tengdur honum vina- og fjölskylduböndum og sá síðarnefndi varð auk þess í ofanálag tengdafaðir Þórhalls. Hannes Hafstein, skáld og ráðherra, var nátengdur Þórhalli frá uppvaxt- arárunum og þeir voru á sama tíma við nám í Kaupmannahöfn, enda herbergisfélagar. Þetta voru lykilmenn á þeim pólitíska og félagslega vett- vangi þar sem Þórhallur lifði og hræðist og baksvið margvíslegra hlutverka og áhrifa sem hann hafði á samtíð sína. Óskar hefur tilhneigingu til gera hlut Þórhalls og hans fólks sem mestan og telur Þórhall eldhuga, hugsjónamann, afburða baráttumann og braut- ryðjanda á ýmsum sviðum kirkju- og þjóðmála. Hér hefði betur farið á því að vega og meta framlag hans á gagnrýninn hátt því vissulega var hann ekki brautryðjandi alls staðar þar sem hann lét til sín taka á og það var mismunandi eftir tímabilum hvar og hvernig hann beitti sér. Hann var t.d. ekki brautryðjandi þar sem um frjálslyndu guðfræðina er að ræða. Þar var séra Matthías Jochumsson bæði fyrstur og fremstur, enda fannst Þórhalli þjóðskáldið fara allt of geyst í róttækri gagnrýni sinni á kenninguna um eilífa útskúfun vantrúaðra sem það kallaði lærdóminn ljóta. Það er svo annað mál að Þórhallur er kominn í frjálslyndu fylkinguna með þeim félögum Jóni Helgasyni og Haraldi Níelssyni eftir aldamótin 1900 og sem biskup starfar hann klárlega á þeirri línu. Þórhallur var ekki brautryðjandi í gamlatestamentisfræðum og hann hóf ekki að kynna þau fræði í upphafi níunda áratugs 19. aldar í tengslum við biblíuþýðinguna eins og haldið er fram á bls. 143. Það gerði hann ekki fyrr en í lok tíunda áratugarins þegar það verk var komið af stað, enda var hann í þeirri nefnd sem fór yfir nýjar tillögur þar að lútandi. Það er e.t.v. táknrænt fyrir Þórhall að hann reisir sveitabæ í Reykjavík sem hann kenndi við æskuheimili sitt, Laufás í Eyjafirði, en vart er hægt að reikna það brautryðjendaverk. Hann var fremur kjölfesta, tengiliður gamla og nýja tímans enda aldamótamaður í þess orðs bestu merkingu. En sem hugsjónamaður mætti segja að Þórhallur biskup hafi verið ljósmóðir 112
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.